

Andlát

Gítarleikari New York Dolls látinn
Sylvain Sylvain, gítarleikari bandarísku rokk- og pönksveitarinnar New York Dolls, er látinn, 69 ára að aldri.

Siegfried í Siegfried og Roy er látinn
Þýsk-bandaríski töframaðurinn Siegfried Fischbacher er látinn, 81 ára að aldri.

Solsidan-leikkonan Mona Malm er látin
Sænska leikkonan Mona Malm, sem gerði garðinn frægan meðal annars fyrir hlutverk sín í myndinni Fanny og Alexander og gamanþáttunum Solsidan, er látin, 85 ára að aldri.

Election-stjarnan Jessica Campbell er látin
Bandaríska leikkonan Jessica Campbell, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í gamanmyndinni Election frá árinu 1999, er látin, 38 ára að aldri. Hún er sögð hafa hnigið niður á heimili sínu og hafi ekki tekist að bjarga lífi hennar. Ekki liggur fyrir hvað dró Campbell til dauða.

Breski fjölmiðlamógúllinn David Barclay er látinn
Breski auðjöfurinn og fjölmiðlamógúllinn Sir David Barclay er látinn, 86 ára að aldri.

Spilavítaeigandinn Sheldon Adelson er látinn
Bandaríski auðjöfurinn Sheldon G. Adelson, sem rak spilavíti og var lengi einn mest áberandi maðurinn í viðskiptalífinu í Las Vegas, er látinn. Hann varð 87 ára.

Leikarinn John Reilly er látinn
Bandaríski leikarinn John Reilly, sem þekktur er fyrir hlutverk sín í General Hospital, Dallas og Beverly Hills 90210, er látinn.

Gunnar Þormar er látinn
Gunnar Þormar, tannlæknir og fyrsti formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, er látinn. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 3. janúar.

Leikari úr Bráðavaktinni látinn
Bandaríski leikarinn Deezer D, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem hjúkrunarfræðingurinn Malik McGrath í Bráðavaktinni, eða ER, er látinn. Hann varð 55 ára.

Lögregluskóla-leikkonan Marion Ramsey er látin
Bandaríska leikkonan og listakonan Marion Ramsey, sem þekktust fyrir hlutverk sitt í Lögregluskólamyndunum (e. Police Academy), er látin, 73 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu í gær að því er fram kemur í frétt Deadline.

Rithöfundurinn Eric Jerome Dickey látinn
Bandaríski metsölurithöfundurinn Eric Jerome Dickey er látinn, 59 ára að aldri. Hann lést um helgina eftir glímu við krabbamein.

Fyrrum enskur landsliðsmaður látinn
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn og leikmaður Manchester City, Colin Bell, er látinn 74 ára að aldri eftir stutta baráttu við veikindi.

Tanya Roberts látin
Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Tanya Roberts er látin, 65 ára að aldri. Frá þessu greinir TMZ í dag. Þetta er í annað sinn sem tilkynnt er um andlát Roberts á tveimur dögum en fyrri tilkynningin reyndist á misskilningi byggð.

Tanya Roberts ranglega sögð látin
Fréttir af andláti bandarísku leikkonunnar og fyrirsætunnar Tönyu Roberts eru stórlega ýktar. Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greindi ranglega frá andláti hennar í gær og hafði eftir talsmanni hennar.

Útför Jónínu Benediktsdóttur streymt vegna samkomutakmarkanna
Útför Jónínu Benediktsdóttur, íþróttafræðings og frumkvöðuls, var gerð frá Digraneskirkju í dag. Vegna samkomutakmarkana ákváðu aðstandendur að streyma jarðarförinni.

Bond-stúlkan Tanya Roberts er látin
Uppfært: Samkvæmt nýrri frétt á vef TMZ var Roberts ranglega sögð látin.Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Tanya Roberts lést í gær, 65 ára aldri. Frá þessu er greint á vef TMZ.

Ágúst H. Guðmundsson er látinn
Ágúst Herbert Guðmundsson, fyrrum körfuboltaþjálfari, er látinn, 53 ára að aldri, eftir þriggja ára baráttu við MND sjúkdóminn.

Gerry úr Gerry and the Pacemakers er látinn
Tónlistarmaðurinn Gerry Marsden, sem gerði garðinn frægan með ensku hljómsveitinni Gerry and the Pacemakers, er látinn. Hann var 78 ára gamall.

Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2020
Fjöldi þjóðþekktra Íslendingar kvaddi á árinu sem senn er á enda. Í hópi þeirra eru meðal annarra einhver ástsælasti söngvari þjóðarinnar, einhver vinsælasti skemmtikraftur landsins, frumkvöðull á sviði líkamsræktar á Íslandi, fyrrverandi ráðherrar og höfundur bókanna um Maxímús Músíkús. Þá þögnuðu einhverjar af þekktustu útvarpsröddum landsins.

Einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna látinn
Samuel Little, einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna, lést í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu. Little játaði á sig yfir níutíu morð víðsvegar um Bandaríkin og var dæmdur í margfalt lífstíðarfangelsi.

Nýkjörinn þingmaður látinn af völdum Covid-19
Repúblikaninn Luke Letlow, sem kjörinn var á fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Louisiana í kosningunum í nóvember, er látinn af völdum Covid-19. Hinn 41 árs gamli Letlow er fyrsti bandaríski þingmaðurinn til að láta lífið af völdum sjúkdómsins.

Birgir Svan Símonarson látinn
Birgir Svan Símonarson kennari og rithöfundur lést þann 25. desember síðastliðinn á Líknardeild landspítalans í Kópavogi.

Fatahönnuðurinn Pierre Cardin er látinn
Franski fatahönnuðurinn Pierre Cardin er látinn. Þetta staðfestir fjölskylda Cardin í samtali við franska fjölmiðla, en hann varð 98 ára gamall. Hann lést á sjúkrahúsi í Neully, vestur af höfuðborginni París.

Sænski harmonikkuspilarinn Roland Cedermark fallinn frá
Sænski tónlistarmaðurinn Roland Cedermark er látinn, 82 ára að aldri. Cedermark var goðsögn í heimi harmonikkutónlistar og var landsþekktur í Svíþjóð og víðar á Norðurlöndum.

„Deadliest Catch“-stjarna látin
Bandaríkjamaðurinn Nick McGlashan, sem margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Deadliest Catch á Discovery Channel, er látinn, 33 ára að aldri.

Kínverskur tölvuleikjamógúll látinn eftir eitrun
Lin Qi, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri tölvuleikjaframleiðandans Yoozoo, er látinn eftir að eitrað hafði verið fyrir honum.

Alræmdi njósnarinn George Blake er látinn
George Blake, fyrrum njósnari bresku leyniþjónustunnar MI6 og einn alræmdasti „tvöfaldi útsendarinn“ á tímum Kalda stríðsins er látinn, 98 ára að aldri. Á yfir níu ára tímabili starfaði Blake sem njósnari fyrir Sovétríkin en hann afhenti upplýsingar sem leiddu til þess að upp komst um að minnsta kosti fjörutíu útsendara MI6 í Austur Evrópu.

Þau kvöddu á árinu 2020
Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda. Í hópi þeirra sem önduðust á árunu eru hinn eini sanni James Bond, bandarískur hæstaréttardómari, einn besti körfuboltamaður sögunnar, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, ein skærasta leikkona gullaldar Hollywood, eitt fremsta tónskáld í sögu kvikmyndatónlistar og leikarinn sem fór með titilhlutverkið í Marvel-myndinni Black Panther.

Skoska fyrirsætan Stella Tennant látin
Skoska fyrirsætan Stella Tennant er látin fimmtug að aldri. Fjölskylda hennar staðfestir andlátið í tilkynningu. „Stella var yndisleg kona og mikill innblástur fyrir okkur öll. Hennar verður sárt saknað,“ segir í tilkynningunni. Hún hafi látist í gær og andlát hennar borið brátt að.

NFL-goðsögn látin
NFL goðsögnin Kevin Greene lést í gær, 58 ára að aldri. Þetta staðfesti fyrrum vinnuveitendur hans í Pittsburgh Steelers í gær.