

HM í handbolta karla fer fram í Króatíu, Danmörku og Noregi dagana 14. janúar til 2. febrúar 2025.
„Það er mikil tilhlökkun að spila sinn fyrsta leik á stórmóti. Þetta hefur verið draumur síðan maður var lítill strákur þannig að þetta verður mikil skemmtun, vonandi,“ segir Þorsteinn Leó Gunnarsson sem þreytir frumraun sína á HM með íslenska karlalandsliðinu í handbolta í Zagreb.
Háskólinn í Reykjavík hitaði upp fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í HR stofunni, í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið leikur sinn fyrsta leik á mótinu í dag. Gestir HR stofunnar voru Patrekur Jóhannesson og Arnar Pétursson og þá kynnti Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, spálíkan sem hann hefur gert fyrir mótið.
„Tilfinningin er góð rétt fyrir mót,“ segir landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson við Vísi þegar rúmur sólarhringur var í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta.
Fyrstu mótherjar Íslands á HM í handbolta hafa litla reynslu af stórmótum og ættu ekki að reynast mikil hindrun. Í liði Grænhöfðaeyja finnast þó flottir leikmenn og einn þeirra skoraði ellefu mörk gegn Íslandi fyrir tveimur árum.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta hefur valið 17 manna hóp fyrir komandi Heimsmeistaramót. Ísland leikur fyrsta leik sinn á mótinu í kvöld gegn Grænhöfðaeyjum. Aron Pálmarsson er ekki skráður inn í mótið en hægt er að bæta honum við leikmannahópinn seinna meir.
Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu hefja leik á HM í Zagreb í dag. Fulltrúar Vísis eru mættir á staðinn og hafa áhugaverða ferðasögu að segja.
Ljóst er að fjölmargir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta hafa sett stefnuna til Zagreb í Króatíu, vegna HM, en þó er ekki búist við að margir verði á fyrsta leiknum, við Grænhöfðaeyjar í kvöld.
Hafsteinn Óli Berg Ramos Rocha verður í leikmannahópi Grænhöfðaeyja í kvöld er liðið spilar við Ísland í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta.
Kristján Andrésson, fyrrum landsliðsmaður Íslands og landsliðsþjálfari Svíþjóðar frá 2016 til 2020, telur að strákarnir okkar fari í undanúrslit á HM í handbolta. Ísland hefur leik gegn Grænhöfðaeyjum í Zagreb í dag.
Markvörðurinn síungi Björgvin Páll Gústavsson er sem fyrr í leikmannahópi íslenska landsliðsins en þar hefur hann verið síðan árið 2008.
Norðmenn töpuðu óvænt fyrsta leik á HM karla í handbolta fyrir liði Brasilíu í Bærum í útjaðri Oslóar í gærkvöld. Það er ekki á hverjum degi sem Evrópuþjóðir tapa fyrir liðum utan álfunnar á heimavelli.
Elliði Snær Viðarsson er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót karla í handbolta. Hann tók út rauðu spjöldin fyrir mót og sefur eins og ungabarn á hótelinu í Zagreb.
Dagur Sigurðsson byrjaði vel með króatíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld því liðið vann þá fjórtán marka sigur á Barein í fyrsta leik.
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans hjá Barein töpuðu stórt á móti Króatíu í fyrsta leik sinum á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld.
Króatía og Þýskaland unnu bæði fyrsta leik sinn á heimsmeistaramótinu í handbolta í kvöld en Dagur Sigurðsson og Alfreð Gíslason þjálfa landslið þessara tveggja þjóða.
Hollendingar og Egyptar röðuðu inn mörkum í fyrstu leikjum sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í dag en það var líka boðið upp á leik þar sem hvert mark var gulls ígildi.
„Þetta er fínt hótel, fínn matur, fín æfingaaðstaða. Þetta er bara topp,“ segir línumaðurinn Sveinn Jóhannsson sem kom óvænt inn í landsliðshóp Íslands fyrir komandi heimsmeistaramót. Hann kveðst afar spenntur fyrir komandi móti.
Miguel Martins, leikstjórnandi portúgalska handboltalandsliðsins, verður ekki með á HM eftir að hann féll á lyfjaprófi.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta æfði í íþróttahöll liðs Tresnjevka í króatísku höfuðborginni Zagreb í morgun. Á æfingunni tóku allir leikmenn fullan þátt að Aroni Pálmarssyni undanskildum, sem leikur ekki með liðinu fyrr en í milliriðil verður komið.
Svíar telja nýtt fyrirkomulag HM karla í handbolta afar ósanngjarnt. Jim Gottfridsson segir Svíþjóð eiga fyrir höndum mun erfiðara verk við að komast í úrslit mótsins, í samanburði við lið á borð við Frakkland og Ísland.
Dagur Sigurðsson og Aron Kristjánsson, gömlu liðsfélagarnir úr íslenska handboltalandsliðinu, leiða saman hesta sína á HM í handbolta í kvöld þegar lið Króatíu og Barein hefja keppni.
Ísland hefur keppni á HM karla í handbolta á morgun og því löngu tímabært fyrir aðdáendur liðsins að fara fram úr sjálfum sér í vangaveltum um leiðina að heimsmeistaratitlinum.
Það verður ekki annað sagt en Danmörk, ríkjandi heimsmeistari, byrji HM karla í handbolta af krafti. Liðið skoraði 47 mörk gegn annars slöku liði Alsír.
HM karla í handbolta hófst með tveimur leikjum. Ítalía vann þægilegan sigur á Túnis á meðan Frakkland fór létt með Katar.
Danski handboltasérfræðingurinn Rasmus Boysen hvetur fólk til að fylgjast sérstaklega vel með Viggó Kristjánssyni á heimsmeistaramótinu.
Jæja, nýtt ár og nýtt stórmót í handbolta. Strákarnir hefja leik á heimsmeistaramótinu á fimmtudaginn. Að baki eru tveir vináttulandsleikir gegn Svíþjóð en hvar stendur íslenska liðið eftir þá, svona korteri í mót?
Strákarnir okkar gætu enn þurft að glíma við landa sinn, Hafstein Óla Berg Ramos Rocha, í fyrsta leiknum á HM í handbolta. Hafsteinn hefur á ný verið kallaður inn í landsliðshóp Grænhöfðaeyja.
Alexander Blonz, markahæsti landsliðsmaður Noregs í handbolta á Ólympíuleikunum síðasta sumar sem og Evrópumótinu í ágúst, hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið.
Albin Lagergren var liði sænska handboltalandsliðsins í gær sem vann það íslenska í síðasta æfingaleik sínum fyrir heimsmeistaramótið í handbolta. Það munaði þó litlu að hann hefði aldrei fengið tækifæri til þess að spila á mótinu.
Ísland tapaði með tveimur mörkum í æfingaleik ytra gegn Svíþjóð, síðasta leik liðsins fyrir heimsmeistaramótið. Strákarnir okkar áttu erfitt uppdráttar sóknarlega, lentu langt eftir á í fyrri hálfleik og þurftu, þrátt fyrir betri spilamennsku í seinni hálfleik, að sætta sig við 26-24 tap.