

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Árið 1969 var stórmerkilegt ár í mannkynssögunni. Á þessu ári gengu Neil Armstrong og Buzz Aldrin fyrstir manna á tunglinu, hin sögufræga tónlistarhátíð Woodstock fór fram og hljómsveitin Rolling Stones gaf út plötuna „Let it Bleed“ með laginu „You Can't Always Get What You Want.“ Árið 1969 var líka merkilegt í sögu Íslands.
Forsvarsmenn Hopp hafa ekki áhyggjur af minni notkun rafhlaupahjóla eftir nýjustu breytingar á umferðarlögum sem samþykktar voru af Alþingi þar sem ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður. Þetta kemur fram í skriflegum svörum Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur framkvæmdastjóra Hopp Reykjavík.
Mjög hefur ágerst hin síðari ár að ræða um störf kjörinna fulltrúa, á Alþingi og í sveitarstjórnum eins og það sé sjálfgefið að þeir sem þar starfa eigi fátt skilið nema skít og skömm fyrir sín störf.
Ljóst er að þeir hjá Félagi atvinnurekenda vita vart hvort þeir eiga að hlæja eða gráta vegna ákvæðis í drögum að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þess efnis að pakka beri inn öllu tóbaki í einsleitar umbúðir.
Samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni barna hefur töluvert verið rætt um skólamál og skólamáltíðir á barnaþingum liðinna ára. Áhersla barnanna sjálfra hefur þar verið lögð á að hollur og góður matur eigi að vera ódýrari og að boðið sé upp á fjölbreyttara og betra fæði í skólanum.
Bjarni Benediktsson telur ekki tímabært að breyta þeirri hefð að forsætisráðherra flytji ávarp við hátíðarhöld á Austurvelli hinn 17. júní og í hans stað flytji forsetinn ávarp eins og Guðni Th. Jóhannesson lagði til við frestun þingfunda. Hins vegar komi til álita að útbúa aðstöðu fyrir forsetann á Þingvöllum eins og Guðni lagði til.
Ölvunarakstur rafhlaupahjóla er orðinn refsiverður með breytingu á umferðarlögum sem samþykkt voru fyrir frestun Alþingis fram á haust. Miðað er við sömu mörk og akstur bíla og annarra vélknúinna ökutækja.
Fólk sem verður staðið að svindli í ökuprófum má svipta réttinum til að þreyta ökuprófið að nýju í allt að hálft ár. Áður gátu viðkomandi mætt aftur í prófið viku síðar.
Henry Alexander Henrysson heimspekingur hefur áhyggjur af því að ný Mannréttindastofnun Íslands, verði flokkspólitískum deilum og glósum að bráð.
Á dögunum varð ljóst að frumvarp matvælaráðherra um lagareldi næði ekki fram að ganga á þessu þingi.
Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir Bjarna Benediktsson eiga mjög mikið undir við að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi fram yfir næsta vor. Það sé augljós djúpstæður ágreiningur innan þess en þau fái núna, við þinglok, nokkrar vikur til að jafna sig á því. Hann muni þó taka sig aftur upp þegar þing kemur aftur saman í ágúst.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna til fjölda ára hefur yfirgefið flokkinn, vegna þess sem hún kallar svik flokksins við eigin stefnu. Hún segist hafa fundið að fullreynt væri að berjast fyrir hugsjón sinni innan flokksins. Þrátt fyrir úrsögn sína úr flokknum sé hún ekki hætt afskiptum af stjórnmálum.
Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu.
Þingi var frestað í nótt fram að hausti hafði þá verið að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að alls hafi þingfundir verið 131 og að þeir hafi samtals staðið í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var fjórar klukkustundir og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klukkustundir og 43 mínútur.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands lagði til að forsetinn héldi ræðu á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn í stað forsætisráðherra eins og tíðkast hefur. Þetta sagði hann þegar hann frestaði þingfundum 154. löggjafarþings á fyrsta tímanum í nótt. Fundum Alþingis verður fram haldið þann tíunda september.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir stjórnarandstöðuna hafa fengið verulega samkeppni í stjórnarandstöðu frá þingliði ríkisstjórnarflokkanna. Hún segir ljóst að ríkisstjórnin hefði ekki getað klárað mörg mál án aðstoðar stjórnarandstöðunnar.
Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um listamannalaun sem fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og umtalsverða fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Fjöldi starfslauna hefur verið óbreyttur í fimmtán ár frá því að lögin tóku gildi árið 2009.
Forseti Alþingis á von á því að þingið geti lokið störfum sínum fyrir sumarhlé í dag. Þó sé viðbúið að umræður vari langt fram á kvöld, og þingmenn séu meðvitaðir um að sú staða geti komið upp að þing þurfi að koma saman eftir helgi.
Fulltrúi Flokks fólksins í velferðarnefnd lagði í kvöld fram breytingartillögur við frumvarp um öryrkjulífeyriskerfi almannatrygginga. Tillögurnar eru ekki hluti af samkomulagi stjórnarandstöðu og stjórnarflokka sem gert var til að ljúka þingstörfum. Þingmaður Vinstri grænna segir að líta megi á tillögurnar sem rof á samkomulagi en Inga Sæland segir það af og frá og segir að ekki standi til að tefja þingstörf.
Halla Signý Kristjánsdóttir og Iða Marsibil Jónsdóttir, þingmenn Framsóknarflokksins, lýstu báðir yfir vonbrigðum sínum yfir því að lagareldisfrumvarpið hefði ekki náð fram að ganga í vor. Iða segir að fiskeldisfyrirtæki hafi lengi kallað eftir skýrari lagaramma utan um atvinnugreinina.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er furðu lostinn vegna mannréttindastofnunar sem samþykkt var í dag á þinginu að koma á koppinn.
Formenn þingflokkanna náðu rétt fyrir miðnætti í gær saman um afgreiðslumála fyrir frestun funda Alþingis. Stefnt er að þingfrestun á morgun. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun Alþingis átti þingfrestun að vera fyrir viku síðan.
Von er á spennandi umræðum á Alþingi og afgreiðslu mála á því sem stefnir í að verða næstsíðasti þingfundur yfirstandandi þings. Beint streymi má sjá að neðan.
Margir eru hugsi eftir vantrauststillögu sem lögð var fram á hendur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur í gær. Bjarkey sat rjóð í kinnum, en hún sat fast og taldi sig eiga inni það að stjórnarflokkarnir myndu verja hana. Sem þeir og gerðu, allir nema einn. Jón Gunnarsson sat hjá og þung orð féllu.
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að, þó að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafi varist vantrausti með talsverðum meirihluta, varpi atkvæðagreiðslan enn skærara ljósi á þá úlfúð og óeiningu sem ríkir í ríkisstjórnarsamstarfinu.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og þingkona Vinstri grænna er ekki sátt við Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins og hjásetu hans í atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur henni sem greitt var atkvæði um á þingi í dag.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að sér þætti eðlilegt ef landsmönnum gæfist kostur á að senda umsagnir um þá einstaklinga sem Alþingi greiðir atkvæði um hvort fái ríkisborgararétt hér á landi.
Um þessar mundir liggur fyrir Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um almannatryggingar. Yfirlýst markmið frumvarpsins er að búa til einfaldara og réttlátara örorkulífeyriskerfi.
Ríkisstjórninni hefur ekki tekist að ná saman um lagareldisfrumvarpið í atvinnuveganefnd. Upphaflega stóð til að klára málið fyrir þinglok. Ágreiningur stjórnarliða snýr aðallega að ákvæðum um sektir og gjaldheimtu.
Allar líkur eru á því að Edgar Antonio Lucena Angarita eiginmaður Páls Óskars Hjálmtýssonar, verði brátt íslenskur ríkisborgari. Þetta er ljóst eftir að allsherjar-og menntamálanefnd lagði til í dag að hann yrði meðal 23 sem fái íslenskt ríkisfang.