Gunnar Magnús Jónsson: Við missum einn dag í hvíld Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflvíkinga, var afar svekktur með að hafa misst leikinn niður í 1-1 jafntefli gegn Breiðablik í kvöld. Hann vandar dómurum leiksins ekki kveðjurnar, en Selma Sól virtist vera rangstæð þegar hún skoraði jöfnunarmarkið. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 20:49
Guðmann tók í lurginn á samherja sínum Guðmann Þórisson hafði lítinn húmor fyrir því þegar Hörður Ingi Gunnarsson, samherji hans, var að dútla með knöttinn í eigin vítateig gegn Keflavík er liðin mættust í Kaplakrika. Guðmann lét Hörð Inga heyra það og bakvörðurinn svaraði fullum hálsi. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 15:00
Lof og last: Viktor Örlygur, Sölvi Geir, Kristinn Steindórs, andleysi og misheppnað boð Kópacabana Síðustu fjóra daga hefur heil umferð farið fram í Pepsi Max deild karla. Raunar voru tveir leikir sem hafði verið frestað fyrr í sumar en það er aukaatriði. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last úr síðustu sex leikjum deildarinnar. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 12:00
Sjáum hvernig hann gengur frá þessum leik Kristinn Steindórsson var allt í öllu er Breiðablik vann 2-0 útisigur á KA og tyllti sér á topp Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 10:01
Mörkin sem skutu Blikum á toppinn og halda Evrópubaráttu KR á lífi Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Breiðablik tyllti sér á topp deildarinnar með 2-0 útisigri á KA, KR heldur í vonina um Evrópusæti eftir 2-0 útisigur á Akranesi og þá gerðu FH og Keflavík markalaust jafntefli. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 08:00
Myndasyrpa: Valskonur tryggðu sér tólfta Íslandsmeistaratitilinn Valur er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu. Liðið tryggði sér titilinn með glæstum 6-1 heimasigri á Tindastól í gærkvöld. Hér að neðan má sjá myndir úr leiknum sem og fagnaðarlátunum eftir leik. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 07:31
Umfjöllun og viðtöl: KA - Breiðablik 0-2 | Blikar á toppinn eftir sigur fyrir norðan Breiðablik lyfti sér í efsta sæti Pepsi Max deildarinnar með sterkum 2-0 útisigri gegn KA þegar fjórar umferðir eru eftir. Norðanmenn eru hinsvegar nánast búnir að stimpla sig út úr toppbaráttunni. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 21:39
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - KR 0-2 | Skagamenn að renna út á tíma í fallbaráttunni Skagamenn fengu KR í heimsókn á Akranes í Pepsi-Max deild karla. Skagamenn að róa lífróður á botni deildarinnar en KR-ingar að gæla við baráttu um sæti í Evrópukeppni á næsta ári eftir góðan 2-0 útisigur. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 21:32
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Tindastóll 6-1 | Tólfti titill Valskvenna Valskonur tryggðu sér í kvöld sinn tólfta Íslandsmeistaratitil í fótbolta með öruggum sigri á botnliði Tindastóls, 6-1, í þriðja síðasta leik sínum í sumar. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 21:15
Sigurður Ragnar: Þessir strákar leystu hlutverkin sín með miklum sóma Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar þjálfara Keflavíkur, var ánægður eftir markalausa jafnteflið við FH í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:59
Umfjöllun og viðtöl: FH - Keflavík 0-0 | Bútasaumsvörn Keflvíkinga hélt í Krikanum FH og Keflavík gerðu markalaust jafntefli í Kaplakrika í frestuðum leik í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Þetta var annar leikur liðanna á fimm dögum en FH-ingar rúlluðu yfir Keflvíkinga suður með sjó á laugardaginn, 0-5. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:50
Kjartan Henry: Það kemur mér ekkert á óvart að Skagamönnum finnist eitthvað vera á móti sér KR fór og sótti þrjú stig á Akranes í kvöld þegar þeir mættu ÍA í Pepsi-Max deild karla. Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, var glaður í leikslok. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:49
„Rútuferðirnar voru örugglega hluti af þessu“ „Tvær rútuferðir. Ein á Húsavík og önnur á Krókinn. Eftir það var þetta pottþétt,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Vals, sposkur á svip þegar hann var spurður hvað hefði skilað liðinu titlinum. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:48
Óskar Hrafn: Mikilvægt að menn faðmi hana, umvefji hana og kunni að elska hana Óskar Hrafn þjálfari Breiðabliks var ánægður þegar honum var tjáð að toppsætið væri Breiðabliks eftir góðan 2-0 útisigur á KA í kvöld. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:46
„Þó að það blési á móti þá héldum við alltaf áfram“ „Mér líður frábærlega. Þetta er virkilega skemmtilegt,“ sagði Elín Metta Jensen, framherji nýkrýndra Íslandsmeistara Vals í fótbolta. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:23
Steven Lennon ekki meira með á tímabilinu Framherjinn Steven Lennon verður ekki með FH-ingum í lokaleikjum tímabilsins eftir að hann meiddist á ökkla gegn Keflvíkingum um síðustu helgi. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 18:51
Þórsarar tóku illa í beiðni stuðningssveitar Blika Stuðningsfólk Þórs Akureyrar hefur lítinn áhuga á að styðja lið Breiðabliks í leiknum gegn KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Svo virðist sem bæjarstoltið toppi ríginn sem ríkir á milli félaganna. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 15:01
Vængbrotið lið KA getur blandað sér í toppbaráttuna Í kvöld mætast KA og Breiðablik á Greifavellinum á Akureyri í leik sem gæti skipt sköpum í toppbaráttu Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 14:31
Valskonur geta orðið meistarar í tólfta sinn í kvöld Valskonur eiga góða möguleika á að fagna Íslandsmeistaratitli í kvöld þegar þær mæta botnliði Tindastóls á Hlíðarenda í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 10:31
Stuðningssveit Blika biður Þórsara um hjálp Kópacabana, stuðningsmannasveit Breiðabliks, hefur beðið um aðstoð fyrir leikinn mikilvæga gegn KA í kvöld. Sveitin hefur beðið gallharða Þórsara um að mæta með sér í stúkuna og styðja við bakið á Blikum er liðið mætir á Greifavöll í dag. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 1-0 | Hildigunnur þrumaði yfir Fylki Fylkir er áfram í fallsæti eftir 1-0 tap gegn Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í Garðabæ í kvöld, þegar liðin eiga aðeins þrjá leiki eftir á tímabilinu. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði sigurmark leiksins. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 20:50
„Ákveðið að djamma svolítið í kvöld og það tókst“ Kristján Guðmundsson var í ákveðnum „djammgír“ eftir 1-0 sigur Stjörnunnar gegn Fylki í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Sigurinn var afar verðskuldaður en Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoraði sigurmarkið þegar korter var til leiksloka með föstu skoti utan teigs. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 20:38
Kristinn framlengir til ársins 2023 Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til ársins 2023. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 19:30
Eldskírn í bakverði í sex stiga fallslag: „Var bara frábær í þessum leik“ Hinn ungi og efnilegi Óli Valur Ómarsson lék í stöðu hægri bakvarðar í fallslag Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Óli Valur, sem leikur vanalega mun framar á vellinum, stóð sig með sóma en farið var yfir frammistöðu hans í Stúkunni að leik loknum. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 13:00
„Átti erfitt með að einbeita mér og muna hvað hafði gerst í leiknum“ Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður Stjörnunnar, þurfti að fara af velli í 2-0 sigri Garðabæjarliðsins á Fylki í Pepsi Max-deild karla í gær vegna heilahristings. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 12:01
Sjáðu mörk Stjörnunnar og umræðuna um markið sem var dæmt af Leikni: „Fyrir mér hefur hann ekki áhrif á leikinn“ Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Stjarnan vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Fylki en fyrir leik voru bæði lið aðeins þremur stigum frá fallsæti. Leiknir Reykjavík og HK gerðu þá markalaust jafntefli þar sem mark var dæmt af Leikni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 08:31
Slysið haft mikil áhrif á feril Sölva: „Bíllinn flaug 40 metra“ Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings Reykjavíkur, tilkynnti í viðtali við Stöð 2 í gær að yfirstandandi leiktíð væri hans síðasta á ferlinum. Sá ferill hefur að miklu leyti einkennst af meiðslum sem rekja má aftur til bílslyss sem hann lenti í ungur að árum. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Garðbæingar unnu fallslaginn Stjarnan steig stórt skref frá fallsvæðinu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta með 2-0 heimasigri á Fylki í kvöld. Fylkismenn eru í bráðri hættu eftir að hafa leikið sex leiki í röð án sigurs. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 22:10
„Þetta var góður vinnusigur hjá okkur og við spiluðum vel“ Stjörnumenn unnu 2-0 sigur á Fylki í Pepsi-Max deild karla á heimavelli í Garðabænum í kvöld. Þorvarldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var léttur í leikslok. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:50
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Þór/KA 1-0 | Þróttarar sigruðu í kaflaskiptum leik Þróttur og KA/Þór mættust í 15. umferð Pepsi Max deildar kvenna á Eimskipsvellinum í kvöld. Kaflaskiptur leikur þar sem bæði lið skiptust á að taka frumkvæði. Þróttur kom sér yfir um miðbik seinni hálfleiks og lokatölur því 1-0. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:28