

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Staðfestu dóm yfir manni sem braut gegn æskuvinkonu
Atvikið átti sér stað í september árið 2014.

Fjögurra ára dómur yfir manni sem braut gegn barni staðfestur
Maðurinn lést skömmu eftir uppkvaðningu héraðsdóms en börn hans áfrýjuðu til Landsréttar.

„Ég er morðingi, guð fyrirgefi mér“
Myndbandsupptaka úr lögreglubílnum sem Vigfús var settur í strax eftir brunan og var spiluðu í Héraðsdómi Suðurlands í dag sýnir hann í annalegu ástandi þar sem hann segir, "Ég er morðingi, guð fyrirgefi mér.

Keypti sér ítrekað flugmiða til að stela hátt í þrjú hundruð tóbakskartonum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt litáískan karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir stórfelldan þjófnað. Maðurinn, í félagi við þrjá aðra, stal alls 265 kartonum af tóbaki úr Fríhafnarverslun á Keflavíkurflugvelli yfir rúmlega hálfs árs tímabil.

Fólkið reyndi að bjarga sér úr eldinum
Fundust látin í svefnherberginu.

Arkítektar HR sýknaðir af 250 milljóna bótakröfu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað arkítektastofurnar Arkís arkitekta o Henning Larsen Architects af 250 milljóna krónu bótakröfu Grunnstoða ehf, fasteignafélags Háskólans í Reykjavík. Háskólinn taldi að rekja mætti galla á loftræstikerfi, galla á hitakerfi og sprungur í gólfi í húsnæði Háskólans til ófullnægjandi hönnunar Arkís og Henning Larsen Architects.

„Þú ert ógeðslegur morðingi“
Sjúkraflutningamaður sem var fyrst á vettvang í brunanum á Kirkjuvegi í október í fyrra lýsti því að húsið hafi verið alelda þegar hún kom á vettvang.

Segir Vigfús hafa hótað að kveikja í húsinu
Elva Marteinsdóttir, sem ákærð er fyrir að láta hjá líða að gera það sem í hennar valdi stóð til að afstýra eldsvoða sem varð fólki að bana í húsi við Kirkjuveg á Selfossi í október í fyrra, segir Vigfús Ólafsson hafa hótað að kveikja í húsinu.

Bað guð um að fyrirgefa sér í lögreglubílnum
Vigfús Ólafsson, sem ákærður er fyrir manndráp með því að hafa valdið eldsvoða sem varð tveimur að bana á Selfossi í október í fyrra, viðurkenndi í dómsdal í morgun að hafa verið að fikta með eld í aðdraganda þess að kviknaði í.

Sjöunda niðurstaða MDE um brot á réttlátri málsmeðferð
Fimm dómar hafa fallið hjá Mannréttindadómstól Evrópu um brot íslenska ríkisins á ákvæði um réttláta málsmeðferð fyrir óvilhöllum dómstól. Tvær dómsáttir hafa verið gerðar að auki.

Kaupþingsmenn vilja endurupptöku Al-Thani málsins eftir niðurstöðu MDE
Magnús Guðmundsson, einn sakborninga í Al-Thani málinu, segir það liggja beint við að óska eftir endurupptöku málsins.

Skaðabótamál á hendur Björgólfi Thor aftur í hérað
Hæstiréttur hefur vísað rúmlega 600 milljóna króna skaðabótakröfu Fiskveiðihlutafélagsins Venusar hf. og Vogunar hf. á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni aftur heim í hérað. Málin snúast um meintar skyldur eignarhaldsfélagsins Samson gagnvart öðrum hluthöfum í gamla Landsbankanum fyrir hrun.

Sveinn Andri ekki vanhæfur til að skipta búi WOW air
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Sveinn Andri Sveinsson þurfi ekki að víkja sem skiptastjóri þrotabús WOW air.

Hæstaréttardómari vanhæfur í Al-Thani málinu
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur úrskurðað að Árni Kolbeinsson hæstaréttardómari hafi verið verið vanhæfur í Al-Thani málinu. Íslenska ríkið þarf að greiða Sigurði Einarssyni, Hreiðari Má Sigurðssyni, Magnúsi Guðmundssyni og Ólafi Ólafssyni tvö þúsund evrur í bætur.

Stuðningsfaðir braut kynferðislega gegn fatlaðri konu
Auk tveggja ára fangelsis var maðurinn dæmdur til að greiða konunni eina milljón króna í bætur.

Níðingur fær styttri dóm
Landsréttur mildaði í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Þorsteini Halldórssyni úr sjö ára fangelsi í fimm og hálfs árs

„Áfellisdómur yfir hroðvirknislegum vinnubrögðum“
Inga Sæland, formaður Flokks flokksins, segir dóm Landsréttar í máli móður hennar gegn Tryggingastofnun ríkisins áfellisdóm yfir hroðvirknislegum vinnubrögðum Alþingis við lagasetningu.

Landsréttur sneri við dómi í fimm milljarða máli móður Ingu Sæland
Sigríður Sæland Jónsdóttir, móðir Ingu Sæland formanns Flokks fólksins, hafði betur í baráttu við Tryggingastofnun ríkisins í Landsrétti þar sem deilt var um tæplega 42 þúsund krónur.

Fullnaðarsigur Emmessíss í Toppísmálinu
Emmessís má nota vörumerkið Toppís og þarf ekki að farga öllum vörum og auglýsingum sem bera vörumerkið. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem staðfesti dóm úr héraði þess efnis.

Dómur yfir barnaníðingi styttur um átján mánuði
Landsréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Þorsteini Halldórssyni, dæmdum kynferðisbrotamanni, úr sjö ára fangelsi í fimm og hálfs árs fangelsi.

Segir stjórnmálamenn bera ábyrgð á uppgangi glæpagengja: „Hvað eru stjórnvöld búin að vera að gera?“
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir að þær upplýsingar sem komu fram í svartri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða glæpastarfsemi hafi lengi legið fyrir.

Krefst tíu milljóna í bætur frá ríkinu eftir frelsissviptingu
Steinbergur Finnbogason lögmaður krefst tíu milljóna króna í bætur frá íslenska ríkinu vegna frelsissviptingar sem hann sætti í febrúar 2016.

Íslendingarnir dæmdir í fangelsi í Ástralíu
Þeir Helgi Heiðar Steinarsson og Brynjar Guðmundsson hafa verið dæmdir í fangelsi í Ástralíu fyrir stórfellt fíkniefnasmygl. Mennirnir fengu vægari dóma en útlit var fyrir.

Niðurstaða Mannréttindadómstólsins í Al-thani máli í næstu viku
Dómur verður kveðinn upp í Mannréttindadómstól Evrópu næsta þriðjudag í máli Sigurðar Einarssonar, Hreiðars Más Sigurðarssonar, Ólafs Ólafssonar og Magnúsar Guðmundssonar gegn Íslandi.

Íslendingarnir í Ástralíu sjá fram á langa dóma
Íslendingarnir tveir sem handteknir voru í Ástralíu grunaðir um stórfelldan innflutning á kókaíni hafa báðir játað sök í málinu. Þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi Victoria-sýslu í Melbourne í dag sagði dómarinn að ljóst væri að mennirnir tveir hefðu flutt kókaínið inn til Ástralíu sem burðardýr.

Bubbi hefur reynt að leita réttar síns vegna auðkennisþjófnaðar í tvö ár
Bubbi Morthens hefur leitað til lögreglu, tölvusérfræðings og lögfræðinga vegna auðkennisþjófnaðar en enginn virðist geta hjálpað honum. Dómsmálaráðherra ætlar að fela refsiréttarnefnd að skoða hvort lögfesta þurfi ákvæði um auðkennisþjófnað í hegningarlög.

Landsréttarhneykslið gerði Jóhannes afhuga stöðu dómara
Þegar listi yfir umsækjendur var birtur vakti það athygli að Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður, er ekki á lista yfir umsækjendur en hann er sá eini í hópi hinna fjögurra umsækjenda sem gengið var fram hjá við skipun dómara við hið nýja dómsstig sem sækir ekki um starfið.

Íslenskur fjársvikari og flugstjóri finnst ekki
Erfingjar eldri manns sem lést í febrúar 2017 hafa stefnt 57 ára flugstjóra sem fékk tólf mánaða dóm fyrir að svíkja 42 milljónir út úr gamla manninum.

Beraði sig ítrekað fyrir stjúpdætrum sínum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í fimm mánaða fangelsi sem skilorðsbundið er til tveggja ára fyrir að bera sig fyrir framan stjúpdætur sínar og fróa sér svo þær sáu til.

Grunaður um brot gegn þrettán ára stúlkubarni
21 árs karlmaður sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir að hafa sumarið 2016 látið þrettán ára stúlku hafa við sig munnmök og haft samræði við stúlkuna.