

Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Talsmaður kaupsýslukonunnar Michele Roosevelt Edwards Ballarin segir að hún hafi gert bindandi tilboð í hlutafjárútboði Icelandair. Samkvæmt heimildum fréttastofu hljóðar tilboðið upp á sjö milljarða króna.
Icelandair Group, Samtök atvinnulífsins, Flugfreyjufélag Íslands og ASÍ harma það að öllum starfandi flugfreyjum Icelandair hafi verið sagt upp hjá félaginu í júlí.
Þótt áætlanir Icelandair geri ráð fyrir að lánalínur með ríkisábyrgð verði ekki nýttar gæti þó svo farið undir lok næsta sumars ef flugið hefur þá ekki tekið við sér.
Michele Roosevelt Edwards Ballarin fjárfestir er komin til landsins til að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair. Ballarin braut væntanlega sóttvarnareglur en hún sást á kaffihúsi sólarhring eftir komu sína.
Tveggja daga hlutafjárútboði Icelandair lýkur klukkan fjögur síðdegis á morgun. Lífeyrissjóðirnir eiga 53,33 prósent í félaginu fyrir útboðið og ráða miklu um hvernig tekst til.
Á kynningarfundi Icelandair fyrir hlutafjárútboð félagsins sem hófst í morgun og líkur síðdefis á morgun kom fram að hluthafar gætu búist við sautján til fimmtíu prósenta ávöxtun að jafnaði á ári fram til ársins 2024. Áhugi lífeyrissjóðanna ræður miklu um hvernig til tekst í útboðinu.
Í meira en 20 ár hefur stór hluti af minni vinnu verið að kynna og selja Ísland sem áhugaverðan áfangastað ferðamanna fyrir ferðaheildsölum og ferðaskrifstofum út um allan heim.
Hlutafjárútboð Icelandair hefst í dag og í Fréttablaðinu segir að mikil óvissa sé um mögulega aðkomu lífeyrissjóðanna að útboðinu.
Eins og þekkt er hefur þurft að ráðast í ýmsar lausnir til þess að vinda ofan af húsnæðisvandanum og háu húsnæðisverði í borginni.
Arion banki hf. eignaðist glæsivillu Skúla Mogensen við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi í byrjun september.
Uppgangur í flugi og ferðaþjónustu síðasta áratuginn hefur gjörbylt efnahagslífi landsins, skapað verðmæti og störf, bætt lífskjör og haft góð áhrif á byggðaþróun. Samfara hröðum vexti hafa verðmæti innviða aukist til muna.
Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur skýrt fjárlaganefnd landsstjórnar Grænlands frá því að félagið sé að skoða þann möguleika að skera niður stærð fyrirhugaðrar flugstöðvar og að stytta flugbraut í Qaqortoq á Suður-Grænlandi.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, telur að stjórnvöld eigi að nýta næstu vikur til þess að meta ýmsar útfærslur af skimunum á landamærunum.
Svandís Svavarsdóttir kynnti tillögur að breytingum á veiruaðgerðum stjórnvalda á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Hin svokallaða Loftbrú, eða niðurgreiðsla á flugfargjöldum fyrir íbúa sem búa ákveðið langt frá höfuðborgarsvæðinu, er gríðarleg sóun á almannafé. Það sem meira er: Það er ekkert sem tryggir að Loftbrúin fljúgi ofan í vasa almennings.
Einn af stofnendum flugfélagsins Play hefur lagt fram kröfu um gjaldþrotaskipti flugfélagsins. Hann telur sig eiga inni 30 milljónir króna í formi vangoldinna launa.
Hlutfall virkra smita á landamærunum hefur tífaldast undanfarnar vikur. Sóttvarnalæknir telur aukninguna mega rekja til þess vaxtar sem kórónuveirufaraldurinn sé í erlendis.
Icelandair reiknar með hægum bata í rekstrinu á næstu mánuðum. Þannig geri áætlanir aðeins ráð fyrir að Icelandair fljúg tæplega helming þess flugs sem flogið var á árinu 2015 að sögn forstjórans.
Áætlanir Icelandair gera ráð fyrir að félagið verði komið í svipaða stöðu og það var í á þar síðasta ári og í fyrra eftir fjögur ár. Forstjórinn er bjartsýnn á allt að tuttugu og þriggja milljarða hlutafjáraukningu sem samþykkt var á hluthafafundi í dag.
Smári McCarthy telur Loftbrú einstaklega vanhugsað fyrirbæri og sér á því ótal vankanta.
Íbúar á landsbyggðinni sem eru með lögheimili fjarri höfuðborginni eiga frá og með deginum í dag kost á lægri flugfargjöldum til Reykjavíkur.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar á í dag klukkan eitt, þar sem kynna á skosku leiðina svokölluðu, sem mun reyndar fá nýtt nafn frá og með deginum í dag.
Hluthafafundur Icelandair verður haldinn á Hótel Nordica klukkan 16 í dag.
Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps segist ekki sjá hag sinn í því að sveitarfélagið taki yfir rekstur flugvallarins við bæinn af Isavia líkt og hefur verið til umræðu. Áréttað sé að það sé ekki hlutverk sveitarfélagsins að standa í slíkum rekstri.
Icelandair hefur gert samstarfssamning við breska flugfélagið easyJet þess efnis að Icelandair gerist aðili að stafrænni bókunarþjónustu easyJet, Worldwide by easyJet.
Opinn ársfundur Samorku verður haldinn í dag. Fundurinn hefst klukkan níu og er í beinni útsendingu hér á Vísi.
Farþegafjöldi hjá Icelandair jókst töluvert í byrjun sumars, þegar létt var á ferðatakmörkunum. Þá dróst hann aftur hratt saman þegar hert var á takmörkunum aftur frá og með 19. ágúst.
Íslenska ríkið greiddi Icelandair ehf. alls 2,874 milljarða í stuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti vegna 1.889 starfsmanna félagsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segist skeptísk á ríkisábyrgð á lánalínum til Icelandair. Hún segir nálgun ríkisstjórnarinnar valda sér vonbrigðum.
Flugvallafyrirtæki grænlensku landsstjórnarinnar, Kalaallit Airports, hefur frestað framkvæmdum við nýjan flugvöll við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands. Ástæðan er sögð sú að tilboð sem bárust reyndust öll verulega yfir fjárhagsramma verksins.