Kórdrengir vilja beint í B-deildina Kórdrengir hafa sett á fót handboltalið sem mun taka þátt í deildarkeppni HSÍ í vetur. Þeir hafa fengið inn í 2. deild karla en hafa sóst eftir því við handknattleikssambandið að fara beint upp í næst efstu deild, Grill66-deild karla. Handbolti 18. ágúst 2021 19:47
Formaður Þórs: Alusevski kostar ekki meira en íslenskur þjálfari Stevce Alusevski tók á dögunum við karlaliði Þórs frá Akureyri í handbolta. Alusevski þjálfaði seinast norður-makedónska stórliðið Vardar, og því voru margir hissa þegar ráðningin var tilkynnt. Árni Rúnar Jóhannesson, formaður handknattleiksdeildar Þórs, tók spjallið við blaðamann Vísis, og fór þá meðal annars yfir ferlið sem fór í að ráða þennan áhugverða þjálfara. Handbolti 17. ágúst 2021 19:43
Tveggja marka tap gegn Svíum Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum fæddum árið 2002 og fyrr mætti Svíum í fyrsta leik milliriðils á Evrópumóti U-19 landsliða. Lokatölur 29-27, Svíum í vil, og íslenska liðið á því ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitum. Handbolti 17. ágúst 2021 19:09
Andri Már fær fjögurra ára samning hjá þýska liðinu Stuttgart Íslenski unglingalandsliðsmaðurinn Andri Már Rúnarsson hefur gert fjögurra ára samning við þýska handboltaliðið TVB Stuttgart. Handbolti 16. ágúst 2021 10:45
Einar Jónsson segir að Olís deildin hafi ekki verið jafn sterk í langan tíma Einar Jónsson mun stýra Fram í Olís deild karla á komandi tímabili. Hann tekur við keflinu af Sebastan Alexandersyni, en Einar gerði Fram að Íslandsmeisturum árið 2013. Handbolti 13. ágúst 2021 19:16
Fór í kynleiðréttingu og er nú kominn á atvinnumannasamning hjá karlaliði Loui Sand, áður Louise Sand, hefur fengið samning hjá sænska handboltaliðinu Kärra HF. Handbolti 13. ágúst 2021 10:15
Valin best á Ólympíuleikunum en hefur lagt skóna á hilluna Anna Vyakhireva, ein skærasta stjarna rússneska landsliðsins í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Það kemur á óvart þar sem Anna er aðeins 26 ára gömul og var valin besti leikmaðurinn á Ólympíuleikunum þar sem Rússland tapaði fyrir Frakklandi í úrslitum. Handbolti 10. ágúst 2021 16:30
Björgvin Hólmgeirs hefur ekki tíma fyrir handboltann í vetur og er kannski alveg hættur Stjörnumenn eru búnir að missa einn sinn besta leikmann í handboltaliði félagsins eftir að Björgvin Þór Hólmgeirsson ákvað að hann verði ekki með á komandi tímabili. Handbolti 9. ágúst 2021 14:46
Frakkland Ólympíumeistari í fyrsta sinn Kvennalandslið Frakklands í handbolta varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Rússlandi í úrslitum í Tókýó í Japan. Frakkland vann tvöfalt í handboltanum á leikunum. Handbolti 8. ágúst 2021 10:01
Þórir hlaut tólftu verðlaunin sem þjálfari Noregs Kvennalandslið Noregs vann öruggan 36-19 sigur á Svíþjóð í leik liðanna um bronsið á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Noregur hlýtur því bronsið aðra leikana í röð. Handbolti 8. ágúst 2021 09:30
Víkingar styrkja sig þrefalt Víkingur R. hefur fengið þrefaldan lisðsstyrk fyrir komandi átök í Olís-deild karla. Markvörðurinn Jovan Kukobat kemur frá Þór, Benedikt Elvar Skarphéðinsson kemur frá FH, og Jón Hjálmarsson snýr aftur í Víkina frá Vængjum Júpíters. Handbolti 7. ágúst 2021 22:30
Frakkar hefndu fyrir tapið 2016 og eru Ólympíumeistarar í þriðja sinn Frakkland vann 25-23 sigur á Danmörku í úrslitum í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Frakkar hefna þar með fyrir tap fyrir Dönum í úrslitum á leikunum í Ríó fyrir fimm árum síðan. Handbolti 7. ágúst 2021 13:37
Spánverjar náðu bronsinu eftir háspennuleik Spánn hlaut bronsverðlaun í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Þeir spænsku lögðu Egypta naumlega, 33-31, í leiknum um þriðja sæti mótsins. Handbolti 7. ágúst 2021 10:00
Áhlaup norska liðsins kom aðeins of seint Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson stýrir, leikur um bronsið á Ólympíuleikunum í Ríó eftir tap fyrir Rússlandi, 26-27. Handbolti 6. ágúst 2021 13:38
Frakkar í úrslit en Kristín og Svíarnir leika um bronsið Frakkar eru komnir í úrslit í handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Svíum, 29-27. Handbolti 6. ágúst 2021 09:29
Grótta sækir liðsstyrk í serbnesku úrvalsdeildina Handknattleiksdeild Gróttu hefur fengið til lis við sig leikstjórnandann Igor Mrsulja fyrir komandi átök í Olís-deild karla. Mrsulja er 27 Serbi og kemur frá Kikinda Grindex í serbnesku úrvalsdeildinni. Handbolti 5. ágúst 2021 22:23
Danir í úrslit og geta varið Ólympíugullið Danir eru komnir í úrslit í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum eftir sigur á Spánverjum, 23-27. Danska liðið á því möguleika á að verja Ólympíutitilinn sem það vann undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar í Ríó 2016. Handbolti 5. ágúst 2021 13:35
Frakkar í úrslit á fjórðu Ólympíuleikunum í röð Frakkland er komið í úrslit í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Egyptalandi, 27-23. Handbolti 5. ágúst 2021 09:34
Kristín og sænsku stöllur hennar í fyrsta sinn í undanúrslit á Ólympíuleikum Svíþjóð er komið í undanúrslit handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í fyrsta sinn eftir sigur á Suður-Kóreu, 39-30. Í undanúrslitunum mæta Svíar Frökkum sem völtuðu yfir heimsmeistara Hollendinga, 32-22. Handbolti 4. ágúst 2021 13:20
Þórsarar orðlausir þegar Alusevski ákvað að slá til Margir ráku eflaust upp stór augu þegar Þór tilkynnti um ráðningu á nýjum þjálfara karlaliðs félagsins í handbolta í fyrradag. Sá heitir Stevce Alusevski og var síðast þjálfari norður-makedónska stórliðsins Vardar. Handbolti 4. ágúst 2021 11:01
Norsku stelpurnar hans Þóris spila enn og aftur um verðlaun Norska kvennalandsliðið í handbolta sem Þórir Hergeirsson stýrir er komið í undanúrslit á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Ungverjalandi, 26-22. Handbolti 4. ágúst 2021 07:01
Egyptar rúlluðu yfir strákana hans Alfreðs Egyptaland varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó með öruggum 26-31 sigri á Þýskalandi í dag. Handbolti 3. ágúst 2021 13:12
Draumur Dana um annað Ólympíugull lifir Danir eru komnir í undanúrslit í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir sigur á Norðmönnum, 31-25. Handbolti 3. ágúst 2021 09:34
Strákarnir hans Arons mættu ofjörlum sínum og frábær endasprettur Spánverja Strákarnir hans Arons Kristjánssonar í bareinska landsliðinu í handbolta eru úr leik á Ólympíuleikunum eftir tap fyrir Frakklandi, 42-28, í átta liða úrslitum í nótt. Spánverjar eru einnig komnir áfram í undanúrslit eftir dramatískan sigur á Svíum, 33-34. Handbolti 3. ágúst 2021 06:59
Frá einu stærsta liði Evrópu í Grill 66 deildina Þórsarar virðast stórhuga fyrir komandi keppnistímabil í Grill 66 deildinni en félagið tilkynnti í dag um ráðningu nýs þjálfara. Sá þjálfaði makedónska stórveldið Vardar Skopje á síðasta tímabili. Handbolti 2. ágúst 2021 17:28
Lærimeyjar Þóris með fullt hús stiga úr riðlinum Norska kvennalandsliðið í handbolta átti þægilegan dag á Ólympíuleikunum í Tókýó þegar þær mættu heimakonum í lokaumferð riðlakeppninnar. Handbolti 2. ágúst 2021 14:53
Lærisveinar Alfreðs tryggðu sig í 8-liða úrslit Þýska landsliðið í handbolta, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, er komið í 8-liða úrslit Ólympíuleikanna í Tókýó. Handbolti 1. ágúst 2021 12:21
Lærisveinar Arons áfram eftir dramatískan sigur Dags á Portúgal Lærisveinar Arons Kristjánssonar í handboltalandsliði Barein eru komnir í 8-liða úrslit á Ólympíuleikunum. Handbolti 1. ágúst 2021 10:56
Lærimeyjar Þóris enn með fullt hús stiga eftir sigur á heimsmeisturunum Norska kvennalandsliðið í handbolta vann góðan sigur á því hollenska á Ólympíuleikunum í dag. Handbolti 31. júlí 2021 14:30
Harpixið á hilluna eftir tuttugu ára feril með Stjörnunni Sólveig Lára Kjærnested mun ekki leika með Stjörnunni í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Handbolti 31. júlí 2021 10:01