

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Undirbúningskjörbréfanefnd á vettvang talningar í Borgarnesi
Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis fundar í dag á hótel Borgarnesi þar sem talning fór fram í Norðvesturkjördæmi í nýafstaðnum alþingiskosningum. Formaður nefndarinnar segir mikilvægt að nefndin vandi til verka þótt æskilegt væri að uppkosning færi fram sem fyrst ef niðurstaðan yrði að endurtaka þyrfti kosningarnar í kjördæminu.

Biður forseta loftslagsráðstefnunnar um að úthýsa olíuforkólfum
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur sent forseta loftslagsráðstefnunnar COP-26 sem fer fram í Glasgow í næsta mánuði um að sparka fulltrúum mengandi iðnaðar út af gestalista ráðstefnunnar.

Ráðuneytið útilokar ekki vafaatriði og ágreining í uppkosningum
Það er álit dómsmálaráðuneytisins að í uppkosningum sé einungis endurtekin atkvæðagreiðsla í því kjördæmi þar sem álitamál eru uppi. Þá séu sömu framboð í kjöri og notast skuli við sömu kjörskrá og í fyrri atkvæðagreiðslu.

Lögregla hefur enga heimild til þess að loka síðum sem geyma hatursorðræðuefni
Lögregla hefur enga heimild til þess að haldleggja efni eða loka síðum sem geyma efni sem flokkast undir hatursorðræðu. Varaþingmaður segir tíma til kominn að endurskoða hatursorðræðuákvæði hegningarlaganna.

Bein útsending: Opinn fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa
Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa kemur saman á opnum fundi á skrifstofu Alþingis í dag. Fundinum er streymt beint á vef Alþingis og má sjá að neðan.

Ellefu hafa kært talningu í Norðvesturkjördæmi
Alls hafa ellefu manns kært framkvæmd talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Sex frambjóðendur og fimm almennir borgarar. Fulltrúi Pírata í undirbúningskjörbréfanefnd segir að óskað verði eftir gögnum frá Lögreglunni á Vesturlandi í dag.

Brotthvarf Birgis gæti kostað Miðflokkinn um fimm milljónir
Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins myndi kosta flokkinn um fimm milljónir króna á kjörtímabilinu, ef miðað er við greiðslu sem hver þingflokkur fékk úr ríkissjóði fyrir hvern þingmann á síðasta kjörtímabili.

Umkringdur rokkstjörnum á kynningu sem líktist fyrsta skóladeginum
Nýir Alþingismenn sóttu kynningarfund um þingstörf í dag. Þingmennirnir segja kynninguna minna á fyrsta skóladaginn og segist einn þeirra umkringdur rokkstjörnum.

Tæplega 60 prósent vilja Katrínu áfram sem forsætisráðherra
Tæp 58% kjósenda vilja að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, verði áfram forsætisráðherra Íslands. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu.

Jakob Frímann og Tommi á Búllunni mættir í þingsal
Flokksbræðurnir Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni, settust að sjálfsögðu hlið við hlið þegar þeir tóku sér sæti í þingsal í fyrsta skipti í dag.

Sjálfstæðisflokkurinn bauð Ernu velkomna í flokkinn á laugardag
Sjálfstæðisflokkurinn tilkynnti á laugardag að Erna Bjarnadóttir, varaþingmaður Birgis Þórarinssonar og Miðflokkskona, hafi ákveðið að fylgja Birgi yfir í Sjálfstæðisflokkinn og starfa innan þingflokks hans. Erna tilkynnti hins vegar í morgun að hún muni ekki fylgja Birgi eftir, heldur halda til í Miðflokknum.

Erna fylgir Birgi ekki í Sjálfstæðisflokkinn
Erna Bjarnadóttir ætlar ekki að fylgja Birgi Þórarinssyni og verða varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Birgir gaf í skyn yfirlýsingu um helgina að Erna ætlaði að fylgja honum úr Miðflokknum til Sjálfstæðisflokksins

Útilokar að ágallarnir leiði til alþingiskosninga á landsvísu
Útilokað er að Alþingiskosningarnar verði dæmdar ólöglegar á landsvísu vegna meðferðar kjörgagna í Norðvesturkjördæmi að mati dósents í lögfræði. Mikilvægt sé að Alþingi rannsaki og undirbúi niðurstöðu sína að kostgæfni.

Völd leiðtoga yfir þingmönnum myndu aukast ef þingsæti fylgdu flokkum
Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir ýmis rök hníga að því að þingsæti fylgi þingmönnum frekar en þingflokkum. Að öðrum kosti kynni agi forystumanna flokkanna yfir þingmönnum sínum að verða slíkur að enginn þingmaður þyrði öðru en að fylgja flokkslínum til hins ítrasta, af ótta við að missa þingsæti sitt.

Óinnsigluð kjörgögn leiða ekki sjálfkrafa til ógildingar kosninga
Dósent við lagadeild Háskóla Íslands segir að það eitt að innsigla ekki kjörgögn leiði ekki sjálfkrafa til ógildingar kosninga. Hann segir ekkert því til fyrirstöðu að Alþingi rannsaki sjálft kjörgögnin úr Norðvesturkjördæmi.

Bein útsending: Fyrsti opni fundur undirbúningskjörbréfanefndar
Fyrsti opni fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa verður haldinn í dag og hefst hann klukkan 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og verður gestur fundarins Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.

Undirbúningskjörnefnd kemur saman á opnum fundi í dag
Undirbúningskjörnefnd kemur saman á fundi í dag til að fara yfir kærur sem borist hafa vegna framkvæmdar þingkosninganna í Norðvesturkjördæmi.

Aðdragandi flokkaskiptanna „afskræming á lýðræðinu“
Páll Magnússon, nýhættur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir aðdraganda að inngöngu Birgis Þórarinssonar, fyrrverandi þingmanns Miðflokksins, vera „afskræmingu á lýðræðinu.“

Líst ekkert sérlega vel á að kjósa aftur
Fólk er almennt ekki sérlega spennt fyrir uppkosningu þrátt fyrir annmarka á talningu í Norðvesturkjördæmi. Framkvæmdin þar hefur laskað traust almennings á kosningum ef marka má viðmælendur fréttastofu.

Sjálfstæðisflokkurinn ekki að ganga í Birgi Þórarinsson
Skiptar skoðanir eru á ákvörðun Birgis Þórarinssonar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn svo skömmu eftir kosningar. Bjarni Benediktsson formaður flokksins hefur boðið Birgi velkominn í þingflokkinn, sem er orðinn sá langstærsti á þingi með sautján þingmenn.

Formaður Heimdallar gagnrýnir vistaskipti Birgis
Veronika Steinunn Magnúsdóttir, formaður Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur að vistaskipti Birgis Þórarinssonar þingmanns úr Miðflokki yfir í Sjálfstæðisflokkinn geri verulega lítið úr prófkjörsbaráttu síðarnefnda flokksins, sem og vilja kjósenda hans.

Segir Klaustursskýringar Birgis ekki halda vatni
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir vistaskipti þingmannsins Birgis Þórarinssonar yfir til Sjálfstæðisflokksins vera vonbrigði. Fyrst og fremst telji hann ákvörðun Birgis ranga gagnvart því fólki sem unnið hafi að því að koma Birgi á þing í sínu kjördæmi. Hann telur skýringar Birgis um að vistaskiptin tengist Klaustursmálinu ekki halda vatni.

Stjórn Miðflokksins: Áfall fyrir hóp „sem borið hefur Birgi á örmum sér“
Brotthvarf Birgis Þórarinssonar úr þingflokki Miðflokksins er „fyrst og fremst áfall fyrir þann góða og öfluga hóp sem borið hefur Birgi á örmum sér sem oddvita flokksins í Suðurkjördæmi“.

Bjarni Ben býður Birgi velkominn
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, býður Birgi Þórarinsson velkominn í flokkinn, á Facebooksíðu sinni nú rétt í þessu.

Sakar Birgi Þórarinsson um sjálfhverfu
Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Sveitarfélaginu Árborg, gagnrýnir Birgi Þórarinsson harðlega fyrir ákvörðun sína um að ganga í Sjálfstæðisflokkinn.

„Það skiptir máli hvaða manneskjur setjast á þing“
Formaður Stjórnarskrárfélagsins hefur lagt fram kæru vegna Alþingiskosninganna og kallar eftir að þjóðin öll gangi að kjörstöðum að nýju. Vistaskipti Birgis Þórarinssonar, þingmanns í Suðurkjördæmi, sýni svart á hvítu hve miklu máli skipti hvaða fólk hafi komist inn á þing.

Birgir vill „að sjálfsögðu“ að Sigmundur og Bergþór komi líka yfir
Birgir Þórarinsson verður þingmaður Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu eftir að hafa boðið fram sem oddviti Miðflokksins. Hann segist ekki hafa lagt á ráðin um vistaskiptin fyrir kosningar.

Trúboðinn sem iðkar ekki trúna sem hann boðar
Á síðum Morgunblaðsins í dag má sjá fréttir af því að Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins í Suðurkjördæmi hafi yfirgefið flokkinn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Í minningargrein sem þingmaðurinn svo birtir í sama blaði rekur hann ástæður brotthvarfsins frá sínum klaustursdyrum séð.

Netverjar bregðast við vistaskiptum Birgis: „Það eru þrjú ár síðan Klaustursmálið kom upp?“
Netverjar hafa ekki setið á sér frá því að fregnir af vistaskiptum þingmannsins Birgis Þórarinssonar bárust í morgun. Birgir, sem er þingmaður í Suðurkjördæmi, hefur sagt skilið við Miðflokkinn og gengið til liðs við Sjálfstæðismenn.

Birgir Þórarinsson gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn vegna Klaustursmálsins
Birgir Þórarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis, hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa verið þingmaður fyrir Miðflokkinn í fjögur ár. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú því sautján þingmenn en Miðflokkurinn aðeins tvo.