Einkunnir úr sigrinum gegn Liechtenstein: Margir góðir en Aron og Jón Dagur báru af Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann vægast sagt öruggan 7-0 sigur er liðið heimsótti Liechtenstein í Vaduz í undankeppni EM 2024 í dag. Eftir að hafa aðeins skorað tvö mörk í fyrri hálfleik opnuðust flóðgáttirnar í þeim síðari og margir leikmenn íslenska liðsins geta gengið sáttir frá borði. Fótbolti 26. mars 2023 18:10
Stuð á Twitter: „Heyrist lítið í haters núna“ Venju samkvæmt var fólk duglegt að ræða landsleikinn á Twitter og jákvæðnin réð ríkjum aldrei þessu vant. Fótbolti 26. mars 2023 18:06
Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 0-7 | Fyrirliðinn gerði þrennu í markasúpu Ísland svaraði fyrir tapið gegn Bosníu með 0-7 sigri gegn Liechtenstein. Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, gerði þrennu. Davíð Kristján, Hákon Arnar og Mikael Egill skoruðu allir sitt fyrsta landsliðsmark. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Fótbolti 26. mars 2023 17:55
Kane og Saka sáu um Úkraínumenn Enska landsliðið í fótbolta átti ekki í teljandi erfiðleikum með Úkraínumenn þegar liðin mættust í C-riðli undankeppni EM á Wembley í Lundúnum í dag. Fótbolti 26. mars 2023 17:52
Tvær stoðsendingar Guðnýjar þegar Milan missti niður forystu í lokin Guðný Árnadóttir gaf tvær stoðsendingar þegar AC Milan gerði 3-3 jafntefli við Fiorentina í ítölsku deildinni í knattspyrnu í dag. Alexandra Jóhannsdóttir var í liði gestanna. Fótbolti 26. mars 2023 16:30
„Skammist ykkar“ segja dönsku blöðin eftir ótrúlegt tap Dana Ansi óvænt úrslit urðu í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu í dag þegar Danir töpuðu á útivelli gegn Kasakstan. Danir komust í 2-0 í leiknum en misstu niður forystuna á síðustu sextán mínútum leiksins. Fótbolti 26. mars 2023 15:41
Kristianstad byrjar tímabilið vel Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Kristianstad sem vann góðan 3-1 sigur í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Amanda Andradóttir kom einnig við sögu í leiknum. Fótbolti 26. mars 2023 14:59
Byrjunarlið Íslands: Tvær breytingar Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn við Liechtenstein á Rheinpark Stadion í Vaduz liggur fyrir. Arnar Þór Viðarsson gerir tvær breytingar frá leik fimmtudagsins. Fótbolti 26. mars 2023 14:35
„Virkilega erfitt“ Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson segir hafa verið gríðarerfitt að horfa á leik Íslands og Bosníu á fimmtudagskvöld. Aron var í leikbanni og sá leikinn af hliðarlínunni. Fótbolti 26. mars 2023 11:31
Vildi lítið tjá sig um breytingar Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, sagði ekki mikið um mögulegar breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn við Liechtenstein í dag. Liðið átti slakan leik í Bosníu á fimmtudag. Fótbolti 26. mars 2023 09:00
„Það var ekki hátt risið á landsliðsfyrirliðanum“ Þrír í teymi íslenska karlalandsliðsins eiga afar slæmar minningar frá Vaduz hvar Ísland sækir Liechtenstein heim í undankeppni EM í dag. Þar varð liðið niðurlægt fyrir fimmtán árum síðan. Ísland mætir Liechtenstein á ný í dag. Fótbolti 26. mars 2023 08:00
Frískir í fjallaloftinu Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á Rheinpark Stadion í Liechtenstein í dag fyrir leik við heimamenn á sama velli á morgun. Einbeiting einkenndi menn sem virðast staðráðnir í að bæta upp fyrir slæmt tap í Bosníu á fimmtudag. Fótbolti 25. mars 2023 23:01
32 ára gamli varamaðurinn Joselu skoraði tvö í sínum fyrsta leik Spánverjar unnu góðan 3-0 sigur er liðið tók á móti Noregi í fyrstu umferð undankeppni EM 2024 í kvöld í leik þar sem hinn 32 ára gamli Joselu stal fyrirsögnunum. Fótbolti 25. mars 2023 21:45
Dagný og stöllur steinlágu gegn United Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í West Ham máttu þola 4-0 tap er liðið heimsótti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 25. mars 2023 20:46
Íslendingalið Bayern á toppinn eftir sigur í Íslendingaslag Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar fyrir stórlið Bayern München er liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur gegn Wolfsburg í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 25. mars 2023 19:56
McTominay skoraði tvö fyrir Skota og Svisslendingar völtuðu yfir Hvít-Rússa Fjórum af sjö leikjum dagsins í undankeppni EM í knattspyrnu er nú lokið þar sem Skotar unnu meðal annars öruggan 3-0 sigur gegn Kýpur og Svisslendingar unnu 0-5 risasigur gegn Hvít-Rússum. Fótbolti 25. mars 2023 18:53
Önnur veikindi í íslenska hópnum Þórir Jóhann Helgason æfði ekki með íslenska karlalandsliðinu í Liechtenstein í dag vegna veikinda. Hann verður að líkindum ekki í hópnum í leik morgundagsins. Fótbolti 25. mars 2023 18:00
„Ég les mjög lítið af fréttum þegar ég veit þær eru um mig“ Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, segist lítið lesa af umræðunni um hans störf. Mikil neikvæð umræða hefur umlukið liðið síðan á fimmtudag. Fótbolti 25. mars 2023 17:42
Svona var blaðamannafundur Íslands í Vaduz Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands og Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði liðsins, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi landsliðsins í Vaduz í Liechtenstein í dag. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi. Fótbolti 25. mars 2023 17:13
Skallamark frá Söru Björk í góðum sigri Juventus Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka Juventus þegar liðið lagði Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 25. mars 2023 16:49
Stjarnan í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur í vítakeppni Stjarnan er komin í úrslit Lengjubikars kvenna eftir sigur á Þrótti Reykjavík í undanúrslitum í dag. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit en Stjarnan mætir Þór/KA í úrslitaleik. Fótbolti 25. mars 2023 16:07
UEFA rannsakar meinta spillingu og mútugreiðslur Barcelona Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið rannsókn á meintri spillingu og mútugreiðslum knattspyrnufélagsins Barcelona. Félagið hefur verið ákært fyrir að hafa greitt valdamiklum dómara andvirði 1.000 milljóna íslenskra króna til að tryggja sér hagstæða dómgæslu á 17 ára tímabili. Fótbolti 25. mars 2023 14:30
Líklegt byrjunarlið Íslands: Fáum forystu aftast Ísland mætir Liechtenstein í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2024 í Vaduz á morgun. Liðinu gekk ekki vel í fyrsta leik í Bosníu á fimmtudagskvöld og tapaði 3-0. Áhugavert verður að sjá hvort miklar breytingar verði á byrjunarliði liðsins á morgun. Fótbolti 25. mars 2023 14:30
„Vægast sagt farið fram með kostulegum óheilindum“ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar gagnrýnir ummæli Ómars Smárasonar samskiptastjóra KSÍ harðlega í tengslum við fréttaflutning af meintu kynferðisofbeldi leikmanna íslenska landsliðsins. Fótbolti 25. mars 2023 14:00
Fyrrverandi forsætisráðherra Svía kjörinn formaður sænska knattspyrnusambandsins Fredrik Reinfeldt er nýr formaður sænska knattspyrnusambandsins en þessi fyrrverandi forsætisráðherra Svía var kjörinn formaður á þingi sambandsins nú í morgun. Fótbolti 25. mars 2023 13:31
Skyldusigur gegn slöku liði Ísland á að vinna Liechtenstein örugglega í Vaduz í undankeppni EM 2024 á morgun. Gestgjafarnir hafa ekki unnið leik síðan í október 2020. Fótbolti 25. mars 2023 11:30
Nagelsmann opinn fyrir viðræðum við Tottenham Julian Nagelsmann er opinn fyrir viðræðum við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham en Þjóðverjanum var sagt upp hjá Bayern Munchen í vikunni. Framtíð Antoino Conte þjálfara Tottenham er í lausu lofti eftir slakt gengi að undanförnu. Enski boltinn 25. mars 2023 09:30
Håland mættur til Barcelona í meðhöndlun til að ná stórleiknum Erling Braut Håland, stjörnuframherji Manchester City, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Liverpool þann 1. apríl næstkomandi. Hann er mættur til Katalóníu en þangað sendir Man City leikmenn sína er þeir glíma við meiðsli. Fótbolti 25. mars 2023 08:01
Belgía fór létt með Svíþjóð en Zlatan stal fyrirsögnunum Öllum leikjum kvöldsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu er nú lokið. Færeyjar gerðu 1-1 jafntefli við Moldóvu á útivelli á meðan Belgía vann stórsigur í Svíþjóð. Zlatan Ibrahimović kom hins vegar inn af bekknum hjá Svíum og varð það með elsti leikmaður í sögu undankeppninnar. Fótbolti 24. mars 2023 22:31
Frakkland kláraði Holland á tuttugu mínútum Frakkland og Holland mættust í áhugaverðasta leik kvöldsins í undankeppni EM 2024. Bæði lið fóru langt á HM í Katar en töpuðu gegn Argentínu sem stóð uppi sem heimsmeistari. Leikur kvöldsins var aldrei spennandi en Frakkar kláruðu dæmið strax í fyrri hluta fyrri hálfleiks. Fótbolti 24. mars 2023 21:45