Guðlaugur Victor og félagar björguðu stigi á heimavelli Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í DC United sluppu með skrekkinn er liðið tók á móti Nashville SC í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Lokatölur 1-1 í leik þar sem heimamenn jöfnuðu á seinustu stundu. Fótbolti 14. maí 2023 10:46
Pochettino hafi samþykkt að taka við Chelsea Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino hefur samþykkt að taka við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea þegar yfirstandandi tímabili lýkur. Fótbolti 14. maí 2023 09:30
Fram færði hinni efnilegu Henríettu gjöf eftir að hún fótbrotnaði Henríetta Ágústsdóttir varð fyrir því óláni að fótbrotna í leik Fram og HK í knattspyrnu fyrir rúmlega tveimur vikum síðar. Frammarar ákváðu að færa henni gjöf í endurhæfingunni. Íslenski boltinn 14. maí 2023 08:01
De Gea fær gullhanskann sama hvað Markvörður Manchester Untied, David De Gea, hefur fengið á sig 41 mark í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enginn markvörður deildarinnar hefur hins vegar haldið marki sínu jafn oft hreinu og Spánverjinn. Enski boltinn 14. maí 2023 07:00
Segir að Mourinho gæti verið rétti maðurinn fyrir PSG José Mourinho, þjálfari Roma, hefur verið orðaður við stjórastöðu París Saint-Germain. Franska liðinu dreymir um árangur í Evrópu og þar eru fáir betri en Mourinho. Fótbolti 13. maí 2023 23:31
„Þreyta má aldrei vera notuð sem afsökun“ Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, segir að þreyta megi aldrei vera notuð sem afsökun en hans menn voru óhemju ferskir þegar þeir unnu Úlfana 2-0 í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag. Vika var frá síðasta leik liðsins og sást mikill munur á spilamennsku þessu. Enski boltinn 13. maí 2023 22:30
PSG hársbreidd frá meistaratitlinum | Dortmund heldur í við Bayern París Saint-Germain vann öruggan 5-0 sigur á AC Ajaccio í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu i kvöld. Í Þýskalandi vann Borussia Dortmund 5-2 sigur á Gladbach og er því enn í harðri baráttu við Bayern um meistaratitilinn. Fótbolti 13. maí 2023 21:31
Asensio frestaði fagnaðarlátum Börsunga Real Madríd vann Getafe 1-0 í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það þýðir að Barcelona þarf að bíða aðeins lengur þangað til kampavínið verður opnað. Fótbolti 13. maí 2023 21:00
Inter missti næstum niður þriggja marka forystu Inter komst 3-0 yfir gegn Sassuolo í síðasta leik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gestirnir skoruðu hins vegar tvívegis áður en Inter svaraði og vann 4-2 sigur. Fótbolti 13. maí 2023 20:45
Segir svo gott sem öruggt að Pochettino verði næsti stjóri Chelsea Ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano segir það nærri frágengið að Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino verði næsti knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Enski boltinn 13. maí 2023 20:00
Umfjöllun og viðtöl: KA – Valur 0-4 | Lærisveinar Arnars léku sér að Akureyringum Valur vann stórsigur á KA í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í dag, leikar enduðu 4-0 fyrir gestina. Arnar Grétarsson stýrði KA á síðustu leiktíð en stýrir nú Valsmönnum. Lærisveinar hans sýndu allar sínar bestu hliðar í leik dagsins. Íslenski boltinn 13. maí 2023 19:44
„Það vill enginn spila á svona fótboltavöllum“ Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þurfti að sætta sig við 1-0 tap á móti Breiðablik á Meistaravöllum í dag. Hann var svekktur eftir leikinn en þetta var baráttuleikur sem gat fallið báðum megin að mati Rúnars. Íslenski boltinn 13. maí 2023 19:15
Umfjöllun og viðtöl: KR – Breiðablik 0-1 | Gísli Eyjólfs hetja Blika Breiðablik vann torsóttan sigur á móti KR í Vesturbænum í dag í 7. umferð Bestu deildar karla. Gísli Eyjólfsson reyndist hetja Íslandsmeistaranna með marki á 82. mínútu leiksins og endaði leikurinn 1-0. Íslenski boltinn 13. maí 2023 18:30
Hörmungar vika AC Milan heldur áfram Ekki nóg með að tapa 2-0 fyrir nágrönnum sínum og erkifjendum Inter í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í vikunni þá tapaði AC Milan 1-0 fyrir Spezia í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í dag og minnkaði þar möguleika sína á að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð til muna. Fótbolti 13. maí 2023 17:55
Albert skoraði í tapleik sem skipti engu | Enn tapar Rosenborg Genoa hefur þegar tryggt sér sæti í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á næstu ári og því skipti tap liðsins í dag litlu sem engu máli. Fótbolti 13. maí 2023 17:30
Björn Berg: „Góð fyrirheit fyrir komandi átök“ Björn Berg Bryde skoraði fyrsta mark Stjörnunnar í 4-0 sigri gegn ÍBV á Samsung vellinum í Garðabæ í dag. Íslenski boltinn 13. maí 2023 17:01
Southampton fallið | Forest náði í stig á Brúnni Southampton er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir 0-2 tap á heimavelli gegn Fulham. Þá náði Nottingham Forest í dýrmætt 2-2 jafntefli gegn Chelsea og Crystal Palace vann 2-0 sigur á Bournemouth. Enski boltinn 13. maí 2023 16:31
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – ÍBV 4-0 | Heimamenn gengu frá Eyjamönnum í seinni hálfleik Stjarnan vann öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti ÍBV í Bestu-deild karla í knattspyrnu í dag. Stjörnumenn mættu með breytt þjálfarateymi til leiks eftir að Ágúst Gylfason var látinn fara nýverið, en Garðabæjarliðið gekk frá Eyjamönnum eftir hálfleikshléið. Íslenski boltinn 13. maí 2023 16:01
Man United aftur á sigurbraut og Meistaradeildarsætið í augsýn Eftir tvo tapleiki í röð hjá Manchester United vann liðið gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur er liðið tók á móti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Enski boltinn 13. maí 2023 15:58
Aston Villa heldur í Evrópudrauma en vandræði Tottenham halda áfram Aston Villa vann mikilvægan sigur er liðið tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-1 og liðin eru nú jöfn að stigum í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar, en þetta var fjórða tap Tottenham í seinustu sex deildarleikjum. Enski boltinn 13. maí 2023 15:55
Bayern styrkti stöðu sína á toppnum með stórsigri Bayern München er nú með fjögurra stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann öruggan 6-0 sigur gegn Schalke í dag. Fótbolti 13. maí 2023 15:23
Anna Björk og stöllur unnu stórsigur í Íslendingaslag Anna Björk Kristjánsdóttir og stöllur hennar í Inter unnu afar sannfærandi 4-0 sigur er liðið tók á móti Alexöndru Jóhannsdóttur og liðsfélögum hennar í Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 13. maí 2023 14:22
Mikael skoraði og lagði upp í naumum sigri Venezia Mikael Egill Ellertsson var allt í öllu fyrir Venezia er liðið vann nauman 3-2 sigur gegn Perugia í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Mikael lagði upp fyrsta mark liðsins áður en hann skoraði sjálfur það þriðja. Fótbolti 13. maí 2023 14:00
Kristensen bjargaði mikilvægu stigi fyrir Leeds Rasmus Kristensen reyndist hetja Leeds er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Newcastle í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 13. maí 2023 13:27
„Ef ég segi sannleikann þá verð ég sakaður um að væla“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, segir að erfitt gæti reynst fyrir hans menn að spila á grasvelli KR-inga þegar liðin mætast í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í dag. Fótbolti 13. maí 2023 13:02
Fyrirliði Stjörnunnar í tveggja leikja bann fyrir hártog Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann fyrir að toga í hár Caeley Lordemann, leikmanns ÍBV, í leik liðanna þann 2. maí síðastliðinn. Fótbolti 13. maí 2023 12:30
Segir góðar líkur á því að Rice yfirgefi West Ham í sumar David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham, viðurkennir að það séu góðar líkur á því að Declan Rice, miðjumaður liðsins, yfirgefi félagið í sumar. Fótbolti 13. maí 2023 10:45
Furðar sig á því að Eurovision setji leikjadagsrána úr skorðum Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, furðar sig á því að leik liðsins gegn Everton hafi verið frestað um einn dag sökum þess að Eurovision fer fram í Liverpool í kvöld. Fótbolti 13. maí 2023 10:00
Markaskorari FH heppinn að vera inni á vellinum eftir að hún lét olnbogann tala Shaina Ashouri skoraði eina mark FH er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Tindastóli á Sauðárkróki síðastliðinn sunnudag. Markið skoraði hún úr vítaspyrnu á 45. mínútu leiksins, en var stálheppin að hafa ekki fengið rautt spjald rúmum tíu mínútum áður. Fótbolti 13. maí 2023 08:00
Segir United geta lokkað marga gæðaleikmenn til sín í sumar Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið geti lokkað til sín gæðaleikmenn í sumar þrátt fyrir að enn ríki óvissa um hverjir eigendur félagsins verði. Fótbolti 13. maí 2023 07:01