
Lærisveinar Alfreðs með mikilvægan sigur á Ítalíu
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi unnu mikilvægan sigur á Ítalíu í milliriðli HM karla í handbolta.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi unnu mikilvægan sigur á Ítalíu í milliriðli HM karla í handbolta.
Eftir góðan sigur á Val í síðustu umferð unnu Haukakonur dramatískan eins marks sigur á ÍR í kvöld.
„Mér finnst við ennþá eiga inni einn gír en við erum búnir að gera þetta mjög fagmannlega hingað til og þurfum að gera það áfram,“ segir Elliði Snær Viðarsson, sem hefur, líkt og aðrir landsliðsmenn Íslands, leikið vel á HM í Zagreb.
Strákarnir okkar í íslenska karlalandsliðinu brostu hringinn á æfingu dagsins í keppnishöllinni í Zagreb. Enda engin ástæða til annars.
Norður-Makedóníumenn eru enn með í baráttunni um sæti í 8-liða úrslitum á HM, eftir öruggan sigur gegn Katar í dag, 39-34, í næstsíðustu umferð milliriðils II.
Noregur hélt möguleikum sínum á að komast í átta liða úrslit HM á lífi með sigri á Spáni, 25-24, í gær. Norðmenn gátu þó ekki leyft sér að gleðjast mikið eftir sigurinn því þeirra besti maður meiddist í leiknum gegn Spánverjum.
Landsliðsmenn Íslands voru verðlaunaðir eftir sigur gærkvöldsins með McDonald's hamborgurum. Þeir nutu þess vel að breyta til frá bragðlitlum kjúklingi á hótelinu.
Þeir Einar Jónsson og Bjarni Fritzson ræddu mikilvægi Viggós Kristjánssonar fyrir íslenska handboltalandsliðið í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar. Þeir segja að hann sé góður á báðum endum vallarins og passi vel inn í leikstíl íslenska liðsins.
Ítalir hafa hingað til ekki verið þekktir fyrir afrek sín á handboltavellinum en þeir hafa komið á óvart á heimsmeistaramótinu og eiga möguleika á að komast í átta liða úrslit. Það er ekki síst markverðinum Domenico Ebner að þakka.
Ísland sigraði Egyptaland, 24-27, í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta í gær. Íslendingar eru með sex stig í milliriðlinum og í góðri stöðu til að komast í átta liða úrslit.
Geggjaður sigur á Egyptum í fyrsta leik milliriðils hjá strákunum okkar var gerður upp þætti dagsins af HM í dag.
Einn leikmaður hefur sprungið út á HM í handbolta í ár og það er vinstri hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson sem hefur eignað sér stöðuna og hjálpað mikið til við draumabyrjun Íslands á heimsmeistaramótinu.
Ef Slóvenía réttir ekki fram hjálparhönd myndi fjögurra marka tap gegn Króatíu annað kvöld fella Ísland úr keppni á HM í handbolta, þrátt fyrir að strákarnir okkar hafi unnið alla leiki sína til þessa á mótinu og séu efstir í milliriðli IV með sex stig.
Það er ekki aðeins gaman hjá íslensku strákunum í leikjum því fjörið er líka mikið á æfingum liðsins þar sem keppnisskapið er stundum ekkert minna.
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson hefur átt magnað heimsmeistaramót og sýndi enn á ný mikilvægi sitt í frábærum sigri á sterku liði Egypta í gærkvöldi.
Ísland hóf veru sína í milliriðli á HM í handbolta með nokkuð þægilegum sigri á Egyptalandi. Strákarnir okkar hafa nú unnið alla leiki sína til þessa á mótinu og geta tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri á Króatíu á föstudaginn kemur.
Ævintýrið heldur áfram. Fjórir leikir, fjórir sigrar og allt sannfærandi. Ísland er einfaldlega eitt besta lið HM það sem af er móti. Magnað.
Íslendingar stigu stórt skref í átt að átta liða úrslitunum á HM í handbolta karla með sigri á Egyptum, 24-27, í milliriðli 4. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu stórvel í kvöld og nokkrir voru í heimklassa.
Ólafur Stefánsson var mjög ánægður með frammistöðu íslenska landsliðsins í sigrinum á Egyptum í kvöld en hann og sérfræðingar Ríkisútvarpsins sjá mikil þroskamerki á íslenska liðinu.
„Rosa góð. Það var kannski þannig aldrei nein spenna í þessu þó við höfum aldrei náð að slíta þá frá okkur,“ sagði Viggó Kristjánsson um sigur Íslands á Egyptalandi á HM í handbolta. Ísland er með fullt hús stiga í milliriðli eftir frábæra byrjun. Viggó segir menn þó þurfa að halda einbeitingu.
„Geggjuð, fannst ótrúlega gaman að spila þennan leik,“ sagði Elvar Örn Jónsson um tilfinninguna eftir fjórða sigur Íslands í röð á HM í handbolta.
„Við vorum að vinna Egypta! Við þurfum að átta okkur á í hvaða stöðu við erum komnir! Við erum komnir með sex stig og maður er að bilast af jákvæðni núna,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, í skýjunum eftir frábæran sigur gegn Egyptum á HM í handbolta í kvöld.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann mikilvægan þriggja marka sigur á Egyptum, 27-24, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Íslenska liðið hefur þar með unnið fjórða fyrstu leiki sína á mótinu.
Noregur vann Spán með minnsta mun á HM karla í handbolta, lokatölur 25-24.
„Þetta var frábær sigur, frábær leikur hjá mínu liði. Við náðum að fylgja eftir frábærri frammistöðu og það er mikilvægt að gera hlutina ekki bara einu sinni heldur aftur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari strax eftir sigurinn gegn Egyptum í kvöld, á HM í handbolta.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann frábæran sigur gegn Egyptalandi í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 á HM. Bæði lið tóku með sér fjögur stig úr riðlakeppninni en Ísland er nú efst í milliriðlinum með sex stig.
Gestirnir í Gróttu sáu aldrei til sólar þegar liðið mætti Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda í Olís-deild kvenna í handbolta, lokatölur 40-19.
Vísir hitti á Dag Sigurðsson, landsliðsþjálfara Króatíu, eftir sigur hans manna á Grænhöfðaeyjum. Gafst þá tækifæri til að spyrja hann út í það sem má lesa um á netinu síðustu daga.
Það verður seint sagt að Grænhöfðaeyjar hafi staðið í Króatíu þegar þjóðirnar mættust í milliriðli HM karla í handbolta. Þá gerðu Svíþjóð og Portúgal jafntefli.
Það hefur ekkert gengið að fá nýju landsliðstreyjuna í sölu fyrir stuðningsmenn íslenska liðsins. Þangað til í dag.