Stokkið í eldinn 26. júní á X977
Smári Tarfur & Birkir Fjalar sjá rokkþyrstum landanum fyrir alls kyns hávaða, eins og vera ber á fimmtudagskvöldum á X977. Víða er drepið niður fæti en frumflutningur á lagi frá heitustu tónleikasveit landsins um þessar mundir ber hæst auk þess sem að skeggbræðurnir tveir hita landann upp fyrir þungarokksveislu helgarinnar þar sem hin sögulega Manowar mun stíga á stokk.