Tekinn með 7,5 kíló af maríjúana í töskunni Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir að smygla 7,5 kílóum af maríjúana til landsins. Innlent 3. júlí 2023 08:53
Vel hægt að fá ferðamenn út í Grímsey að vetrarlagi Lundinn, fuglalífið og heimskautsbaugurinn eru það sem helst dregur ferðamenn út í Grímsey. Gistihússeigandi segist hafa fulla trú á því að hægt sé laða ferðamenn út í eyna einnig að vetrarlagi. Innlent 2. júlí 2023 22:11
Flugferð Play til Kaupmannahafnar aflýst með stuttum fyrirvara Flugferð Play til Kaupmannahafnar klukkan 14.50 í dag var seinkað tvisvar og síðan aflýst með skömmum fyrirvara. Ástæðan var bilun sem kom upp í flugvélinni. Innlent 1. júlí 2023 23:03
„Hér verður ekki flugvöllur og hér verða ekki blokkir“ Bessastaðanes var formlega friðlýst í morgun eftir að forsetaembættið og bæjarstjórn Garðabæjar óskuðu eftir því. Forseti Íslands fagnar því að sjónarmið náttúruverndar og útivistar hafi ráðið för við ákvörðunartökuna. Forstjóri Umhverfisstofnunar segir friðlýsinguna þýðingarmikla fyrir líffræðilegan fjölbreytileika. Innlent 30. júní 2023 23:02
Kallar eftir að ríkið standi við fyrirheit í flugstefnu Óvissa ríkir um framhald flugkennslu hjá Flugakademíunni sem hefur sagt upp öllum samningum við starfsmenn skólans. Framkvæmdastjóri gagnrýnir að fyrirheitum í flugstefnu frá árinu 2019 hafi ekki verið fylgt eftir. Þá ætti flugnám að vera hluti af menntakerfinu og heyra undir menntamálaráðherra en ekki innviðaráðherra. Innlent 29. júní 2023 18:19
Vildu ekki Prettyboitjokko en fengu hann samt Mikil gremja og reiði er meðal útskriftarnema Menntaskólans við Sund eftir að útskriftarferð á vegum Tripical til Krítar á Grikklandi fór ekki eins og til stóð. Ítrekaðar breytingar á brottfaratímum, vandræði með farangur, lélegt upplýsingaflæði og óánægja með bókun tónlistarmannsins Prettyboitjokko er meðal þess sem nemendurnir hafa agnúast út í. Hafa margir farið fram á að fá hluta ferðakostnaðarins endurgreiddan. Neytendur 29. júní 2023 17:04
Mest verðlaunaða umhverfisslysið skaðar samgöngur þjóðar og lífsskilyrði Mest verðlaunaði meirihluti borgarstjórnar frá upphafi fyrir vanhæfni, yfirgang og skelfilega óstjórn fjármála samþykkti á dögunum breytt deiliskipulag fyrir Nýja Skerjafjörð á fölskum forsendum. Íbúar Skerjafjarðar hafa verið virtir að vettugi og gaslýstir þrátt fyrir mikla baráttu við að fá upplýsingar og svör við fyrirspurnum, áhyggjum og mótmælum. Skoðun 29. júní 2023 14:01
Vueling glataði töskunni: „Greiðslan er fáránlega lág“ Samgöngustofa hefur úrskurðað að farþegar flugfélagsins Vueling hafi ekki geta sýnt fram á að verðmæti glataðrar ferðatösku hafi verið rúmar 800 þúsund krónur. Spænska lággjaldaflugfélagið hefur boðið 75 þúsund. Innlent 29. júní 2023 07:46
Flugvél Air France beint til Keflavíkur Flugvél Air France breytti stefnu sinni á leið milli LAX í Los Angeles og Charles de Gaulle í París og er nú á leið til Keflavíkurflugvallar. Innlent 27. júní 2023 13:06
Starfsmaður fórst þegar hann sogaðist inn í flugvélahreyfil Bandarískur flugvallarstarfsmaður fórst á föstudag þegar hann sogaðist inn í flugvélahreyfil á San Antonio alþjóðaflugvellinum í Texas. Bandarísk flugmálayfirvöld greina frá þessu og segja óljóst á þessari stundu hvernig þetta atvikaðist. Erlent 26. júní 2023 17:02
Skoða perlur Íslands með því að hoppa út úr flugvél Ferðamenn velja sér mismunandi ferðamáta til að skoða Ísland. Einn sá óvenjulegasti er að sjá landið svífandi í fallhlíf. Innlent 25. júní 2023 21:56
Svona leit Keflavíkurflugvöllur út árið 1982 Flugstöð Leifs Eiríkssonar var vígð árið 1987 og urðu þá tímamót í flugsögu Íslendinga. Fram að því þjónaði Keflavíkurflugvöllur allri farþegaumferð, og þar voru aðstæðurnar öllu frumstæðari en við þekkjum í dag. Innlent 25. júní 2023 10:01
Buðu grunlausum manneskjum í tveggja ára afmælisfögnuð Play Flugfélagið Play bauð tveimur manneskjum af handahófi frá Washington DC í Bandaríkjunum til Íslands til þess að fagna tveggja ára afmæli flugfélagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu en myndbandið má sjá neðst í fréttinni. Lífið 24. júní 2023 14:55
Isavia semur um uppbyggingu hleðslustöðva í Keflavík Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem segir að um langtíma verkefni sé að ræða. Viðskipti innlent 23. júní 2023 13:17
Sigurður Ingi svarar fyrir ákvörðun um Skerjafjörð Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er meðal ræðumanna á fundi sem Flugmálafélag Íslands efnir til nú síðdegis um stöðu Reykjavíkurflugvallar. Í fundarboði segir að farið verði yfir núverandi stöðu og hvert stefnan sé sett varðandi flugvöllinn. Fundinum verður streymt beint á Vísi. Innlent 22. júní 2023 15:30
Malbika nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst núna síðdegis og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Flugvallarstjórinn segir að það muni gjörbreyta aðstöðunni. Innlent 20. júní 2023 22:50
Ölvaður flugmaður handtekinn í Skotlandi Flugmaður sem átti að fljúga vél flugfélagsins Delta frá Edinborg í Skotlandi til bandarísku borgarinnar New York var handtekinn vegna gruns um að vera ölvaður. Fresta þurfti fluginu þar sem flugmaðurinn var handtekinn þegar rúmur hálftími var í flugtak. Erlent 20. júní 2023 22:42
Reiknað með mikilli sölu á flugvélum í París Vikulöng flugsýning hófst í París í dag í fyrsta sinn frá því kórónuveirufaraldurinn skall á. Reiknað er með að gengið verði frá fjölda samninga um kaup og sölu á flugvélum á sýningunni fyrir stórar upphæðir. Erlent 19. júní 2023 19:31
Segir Icelandair hvorki bótaskylt né ábyrgt fyrir árekstrinum Flugrekstrarstjóri segir halla á Icelandair í skýrslu um árekstur sem flugvél félagsins lenti í á Heathrow í fyrra. Óskýru verklagi flugvallarins og samskiptaleysi milli starfsmanna hans sé um að sakast. Korean Air sé bótaskylt í málinu af því flugvél Icelandair var kyrrstæð. Innlent 16. júní 2023 23:59
Reykspúandi flugsveit þaut yfir viðmælendur í beinni Árlegur flugdagur fer fram á Akureyrarflugvelli á morgun, sautjánda júní. Einkaflugmenn hituðu upp með flughátíð á Melgerðismelum í Eyjafirði. Innlent 16. júní 2023 22:42
Flugstjóri Icelandair fylgdi ekki leiðbeiningum Flugvél Icelandair hafði ekki verið lagt almennilega í stæði á Heathrow flugvelli í Bretlandi þegar vængur flugvélar Korean air rakst í hliðarstýri á stéli flugvélarinnar. Í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa í Bretlandi segir að skortur á leiðsögn á flugvellinum vegna manneklu hafi einnig átt þátt í óhappinu. Innlent 16. júní 2023 11:01
Jómfrúin opnar dyr sínar í Leifsstöð Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur opnað dyr sínar á Keflavíkurflugvelli. Jakob Einar Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir markmiðið vera að fanga sömu stemningu og ríkt hefur á Lækjargötunni í áratugi. Viðskipti innlent 15. júní 2023 18:49
Áætlanir um fjórtán ný göng með gjaldtöku og uppbyggingu varaflugvalla Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum. Innlent 13. júní 2023 20:05
Verið undirbúin fyrir flugtak Það er fagnaðarefni að eitt af þeim málum sem varð að lögum á Alþingi Íslendinga í síðustu viku hafi verið frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um varaflugvallagjald. Skoðun 13. júní 2023 14:00
909 milljarðar í samgöngur og einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 útrýmt Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra að samgönguáætlun til næsti fimmtán ára gerir ráð fyrir að 909 milljarðar króna verði varið í samgöngur á tímabilinu. Auknu fjármagni verði varið í innanlandsflugvelli og einbreiðum brúm á hringveginum útrýmt. Innlent 13. júní 2023 13:20
Fjögur börn fundust eftir fjörutíu daga í frumskóginum Fjögur börn sem hafa vafrað allslaus í Amazon-regnkóginum í Kólumbíu undanfarna fjörutíu daga eftir flugslys fundust heil á húfi í gær. Erlent 10. júní 2023 08:43
Farþegar reiðir leiguflugvélum Icelandair Upp á síðkastið hafa nokkrar flugferðir Icelandair verið með óhefðbundnu sniði en félagið leigir nú flota frá búlgarska flugfélaginu Fly2Sky auk þess sem Dash8 Q400 vél úr innanlandsflugi var bætt við flotann. Flugvélarnar sem um ræðir eru að sögn ósáttra farþega minni, háværari og ekki er boðið upp á skemmtikerfi á sætisbökum, sem er eitt aðaleinkenni Icelandair flugvéla. Neytendur 9. júní 2023 12:16
Icelandair flýgur til Færeyja Icelandair tilkynnti Færeyjar sem nýjan áfangastað í dag. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku með morgunflugi út október á næsta ári. Viðskipti innlent 8. júní 2023 12:52
Farin af landi eftir að hafa verið hótað endurkomubanni Albanskur karlmaður á þrítugsaldri, Elio Hasani, sem meinuð var landganga í vikunni og haldið í flugstöðinni, ásamt fimmtán ára frænku sinni, í um þrjátíu klukkutíma hefur nú yfirgefið landið sjálfur. Innlent 8. júní 2023 12:42
Vilja allir fljúga? Með árunum finnst mér millilandaflug farið að verða minna og minna spennandi. Öryggisleitin á flugstöðinni er niðurlægjandi. Hnútur í maganum í flugtaki. Innilokunarkenndin í flugvélinni þrúgandi. Það fer hrollur um mig þegar ég hugsa um farþegaþotu sem upphitaðan þrýstiklefa á næstum hljóðhraða. Ef eitthvað klikkar, þá er maður dauður. Og nú er flugviskubitið verulega farið að naga mig. Skoðun 8. júní 2023 08:01