Júlíus á leið til Fredrikstad Júlíus Magnússon fyrirliði knattspyrnuliðs Víkings er að ganga til liðs við Fredrikstad í norsku B-deildinni. Fótbolti 4. febrúar 2023 13:28
Valur yngir upp: „Markmiðið er að fá bestu ungu strákana á Hlíðarenda“ Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, segir að það sé meðvituð ákvörðun hjá sér að yngja Valsliðið upp. Félagið samdi við tvo unga og efnilega leikmenn, Lúkas Loga Heimisson og Óliver Steinar Guðmundsson, í vikunni. Íslenski boltinn 3. febrúar 2023 09:01
Framarar tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn Fram er Reykjavíkurmeistari karla í fótbolta árið 2023 eftir 4-1 sigur gegn Víkingum á Víkingsvelli í kvöld. Fótbolti 2. febrúar 2023 20:57
Blikar lentu í gini úlfsins - sjáðu mörkin í skellinum á móti FH FH vann fyrsta titil knattspyrnuársins 2023 þegar liðið tryggði sér Þungavigtarbikarinn í gær. FH-ingar gerðu það með stæl eða með því að vinna 4-0 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks á þeirra eigin heimavelli. Íslenski boltinn 2. febrúar 2023 14:01
Arnar getur endað þriðju eyðimerkurgönguna sem þjálfari Víkinga Það er spilað um titla daglega í íslenska fótboltanum. Í gær fór Þungavigtarbikarinn á loft og í kvöld fer Reykjavíkurmeistarabikar karla sömuleiðis á loft. Íslenski boltinn 2. febrúar 2023 12:30
„Ef ég hefði þann eiginleika líka væri ég mögulega að spila á hærra getustigi“ Það voru engin smá fótspor sem Júlíus Magnússon þurfti að feta í þegar hann tók við fyrirliðabandi þáverandi Íslands- og bikarmeistara Víkings. Að taka við af Kára Árnasyni og Sölva Geir Ottesen er svo sannarlega ekki allra en með Júlíus sem fyrirliða þá varð liðið bikarmeistari enn á ný, fór langt í Evrópu en hélt því miður ekki dampi í Bestu deildinni. Íslenski boltinn 2. febrúar 2023 09:01
Til Vals eftir verkfallið Lúkas Logi Heimisson, 19 ára knattspyrnumaður úr Grafarvogi, er genginn í raðir Vals frá Fjölni eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð. Valsmenn tilkynntu um tvo nýja leikmenn í dag sem báðir eru ungir og hafa verið á mála hjá ítölsku félagi. Íslenski boltinn 1. febrúar 2023 16:44
Óskar Hrafn og Heimir bítast um fyrsta Þungavigtarbikarinn í kvöld Fyrsti fótboltatitilinn á árinu 2023 er í boði í kvöld og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 1. febrúar 2023 13:31
KA fær tvöfaldan liðsstyrk frá Noregi Ka hefur fengið íslenska unglingalandsliðsmanninn Ingimar Torbjörnsson Stöle og norska varnarmanninn Kristoffer Forgaard Paulsen til liðs við sig fyrir komandi leiktíð í Bestu-deild karla í knattspyrnu frá norska félaginu Viking. Fótbolti 31. janúar 2023 23:00
Orlando City staðfestir kaupin á Degi Bandaríska knattspyrnufélagið Orlando City staaðfesti fyrr í dag kaupin á Degi Dan Þórhallssyni frá Breiðablik. Fótbolti 31. janúar 2023 20:01
Úr Betri deildinni í þá Bestu KA, silfurlið Bestu deildar karla á síðasta tímabili, hefur samið við færeyska landsliðsframherjann Pæt Petersen til þriggja ára. Íslenski boltinn 27. janúar 2023 13:30
Úr marki ÍA til Stjörnunnar Árni Snær Ólafsson, sem verið hefur markvörður og fyrirliði ÍA í fótbolta, er mættur í Garðabæinn og genginn í raðir Stjörnunnar. Fótbolti 26. janúar 2023 14:55
Leggur skóna á hilluna fyrir 24 ára afmælið sitt Ingimundur Aron Guðnason mun ekki spila með Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Íslenski boltinn 25. janúar 2023 10:30
Víkingar versluðu sér miðvörð í Mjóddinni Bikarmeistarar Víkings í fótbolta hafa fengið til sín ungan varnarmann sem félagið keypti frá ÍR. Sá heitir Sveinn Gísli Þorkelsson. Íslenski boltinn 24. janúar 2023 17:01
Keflavík fær markvörð sem fékk varla á sig mark í Færeyjum Keflvíkingar hafa fundið markvörð til að fylla í skarðið sem Sindri Kristinn Ólafsson skildi eftir þegar hann gekk í raðir FH í vetur. Íslenski boltinn 24. janúar 2023 12:49
Dagur á leið í sólina í Orlando Dagur Dan Þórhallsson er á leið til Orlando City sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Íslenski boltinn 23. janúar 2023 11:20
KR kaupir enskan framherja frá Gróttu KR hefur gengið frá kaupum á 22 ára enskum sóknarmanni frá nágrönnum sínum í Gróttu. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 17:03
Adam hafði val og valdi Val Adam Ægir Pálsson, stoðsendingakóngur síðustu leiktíðar í Bestu deildinni í fótbolta, er genginn í raðir Vals eftir að hafa síðast verið samningsbundinn Víkingum. Íslenski boltinn 20. janúar 2023 10:22
Ristin brotin og Tryggvi úr leik Tryggvi Hrafn Haraldsson, knattspyrnumaður úr Val, vonast til að vera farinn að æfa og geta mögulega spilað fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni í vor þrátt fyrir að hafa ristarbrotnað á dögunum. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 22:30
Guy Smit lánaður til Eyja og má spila á móti Val Hollenski markvörðurinn Guy Smit spilar með ÍBV í Bestu deild karla í sumar. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 14:09
FH nælir í varnarmann úr Breiðholti Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er genginn í raðir FH frá Leikni R. og mun því halda áfram að spila í Bestu deildinni í fótbolta á komandi leiktíð. Íslenski boltinn 17. janúar 2023 09:28
Sverrir Páll genginn í raðir Eyjamanna ÍBV hefur gert samning við sóknarmanninn Sverri Pál Hjaltasted en hann kemur til Vestmannaeyja frá Hlíðarendafélaginu Val. Fótbolti 15. janúar 2023 16:27
Blikar í úrslit Þungavigtarbikarsins eftir stórsigur í grannaslag Breiðablik er komið í úrslit í Þungavigtarbikarnum í fótbolta eftir sigur á grönnum sínum í HK fyrr í dag. Íslenski boltinn 14. janúar 2023 13:56
Íslandsmeistari tekur sér hvíld frá fótbolta Knattspyrnumaðurinn Sölvi Snær Guðbjargarson sem leikið hefur fyrir Breiðablik undanfarin ár hefur ákveðið að taka sér frí frá boltanum um óákveðinn tíma. Íslenski boltinn 14. janúar 2023 12:46
HK fær einn heitasta leikmann Lengjudeildarinnar Nýliðar HK eru byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild karla næsta sumar. Liðið tilkynnti í kvöld að það hefði samið við Marciano Aziz til tveggja ára. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 22:45
Jesper mun ekki spila á Íslandi næsta sumar Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård hefur samið við B-deildarliðið Fredericia í heimalandinu. Hann mun því ekki spila fótbolta á Íslandi næsta sumar en eftir að samningi hans við Val var rift opinberaði Jesper að hann væri til í að vera áfram hér á landi ef rétt tilboð bærist. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 18:00
„Þú verður að spyrja Rúnar Kristinsson að því“ Heimir Guðjónsson, þjálfari karlaliðs FH í fótbolta, fagnar nýjustu viðbót Hafnfirðinga við hópinn. Kjartan Henry Finnbogason samdi við liðið í gær. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 11:31
„KR í fortíðinni en nútíðin og framtíðin er hérna í Krikanum“ Kjartan Henry Finnbogason kveðst spenntur fyrir næsta kafla á sínum ferli með FH, sem hann mun leika með í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Hann kemur til liðsins frá uppeldisfélaginu KR. Íslenski boltinn 11. janúar 2023 08:31
FH staðfestir komu Kjartans Henrys FH hefur tilkynnt komu Kjartans Henrys Finnbogasonar til liðsins frá KR. Hann mun því spila með liðinu á komandi sumri í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 10. janúar 2023 12:29
Keflavík byrjað að safna liði Eftir að hafa statt og stöðugt misst leikmenn úr leikmannahópi sínum hefur Keflavík loks sótt liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla í fótbolta. Sá heitir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og lék síðast með Kórdrengjum í Lengjudeildinni. Íslenski boltinn 9. janúar 2023 22:30