Opið bréf til Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum Gunnar, ég vona að þú getir svarað nokkrum spurningum. Ég er búin að vera búsett erlendis í áratugi og fylgist þar af leiðandi stopult með á Íslandi. Ég hef hins vegar rekið augun núna upp á síðkastið, í yfirlýsingar frá þér sem ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir. Skoðun 19. ágúst 2022 19:31
Flaug dróna eins nálægt og hægt er að komast gosinu Breski drónaljósmyndarinn Louis Houiller, náði nokkuð mögnuðu myndskeiði af eldgosinu í Meradölum á dögunum. Innlent 18. ágúst 2022 23:21
Gossvæðið opið í dag Opið verður fyrir ferðamenn að ganga í átt að eldgosinu í Meradölum í dag. Gossvæðinu var lokað í gær en lokunaraðgerðir gengu vel samkvæmt viðbragðsaðilum. Innlent 18. ágúst 2022 10:17
Mæla gegn því að taka hunda að gosstöðvunum Matvælastofnun (MAST) ræður fólki eindregið frá því að taka hunda og önnur dýr með að gosstöðvunum í Meradölum. Mengun getur haft afar skaðleg áhrif á dýrin. Innlent 17. ágúst 2022 16:29
Gossvæðið áfram lokað Gossvæðið í Meradölum verður áfram lokað í kvöld og í nótt. Tekin verður ákvörðun um hvenær svæðið verður opnað á fundi viðbragðsaðila klukkan hálf níu í fyrramálið. Innlent 17. ágúst 2022 15:18
Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs Innlent 17. ágúst 2022 12:01
Ekkert útivistarveður við gosstöðvarnar í dag Lokað er inn á gossvæðið í Meradölum í dag og verða allir sem ætla Suðurstrandarveginn stoppaðir og rætt við þá. Spáð er vonskuveðri í dag, allt að 23 metrum á sekúndu ásamt talsverðri rigningu. Innlent 17. ágúst 2022 09:56
Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. Innlent 16. ágúst 2022 20:29
Skellt í lás á morgun Þeim sem ætla að skoða eldgosið í Meradölum á morgun verður snúið við þar sem svæðinu verður lokað vegna slæms veður sem ganga á yfir svæðið. Innlent 16. ágúst 2022 19:36
Fór að gosstöðvunum á inniskónum því gönguskórnir voru of ljótir Tugir þúsunda hafa lagt leið sína að gosstöðvunum í Meradölum frá því að eldgos hófst þar fyrir tæpum tveimur vikum. Göngufólk hefur þó verið misvel búið og sumir lagt í hann ekki betur skóaðir en í inniskóm. Innlent 16. ágúst 2022 15:32
Verulega dregið úr hraunflæði Verulega hefur dregið úr hraunflæði við gosstöðvarnar í Meradölum. Samkvæmt niðurstöðum flugmælinga hefur flæðið farið úr 11 rúmmetrum á sekúndu yfir í 3 til 4 rúmmetra á sekúndu. Innlent 16. ágúst 2022 11:11
Gunni og Felix að bugast vegna hávaða frá þyrlum Gósentíð er nú hjá þyrlufyrirtækjum vegna gossins á Reykjanesi. En ekki eru allir kátir með ónæðið sem er því samfara; þeir eru reyndar fjölmargir sem vilja segja hingað og ekki lengra. Þeir Gunni og Felix skemmtikraftar eru þeirra á meðal. Innlent 16. ágúst 2022 10:38
Myndaveisla: Gosstöðvarnar eftir tvær vikur af eldgosi Rétt tæpar tvær vikur eru liðnar síðan eldgosið í Meradölum hófst og hefur það þegar tekið talsverðum breytingum. Enn er umferð um gosstöðvarnar talsverð en ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson, gerði sér ferð að gosstöðvunum í gær til að líta á síbreytilega náttúruna. Innlent 16. ágúst 2022 10:28
Lokað inn á gossvæðið á morgun Gas frá eldgosinu í Meradölum berst til norðurs í dag en spáð er sunnanátt, þrír til átta metrar á sekúndu, fyrir hádegi. Íbúar Vatnsleysustrandar gætu orðið varir við gas. Lokað verður inn á svæðið á morgun vegna slæmrar veðurspá en spáð er hvassviðri og stormi sunnan- og vestanlands á morgun með talsverðri rigningu. Innlent 16. ágúst 2022 09:57
Óvissuflugið þarf að enda Reykjanesskagi hefur enn á ný bært á sér. Jarðvísindamenn halda því fram að eldgosið í Meradölum og gosið í Geldingardölum gætu verið upphafið að löngu eldgosatímabili á Reykjanesskaga. Ekki er útilokað að þetta gostímabil gæti virkjað eldstöðvar nær Reykjavík þótt litlar líkur séu þó á því. Við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, en með vitneskju um mögulega ógn af hraunrennsli næstu ár er eðlilegt að við hugum að því hvaða uppbyggingu við viljum fjárfesta í á svæðinu. Skoðun 16. ágúst 2022 07:31
Tilkoma landvarða hjálpi en meira þurfi til Gert er ráð fyrir að tveir landverðir standi vaktina við gosstöðvarnar á virkum dögum en þrír um helgar. Efasemdir eru uppi um að tveir til þrír landverðir geti sinnt því starfi sem fjöldi björgunarsveitamanna gerir á degi hverjum. Fréttir 15. ágúst 2022 21:31
Geti kallað á aðkomu lögreglu að fara með börn að gosinu Umboðsmaður barna ítrekar að foreldrar eigi að gæta velferðar og öryggis barna sinna í tilefni barnabanns Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Börn yngri en tólf ára gömul mega ekki ganga að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 15. ágúst 2022 18:40
Gekk á reipi við eldgosið Ævintýramaðurinn og áhrifavaldurinn Jay Alvarez var staddur hér á landi í vikunni og heimsótti gosstöðvarnar í Meradölum. Hann setti reipi upp við bíl sinn, gekk yfir það og náði mögnuðu myndbandi af því. Lífið 15. ágúst 2022 16:24
Sjókæling á hrauni Er að furða mig á því af hverju ekki hefur heyrst neitt um þann möguleika að beita sjókælingu til að hefta framgöngu á hrauninu í Meradölum sem hugsanlega er að fara að renna alla leiðina niður að Suðurstrandavegi og þaðan hugsanlega í sjó fram. Skoðun 15. ágúst 2022 14:01
Hraunið þekur rúman ferkílómetra í Meradölum Niðurstöður mælinga úr Pleiades gervitunglingu frá því í gær sýna að hraunið úr eldgosinu þekur 1,25 ferkílómetra í Meradölum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Innlent 15. ágúst 2022 12:14
Tæplega sjö þúsund manns sáu gosið í gær Alls fóru 6.685 manns um gossvæðið í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu en lögreglan segir það mega gera ráð fyrir því að fjöldinn hafi verið mun meiri. Aldrei hafa fleiri gengið í átt að gosstöðvunum á einum sólarhring en teljarinn var settur upp í mars á síðasta ári er gosið í Geldingadölum hófst. Innlent 15. ágúst 2022 09:57
Lítið hægt að gera ef „menn hverfa í hraunið“ Það er nánast ógjörningur fyrir viðbragðsaðila við gosstöðvarnar í Meradölum að koma fólki til bjargar, ef það lendir í sjálfheldu úti á sjálfu hrauninu. Myndband sem sýnir ferðamenn hætta sér ískyggilega nálægt gígunum hefur vakið athygli. Innlent 14. ágúst 2022 19:16
Nyrsta gosopið lokað og metfjöldi á gosstöðvum 6.496 manns fóru og báru eldgosið í Meradölum augum í gær, samkvæmt talningu Ferðamálastofu, en það er mesti fjöldinn á einum degi frá því teljarinnar var settur upp í mars í fyrra. Nyrsta gosopið í Meradölum lokaðist í gær. Innlent 14. ágúst 2022 09:05
Gengu út á hraunið og upp að gígunum Myndband náðist í gær af fólki sem hafði gengið út á glænýtt hraun í Meradölum í gær og upp að gígunum. Fólkið stóð nærri hraunflæðinu þegar maður notaði dróna til að reka þau á brott. Innlent 14. ágúst 2022 08:40
Landverðir munu létta undir með björgunarsveitum við gosið Landverðir munu framvegis standa vaktina part úr degi til að létta undir með björgunarsveitum við gosstöðvarnar í Meradölum. Landsbjörg hefur kallað eftir því að geta losað sitt fólk undan sífelldri gæslu við gosstöðvarnar enda sjálfboðaliðarnir ekki óþrjótandi auðlind. Mikil umferð er við gosstöðvarnar og gistipláss í Grindavík eru full. Innlent 13. ágúst 2022 12:08
Kunna ekki skýringar á minni gosóróa Jarðvísindamenn telja ekki að nýjar gossprungur séu að opnast í Meradölum, líkt og talið var mögulegt í morgun. Samdráttur í gosóróa á svæðinu í morgun vakti grunsemdir vísindamanna. Innlent 13. ágúst 2022 09:50
Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu. Innlent 13. ágúst 2022 09:39
Næðisskikkjur og lekalausir pokar fyrir göngufólk í spreng Viðbúið er að fjöldi fólks leggi leið sína að gosstöðvunum í Meradölum um helgina, enda búið að bæta gönguleiðir og auka aðgengi að gosinu. Það eru þó ákveðnir hlutir sem einhverjir hafa áhyggjur af. Það eru klósettmálin. Innlent 12. ágúst 2022 22:01
Gönguleið A lokað í nótt Gönguleið A í átt að gosstöðvum í Meradölum verður lokað í nótt vegna framkvæmda. Göngufólk er vinsamlegast beðið um að notast við gönguleið C skyldi það ætla sér að ganga í átt að gosinu í nótt. Innlent 12. ágúst 2022 17:37
Ljósmöstur verða sett upp við gönguleiðina að gosinu á næstu dögum Á fimmta þúsund gekk að gosstöðvunum í Meradölum í gær samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Björgunaraðilar segja vel hafa gengið við gosið undanfarna daga þrátt fyrir þennan gríðarlega fjölda fólks og nú sé unnið að lagfæringu gönguleiðarinnar. Innlent 12. ágúst 2022 16:22