Gæti farið frá Liverpool til Real Madrid Roberto Firmino hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool en kannski ekki síðasta leikinn fyrir stórlið. Enski boltinn 31. maí 2023 09:01
Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. Fótbolti 31. maí 2023 07:00
Fyrrverandi landsliðsmaður Hollands grunaður um stórfellt kókaínsmygl Quincy Promes, leikmaður Spartak Moskvu og fyrrverandi leikmaður hollenska landsliðsins í fótbolta, er grunaður um að eiga þátt í stórfelldu kókaínsmygli til heimalandsins. Fótbolti 30. maí 2023 22:46
Pochettino hafi engan áhuga á því að halda Felix hjá Chelsea Mauricio Pochettino, nýráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, virðist hafa lítinn áhuga á því að halda portúgalska framherjanum Joao Felix innan raða félagsins. Fótbolti 30. maí 2023 21:31
Mikael á skotskónum er AGF stökk upp í þriðja sæti Mikael Neville Anderson skoraði annað mark AGF er liðið vann mikilvægan 3-1 útisigur gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 30. maí 2023 18:56
Liverpool ræður nýjan íþróttastjóra Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur ráðið Jörg Schmadtke sem nýjan íþróttastjóra félagsins. Fótbolti 30. maí 2023 18:32
Juve greiðir rúmar hundrað milljónir í sekt og sleppur við frekari refsingu Ítalska stórveldið Juventus hefur komist að samkomulagi við ítölsk knattspyrnuyfirvöld um að félagið muni greiða 718 þúsund evrur í sekt vegna fjármálamisferlis félagsins á undanförnum árum. Fótbolti 30. maí 2023 17:46
Gerði Napoli að meisturum, fékk sér tattú til minningar um það en hætti síðan Luciano Spalletti varð fyrsti þjálfarinn í 33 ár til að gera Napoli að Ítalíumeisturum en flestum að óvörum þá heldur hann ekki áfram með liðið. Fótbolti 30. maí 2023 16:31
„Veit ekki hvort ég get lifað án þín“ Eiginkona Sergios Rico, markvarðar Paris Saint-Germain, hefur miklar áhyggjur af honum en hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa dottið af hestbaki í fyrradag. Fótbolti 30. maí 2023 11:30
Neymar skrópaði í fögnuð PSG og fór frekar á Formúlu eitt í Mónakó Neymar varð franskur meistari í fimmta sinn á laugardaginn en hafði þó engan áhuga á því að fagna því með félögum sínum í Paris Saint Germain. Fótbolti 30. maí 2023 11:01
Lionel Messi og Xavi eru í stöðugu sambandi Xavi, þjálfari Barcelona, segist vera í góðu sambandi við Lionel Messi um mögulega endurkomu Argentínumannsins til Katalóníufélagsins en að þetta sé algjörlega undir Messi komið. Fótbolti 30. maí 2023 10:32
Bellingham gæti þurft að fara í aðgerð Jude Bellingham þurfti að horfa á sorglegt tap frá varamannabekknum þegar Borussia Dortmund missti af þýska meistaratitlinum um helgina. Fótbolti 30. maí 2023 10:00
Edwin van der Sar yfirgefur Ajax Edwin van der Sar er hættur sem framkvæmdastjóri hollenska félagsins Ajax. Félagið vildi halda honum en þessi fyrrum landsliðsmarkvörður Hollendinga var búinn að fá nóg og sagði starfi sínu lausu. Fótbolti 30. maí 2023 09:31
Ian Wright: Þetta myndi aldrei gerast í karlaboltanum Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, hefur hótað því að Evrópubúar fái ekki að sjá heimsmeistaramót kvenna í fótbolta í sjónvarpinu í sumar. Ástæðuna segir hann vera nísku sjónvarpsstöðvanna sem vilja ekki borga alvöru upphæðir fyrir réttinn. Fótbolti 30. maí 2023 09:00
Sögulegar breytingar á treyju Man United Enska knattspyrnuliðið Manchester United mun gera sögulega breytingu á einum af búningum liðsins á næstu leiktíð. Enski boltinn 30. maí 2023 07:00
Arnór Sigurðsson yfirgefur Norrköping í sumar Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson mun yfirgefa sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping í sumar þegar lánssamningur hans við félagið rennur út. Þetta staðfesti félagið fyrr í dag. Fótbolti 29. maí 2023 23:30
„Lögðum upp með að halda hreinu“ Keflavík gerði markalaust jafntefli við Breiðablik í Bestu-deild karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Liðið hefur nú haldið marki sínu hreinu tvo leiki í röð og tekist að klífa upp úr botnsæti deildarinnar. Íslenski boltinn 29. maí 2023 22:30
Arnar Grétarsson: Við setjum þetta aftur upp í mót Arnari Grétarssyni, þjálfara Vals, var létt í leikslok eftir sigur síns liðs gegn Víkingum. Valsmenn átt erfiða leiki undanfarið og tókst nú að vera fyrsta liðið til þess að stoppa sigurgöngu Víkinga. Íslenski boltinn 29. maí 2023 22:01
Myndband: Klæmint með klúður sem gleymist seint Klæmint Olsen brenndi af því sem má fullyrða að sé færi aldarinnar þegar Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í 9. umferð Bestu deildar karla. Færið má sjá neðar í fréttinni. Íslenski boltinn 29. maí 2023 21:30
Hlín bjargaði stigi fyrir Kristianstad | Birkir spilaði loks fyrir Viking Hlín Eiríksdóttir skoraði eina mark Kristianstad í 1-1 jafntefli við Hammarby í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. Birkir Bjarnason spilaði loks fyrir Viking í norsku úrvalsdeildinni þegar liðið steinlá gegn Bodö/Glimt. Fótbolti 29. maí 2023 20:01
Jakob Snær: Vonandi byrjunin á því sem við ætlum að sýna í sumar Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri gegn Fram á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 á 85. mínútu en þá skoraði Jakob þegar boltinn fór af honum og í markið eftir skot frá Þorra Mar Þórissyni. Hann innsiglaði svo sigur KA með marki í uppbótartíma eftir skyndisókn. Íslenski boltinn 29. maí 2023 19:01
Stýrði Napoli til langþráðs sigur en hættir samt í sumar Luciano Spalletti verður án efa í guðatölu hjá stuðningsfólki Napoli eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann mun þó ekki þjálfa liðið á næstu leiktíð. Fótbolti 29. maí 2023 17:45
FC Kaupmannahöfn danskur meistari annað árið í röð Íslendingalið FC Kaupmannahöfn er danskur meistari annað árið í röð eftir sigur á Viborg þar sem Nordsjælland tapaði 5-1 fyrir Bröndby. FCK er því tvöfaldur meistari þar sem liðið varð á dögunum bikarmeistari. Fótbolti 29. maí 2023 17:01
Næstu tveir sólarhringar mikilvægir í baráttu Rico Fjölskylda Sergio Rico, markmanns franska úrvalsdeildarfélagsins Paris Saint-Germain, sem nú liggur inn á gjörgæsludeild á sjúkrahúsi á Spáni, segir næstu tvo sólarhringa skipta höfuðmáli í baráttu leikmannsins. Fótbolti 29. maí 2023 14:31
Lærisveinar Freys unnu gríðarlega mikilvægan sigur Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby unnu í dag gríðarlega mikilvægan sigur á AaB í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Lyngby á möguleika á því að tryggja sér áframhaldandi veru í dönsku úrvalsdeildinni fyrir lokaumferð deildarinnar. Fótbolti 29. maí 2023 14:04
Ronaldo meðal stjarna Portúgal sem mæta til Íslands Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgal, hefur opinberað landsliðshópinn sem leikur gegn Íslandi og Bosníu í júní. Cristiano Ronaldo er í leikmannahópnum og mun mæta á Laugardalsvöll. Fótbolti 29. maí 2023 12:36
Alfreð í „skammarkróknum“ en Freyr er með plan A, B og C til reiðu Alfreð Finnbogason verður fjarri góðu gamni í dag er hann tekur út leikbann í gífurlega mikilvægum leik Lyngby gegn AaB. Sævar Atli Magnússon snýr hins vegar aftur í lið Lyngby og Freyr Alexandersson, þjálfari liðsins segist vera klár með plan A, B og C. Fótbolti 29. maí 2023 10:59
Biðst afsökunar eftir að myndband af honum fór í dreifingu Steven Berghuis, leikmaður hollenska úrvalsdeildarfélagsins Ajax, hefur beðist afsökunar eftir að myndband, sem sýndi hann slá til manns fyrir utan heimavöll Ajax, leit dagsins ljós. Fótbolti 29. maí 2023 10:31
Hetja Everton segist ekki vera nein hetja Abdoulaye Doucoure var hetja dagsins þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Everton gegn Bournemouth í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Markið tryggði liðinu ekki bara sigur í leiknum, heldur einnig áframhaldandi veru í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Fótbolti 28. maí 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 4-3 | FH-ingar upp fyrir HK eftir sjö marka leik Liðin í fjórða og fimmta sæti deildarinnar mættust í kvöld þegar FH tók á móti HK í 9. umferð Bestu deildar karla. Eftir spennandi leik þar sem mörkunum rigndi þá sigruðu heimamenn í FH 4-3. Fótbolti 28. maí 2023 22:56
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn