Langur bíltúr framundan til ömmu og afa við Grundarfjörð Steinar Nói Kjartanson og fjölskylda er meðal þeirra Grindvíkinga sem hafa neyðst til að yfirgefa heimili sitt. Fjölskyldan er á leiðinni til Grundarfjarðar svo langur bíltúr er fyrir höndum. Þau ætluðu að sofa í Grindavík í nótt þar til tilkynning um allsherjarrýmingu barst. Innlent 11. nóvember 2023 01:23
Ræða Víðis í heild sinni Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, greindi frá því á upplýsingafundi upp úr ellefu að Almannavarnir hafi lýst yfir neyðarstigi og að í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum hafi verið tekin ákvörðun um að rýma Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 00:19
Þrjár varaaflstöðvar tilbúnar á Keflavíkurflugvelli Þrjár varaaflsstöðvar eru til taks fyrir Keflavíkurflugvöll ef rafmagn fer af svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir neyðarstjórn Isavia fylgjast vel með þróun mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Innlent 10. nóvember 2023 23:57
Stærri kvikugangur en í síðustu eldgosum og mikil kvika Veðurstofa hefur upplýst að ekki sé hægt að útiloka að kvikugangur nái til Grindavíkur og geti opnast. Að sögn sviðsstjóra almannavarna er um stærri kvikugang að ræða en sást í síðustu eldgosum á Reykjanesskaga og er mikil kvika undir jörðinni. Innlent 10. nóvember 2023 23:47
Allt það helsta um rýminguna: Íbúar loki gluggum og aftengi rafmagnstæki Rýming er hafin í Grindavík vegna kvikugangs sem gæti myndast undir bænum. Almannavarnir biðla til íbúa að koma sér burt úr bænum innan fáeinna klukkustunda, fyrir klukkan þrjú í nótt. Öllum í Grindavík er skylt að yfirgefa heimili sín. Innlent 10. nóvember 2023 23:38
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna rýmingar og skjálfta Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að rýma Grindavík en fækkað hefur verulega í bænum í kvöld. Innlent 10. nóvember 2023 23:06
Gríðarlegar skemmdir: „Það eru engin orð sem geta lýst þessu“ „Þetta er náttúrulega alveg hræðilegt. Það eru engin orð sem geta lýst þessu,“ segir Birna Óladóttir íbúi á hjúkrunarheimilinu í Grindavík. Gríðarlegar skemmdir eru á hjúkrunarheimilinu eftir skjálftana síðdegis og í kvöld. Innlent 10. nóvember 2023 22:33
Hlakkar alls ekki í Þorvaldi í kvöld Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að stutt sé í eldgos á Reykjanesi; það sé frekar spurning um klukkustundir en daga að hans mati. Þá er hann ekki þeirrar skoðunar að hann hafi verið of djarfur í greiningu sinni á atburðum síðustu daga. Innlent 10. nóvember 2023 22:27
Flúði með börnin í bæinn Halldóra Birta og fjölskylda hennar búa í Grindavík og fundu rækilega fyrir skjálftunum í dag. Þegar hlutir voru farnir að hrynja úr hillum ákvað Halldóra að fara til Reykjavíkur með börn sín tvö. Hún segir bílaröð hafa myndast á Nesvegi eftir að Grindavíkurvegur lokaði. Innlent 10. nóvember 2023 22:20
„Aldrei á ævinni orðið svona ógeðslega hrædd“ Mikil eyðilegging blasti við þegar Valgerður Vilmundardóttir gekk inn á heimili sitt í Grindavík fyrr í kvöld. Hún segist aldrei hafa upplifað annað eins og skjálftann sem reið yfir þegar hún var stödd í Lyfju um klukkan sex. Innlent 10. nóvember 2023 22:16
Stjörnum prýtt skjálftakort Skjálftakort Veðurstofunnar með skjálftum síðustu tveggja sólarhringa er þakið stjörnum. Hver stjarna táknar jarðskjálfta sem var yfir þrír að stærð. Innlent 10. nóvember 2023 22:10
Gríðarlegar skemmdir á hjúkrunarheimili í Grindavík Mikið tjón hefur orðið á hjúkrunarheimilinu Víðihlið í Grindavík. Bæði mikið vatnstjón og þá er stór sprunga í húsinu sem virðist sem það sé að klofna í tvennt. Innlent 10. nóvember 2023 21:58
Foreldrunum skipt út fyrir nágranna vegna skjálftanna Par í Grindavík segjast ætla að halda sér í bænum þrátt fyrir mikla skjálfta. Þeir áttu von á foreldrum í mat en enduðu með nágrannana við eldhúsborðið vegna skjálftanna. Innlent 10. nóvember 2023 21:56
Sundhnúkasprungan sögð hættulegust fyrir Grindavík Augu vísindamanna, almannavarna sem og almennings, ekki síst íbúa Suðurnesja, beinast núna að gígaröð og sprungu sem kennd eru við Sundhnúka norðaustan Grindavíkur. Frá því óvissustigi var lýst yfir fyrir hálfum mánuði hefur öll athyglin verið á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og þar með Svartsengi og Bláa lóninu. Kastljósið færðist hins vegar í dag að Sundhnúkasvæðinu eftir að áköf skjálftahrina hófst þar í morgun, austan við fjallið Sýlingarfell. Innlent 10. nóvember 2023 21:51
Fáir mættir í fjöldahjálparstöðvarnar Starfsemi fjöldahjálparstöðvanna fer hægt af stað. Þar fá þeir sem mæta skjól, hressingu og sálarhjálp. Innlent 10. nóvember 2023 21:29
Landsmenn verði að búa sig undir gos Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segir að landsmenn verði að vera undir það búnir að það gjósi á næstu klukkustundum. Innlent 10. nóvember 2023 21:13
Auknar líkur á eldgosi Skýr merki koma nú fram á mælum Veðurstofu um myndun kvikugangs til yfirborðs. Enn eru mestar líkur á að kvika komi upp norðan vatnaskila við Sundhnúka og hraun muni því ekki renna til Grindavíkur í samræmi við hraunflæðilíkan sem keyrt var fyrr í kvöld. Innlent 10. nóvember 2023 21:02
Grindavíkurvegur áfram lokaður vegna skjálftavirkni Vegagerðin hefur lokið bráðabirgðaviðgerðum á Grindavíkurvegi eftir að sprungur mynduðust á honum fyrr í kvöld. Vegurinn verður þó áfram lokaður vegna viðvarandi skjálftavirkni á svæðinu. Innlent 10. nóvember 2023 20:56
Tvær virkjanir HS Orku slógu út í skjálftunum HS Orka missti út tvær virkjanir í jarðskjálftunum á Reykjanesskaga í dag. Báðar þeirra eru komnar í rekstur aftur en forstjóri HS Orku segir lítið hægt að gera annað en að bíða þar til hrinunni líkur. Innlent 10. nóvember 2023 20:54
Varðskipið Þór á leiðinni til Grindavíkur Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, siglir í kvöld frá Reykjavík og er væntanlegt til Grindavíkur í nótt að ósk almannavarna. Þá er verið að opna fjöldahjálparstöðvar á fjórum stöðum. Innlent 10. nóvember 2023 20:22
Keflvíkingar gera allt til að auðvelda líf nágranna sinna Unnið er að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir Grindvíkinga í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ. Bæjarstjórinn segir bæinn gera allt til að auðvelda líf nágranna sinna. Innlent 10. nóvember 2023 20:02
Reikna frekar með dögum en klukkustundum Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegra að nokkrir dagar líði frekar en klukkustundir áður en kvika nær til yfirborðs. Ef sprunga myndi myndast þar sem skjálftavirknin er hvað mest myndi hraun renna til suðausturs og vesturs en ekki í átt til Grindavíkur. Innlent 10. nóvember 2023 19:52
Stöðugur straumur út úr Grindavík Stöðug umferð hefur verið út úr Grindavík síðan stóru skjálftarnir byrjuðu að ríða yfir síðdegis. Hámarki var náð á sjötta tímanum og er umferð um Grindavíkurveg lokuð eftir að brotnaði upp úr malbiki. Innlent 10. nóvember 2023 19:45
„Þetta gætu verið nokkrir klukkutímar eða nokkrir dagar“ Jarðeðlisfræðingur segir stöðuna benda til þess að kvika sé að troða sér upp í jarðskorpuna. Veðurstofan situr á fundi með almannavörnum í Öskju. Innlent 10. nóvember 2023 19:07
„Það er ekkert eldgos að byrja“ Víðir Reynisson, yfirlögreglustjóri almannavarna segir eldgos ekki yfirvofandi þrátt fyrir snarpa skjálfta á Reykjanesi. Þrátt fyrir að Grindvíkingar hafi upplifað stanslausa skjálfta í þrjá klukkutíma sé engin ástæða til að yfirgefa bæinn. Innlent 10. nóvember 2023 18:43
Grindavíkurvegi lokað vegna stórrar sprungu Stór sprunga myndaðist í veginum seinni partinn í dag. Innlent 10. nóvember 2023 18:22
Ætlaði að senda vinkonu snapp þegar stór skjálfti reið yfir Halla Togga Þórðardóttir, íbúi í Grindavík, ætlaði að senda vinkonu sinni myndbandsskilaboð síðdegis þegar harður skjálfti reið yfir. Innlent 10. nóvember 2023 18:06
Vaktin: Kvikugangurinn virðist teygja sig undir Grindavík Rýmingu í Grindavík er lokið eftir að neyðarstigi var lýst yfir fyrr í kvöld. Ástæðan er sú að ekki er hægt að útiloka að kvikugangur sem er að myndast gæti náð til Grindavíkur. Innlent 10. nóvember 2023 17:32
„Miklu lengri og harðari skjálftar“ Grindvíkingar hafa fundið verulega fyrir síðdegisskjálftum á Reykjanesinu í dag. Stórir skjálftar hafa fundist víða frá því klukkan fjögur í dag. Innlent 10. nóvember 2023 17:28
Stór skjálfti fannst vel Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir um klukkan tíu mínútur fyrir fimm. Innlent 10. nóvember 2023 16:53