
Áfallastreitu- röskun
Á víðáttum vefsins var nýlega frétt um rannsókn sem segir að áttundi hver nágranni World Trade Center finni enn til streitu eftir atburðina 11. september 2001.
Á víðáttum vefsins var nýlega frétt um rannsókn sem segir að áttundi hver nágranni World Trade Center finni enn til streitu eftir atburðina 11. september 2001.
Norðmaðurinn indverskættaði og aldni sem oft sólar sig á sama tíma og ég við sundlaugina á Spáni, krefst frétta af Íslandi á hverjum morgni. Í fyrstu hélt ég að um kurteisilegt hjal væri að ræða og blaðraði svona um helstu tíðindi sem ég hafði rekið augun í á netmiðlunum áður en ég fór út að flatmaga í sólinni.
Alvörukapítalisti lítur á samkeppni sem óhjákvæmilegan hlut. Ekki sérlega geðslegan en óumflýjanlegan. Ef maður stendur sig betur en keppinautarnir þá er það gott.
Lýðræði er rugl. Það er dýrt í rekstri, seinvirkt og skilar sjaldnast gáfulegri niðurstöðu en þeirri sem hvort sem er hefði verið komist að með öðrum aðferðum.
Oft hefur sú spurning leitað á mig hvenær rétt sé að grípa inn í líf fólks og hvenær best sé að láta það í friði. Fróður maður sagði samt einhverju sinni að við sæjum frekar eftir því sem við gerðum ekki heldur en því sem við gerðum og eftir þeirri speki hef ég farið.
Einhverntíma hefði það eflaust þótt óviðeigandi að Íslendingar þyrftu á sjálfan lýðveldisdaginn að fá aðstoð Dana við að fella óboðinn þjóðhátíðargest. Sú var þó raunin í ár. Meðan þorri þjóðarinnar sleikti ís og keypti blöðrur steig fulltrúi hinnar áður drottnandi herraþjóðar á land eins og frelsandi hetja, vopnaður deyfibyssu og ísbjarnarbúri til að bjarga Íslendingum úr bjarnarklóm. Þar fór sjálfstæði þjóðarinnar fyrir lítið.
Dagurinn í dag er kvenna. Forleikur hans var í hæsta máta viðeigandi. Fyrst snerust bloggheimar um undratækið sjálfsfróunarmúffu fyrir karlmenn. Í fyrradag spígsporaði fjallkona um Austurvöll með risavaxið reðurtákn á hausnum og loks var ellimóð birna skotin á flótta. Við kunnum vissulega að meta hið fríðara kyn.
Nokkuð lengi hefur verið móðins að kvarta undan tímaskorti. Þar er ég sjálf engin undantekning, byrja yfirleitt að væla yfir þessu hátt og í hljóði strax á morgnana.
Rostahjöðnun er óhjákvæmilegur fylgifiskur verðbólgu. Hún lýsir sér þannig að þegar sjóðir tæmast og efnahagskerfi veikist þykir þjóðinni hún síður hafa efni á að vera með rosta.
Dr. Gunni segir frá því í sunnudagsblaði Fréttablaðsins að þriggja daga ferðalag til Íslands fyrir bandarískt par mundi kosta 300 þúsund krónur, eða fyrir þá sem eru góðir í deilingu, 100 þúsund kall á dag.
Fimmtudagskvöldin voru heilög á meðan Sex and the City var í sjónvarpinu hjá mér eins og svo mörgum konum. Við vinkonurnar fórum svo í bíó um daginn til þess að kveðja þessar vinkonur okkar í New York fjórum árum eftir að sjónvarpsþættirnir runnu skeið sitt á enda.
Nú þegar ég er í útlöndum, á flandri - ekki nokkrum manni til gagns - tók ég upp á því í vikunni, eins og gengur og gerist, að hringja heim og leita frétta. Reyndar var ég orðinn nokkuð undrandi á því að hafa ekki fengið hringingu að heiman frá nokkrum manni, eftir ríflega 10 daga ferðalag. Hefðin er nefnilega, svona að sumarlagi, að allir Íslendingar fái tiltekið símtal að heiman - þegar þeir eru í útlöndum - hvers markmið er aðeins eitt: Að spyrja hvernig veðrið er í útlöndum og koma því svo á framfæri, lymskulega en hnitmiðað, að veðrið sé mjög gott heima.
Hvað rekur sjötugan hollenskan ferðamann á húsbíl til að smygla 190 kílóum af eiturlyfjum til Íslands? Mér finnst ekki ólíklegt að sá hollenski hafi kynnt sér bensínverðið á Íslandi áður en hann lagði í hann og komist að þeirri niðurstöðu að ef hann ætlaði að keyra hringveginn kæmi hann með þessu móti kannski út á sléttu.
Það var vandræðagangur á blaðinu þegar frétt um hommana á Hæðinni átti að birtast daginn eftir. Fyrirsögnin var Hommarnir á Hæðinni reknir úr vinnu, en hinir gagnkynhneigðu blaðamenn voru tvístígandi yfir þessu. Var fyrirsögnin móðgandi? Úr varð að hringt var í Begga og Pacas og auðvitað var þetta ekkert - Við erum hommar, hvað er málið?
Vegvilltur túristi á unglingsaldri var í síðustu viku skotinn á færi í fjallshlíð í Skagafirði. Alfriðaður og hopandi inn í þoku undan kúrekum norðursins sem ekki datt í hug friðsöm leið að lausn málsins.
Lengi trúðu Íslendingar að umheimurinn teldi okkur sannfærða umhverfisverndarsinna. Í útlöndum væri Ólafur Ragnar Grímsson, skapari hitaveitunnar, á hvers manns vörum; hér ækju allir á vetnisbílum, hús væru kynt með heitu vatni fyrst og fremst af umhverfisástæðum og sótbölvandi ýtustjórar, með þriggja daga skegg og sigggrónar hendur, legðu lykkju á leið sína til að hlífa álfum og huldufólki. Já, Íslendingar eru bragðarefir.
Nú er í mörg horn að líta hjá yfirvöldum. Meðal annars þarf að setja upp „viðbragðsáætlun“ við innrás hungraðra hvítabjarna, heimskautarefa, rostunga og jafnvel vaxtahækkana og verðbólgu í landið.
Börn hræðast oft ótrúlegustu hluti. Sem krakki var ég til dæmis svolítið hrædd um detta ofan í klósettið og skolast niður, ég þorði ekki að snúa mér í of marga hringi í rólunni af ótta við að fá garnaflækju og á aðventunni var ég smeyk um að rekast á jólaköttinn á förnum vegi.
Héraðsdómur Reykjavíkur skar úr um í vikunni að umfjöllun tímaritsins Ísafoldar um Geira á Goldfinger hefði vegið að æru hans. Ekki hefðu verið færðar sönnur á ásakanir um að á Goldfinger færi fram mansal og vændi. Geiri fékk milljón til að jafna sig.
Þegar Krúttkynslóðin tók að vekja athygli fjölmiðla nefndi hún engar steikur þegar hún var spurð um uppáhaldsmatinn sinn. Henni þótti súkkulaðikaka og mjólk best. Eins og hlédrægt sveitafólk nýkomið til byggða vildi það ómögulega láta hafa neitt fyrir sér og hvíslaði óöruggt í hljóðnemann. Þetta hæfileikaríka fólk virtist of gott fyrir þennan heim og af frásögnum þess sjálfs að dæma virtist því líða best á árabáti á leiðinni út í afskekktan vita þar sem það gat sinnt list sinni í friði, ekki ólíkt Múmínpabba.
Nýlega reyndi guðfræðinemi að færa rök fyrir því hér á þessum vettvangi að fullorðið fólk, t.a.m. í umönnunarstéttum, ætti að vera hreinskiptið í samræðum við börn um álitamál eins og trúmál. Ef barn spyrði kristinn kennara spurningar á borð við: „Hvar er mamma þín?“ þá væri hreinlega eðlilegt að svara „Hún er hjá Guði,“ svo lengi sem sá varnagli fylgdi að einhver gæti verið annarrar skoðunar. Þannig lærði barnið smám saman að kennarinn héldi mömmu sína vera hjá Guði, Abdullah í 5.G héldi hana hjá Skrattanum og Ella náttúrufræðikennari fullyrti að hún væri hjá ormunum. Með þessu móti myndi barnið vera eggjað til að taka eigin afstöðu sjálfstætt og eðlilega.
Lögreglan hefur legið undir nokkru ámæli að undanförnu. Fólk hefur ítrekað tuðað undan harðræði nokkurra lögregluþjóna. Lögreglan hefur svo ávallt brugðist við slíkum fregnum með því að ræða um aukið álag innan lögreglunnar, glæponar séu harðsvíraðri, hingað streymi stórhættulegir erlendir glæpahópar og ég veit ekki hvað og hvað.
Nákvæmlega klukkan 06.50 hvern virkan dag pípir síminn minn undur blíðlegt lag. Ekki þarf nema eitt skilvirkt handtak til að þagga niður í kvikindinu en nákvæmlega tíu mínútum seinna upphefur hann annað og grimmdarlegra garg sem kostar undantekningarlaust dálítið einvígi. Ég hamast við að reyna að sofa yfir mig en hann reynir staðfastlega að svipta heimilið næturkyrrðinni. Enn hefur mér því miður ekki tekist að kenna börnunum hversu unaðslegt það er að lúra lengur undir hlýrri sæng, heldur spretta þau upp eins og stálfjaðrir. Þar með er áreiti dagsins hafið fyrir alvöru.
Í Bandaríkjunum er sagt að ekkert vandamál sé svo stórt að stjórnmálamenn í Washington geti ekki fundið leið til að slá því á frest. Þar vestra er líka sagt að maður geti séð hvenær stjórnmálamaður sé að segja ósatt, því að þá hreyfi hann/hún varirnar.
Ég fór á Kvennaráðstefnu í vikunni með vinkonum mínum, nánar tiltekið á tengslanet á Bifröst þar sem um fjögur hundruð konur komu saman. Fyrst fór ég á þessa ráðstefnu fyrir þremur árum, með mömmu og yngri dóttur minni sem þá var næstum sex vikna.
Þegar skjálftinn reið yfir á fimmtudaginn lá ég á nuddbekk. Nuddarinn hafði rétt þá nýverið lagst til atlögu við ógurlegan stirðleika í vöðvum á milli herðarblaðanna, með slíkum tilheyrandi sársauka að mér fannst það hreint og beint eðlilegt að allt skyldi fara af stað inni í herberginu, húsið skjálfa og gólfið ganga í bylgjum.
Í vetur spjallaði ég við leikskólakennara sem tjáði mér að hún ætti stundum í stökustu vandræðum með að svara spurningum barnanna þegar eilífðarmálin bæri á góma.
Í viku átti ég þess kost að lifa lífinu án þess að þurfa svo mikið sem einu sinni að leiða hugann að ruglinu í borgarstjórn, Ingibjörgu og Geir, sem eru ægilega sár að Stöð 2 skuli minna þau á gömul loforð, og öllu íslenska rausinu, tuðinu og vælinu sem hér flýtur hvarvetna um eins og notaðir smokkar í skítalæk.
Þeir sem segja að ekki sé hægt að kaupa allt fyrir peninga eru að vanmeta mátt peninganna gróflega. Það er lafhægt að kaupa dauða yfir bæði einstaklinga og þjóðir.