Ekki stendur til að byrja að bólusetja börn Ekki stendur til að breyta forgangsröðun í bólusetningu við Covid-19 hér á landi eða hefja bólusetningar á börnum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Innlent 25. mars 2021 12:00
Kári vill fjölga sóttkvíardögum milli skimana á landamærum Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar vill fjölga sóttkvíardögum á milli fyrri og seinni sýnatöku á landamærunum. Þá ætti að afnema með öllu skyldu útlendinga á atvinnulaysisbótum til að koma reglulega til landsins til að staðfesta að þeir séu enn atvinnulausir. Innlent 25. mars 2021 11:57
AstraZeneca „gott, virkt og öruggt“ fyrir 70 ára og eldri Það verður engin meiriháttar röskun á bólusetningaráætlun yfirvalda vegna AstraZeneca, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Eina breytingin er sú að heilbrigðisstarfsmenn sem eru yngri en 65 eða 70 ára fá önnur bóluefni. Innlent 25. mars 2021 11:52
Fjölmargir foreldrar halda börnum sínum heima og hljóðið þungt í leikskólakennurum Hljóðið er þungt í leikskólakennurum að sögn formanns félags leikskólakennara. Hann segir stjórnvöld taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum fram að páskafríi. Formaður skóla- og frístundasviðs segir að fámennt verði á leikskólum í dag og á morgun. Fjölmargir foreldrar hafi ákveðið að halda börnum sínum heima. Innlent 25. mars 2021 11:34
Tuttugu greinst smitaðir í tengslum við klasasmit og um 500 í sóttkví Enn hefur ekki tekist að rekja klasasmit í fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu en um 500 manns hafa þurft að fara í sóttkví vegna smitsins og um 20 greinst jákvæðir, þar af voru sex utan sóttkvíar. Innlent 25. mars 2021 11:33
Tíu prósent smitaðra gætu þurft að leggjast inn: Aftur safnað í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar Heilbrigðisyfirvöld gera ráð fyrir að allt að 10 prósent þeirra sem veikjast af breska afbrigði SARS-CoV-2 muni þurfa að leggjast inn á spítala. Verið er að vinna í að styrkja getu Covid-19 göngudeildar og getuna til að taka á móti börnum. Innlent 25. mars 2021 11:29
Engar upplýsingar um fleiri smit í Hlíðaskóla Skólastjórnendum í Hlíðaskóla í Reykjavík hafa ekki borist upplýsingar um að fleiri nemendur eða starfsmenn hafi smitast af kórónuveirunni. Innlent 25. mars 2021 11:22
Bíða svara UEFA en ef að Þjóðverjar hafa fjórtán menn ætti leikurinn að fara fram Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að það sé í höndum UEFA að ákveða hvort að leikur Íslands og Þýskalands fari fram í Duisburg í kvöld, eftir að smit greindist í þýska landsliðshópnum. Fótbolti 25. mars 2021 11:06
Danir bíða lengur með bóluefni AstraZeneca Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að framlengja tímabunda stöðvun á notkun bóluefnis AstraZeneca fram í miðjan apríl. Notkunin var stöðvuð vegna tilkynninga um blóðtappa hjá fólki sem hafði fengið efnið fyrir um tveimur vikum. Erlent 25. mars 2021 11:03
Átta greindust innanlands og allir í sóttkví Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. Fimm greindust á landamærum. Innlent 25. mars 2021 10:52
Uppfært: Enginn úr Laugarnesskóla greindist með veiruna í gær Skólastjórnendur í Laugarnesskóla hafa fengið þær upplýsingar að enginn nemandi hafi greinst í sýnatöku vegna kórónuveirunnar í gær. Áður töldu þeir sig vita að einhverjir hefðu greinst. Innlent 25. mars 2021 10:22
Svona var 171. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Fundirnir hafa undanfarnar vikur verið á fimmtudögum og því um reglulegan fund að ræða. Innlent 25. mars 2021 10:07
Ríkisstjórinn sagður hafa hyglað fjölskyldu við skimun Fjölskylda Andrews Cuomo, ríkisstjóra New York, og aðrir vel tengdir einstaklingar fengu forgang í skimun fyrir kórónuveirunni við upphaf faraldursins þar í fyrra. Á sama tíma áttu almennir borgarar í ríkinu erfitt með að komast í skimun. Erlent 25. mars 2021 09:37
Leikskólabörn í Laugarnesi í úrvinnslusóttkví Leikskólabörn og starfsfólk leikskólanna Laugasólar og Hofs í Laugarneshverfi í Reykjavík eru komin í úrvinnslusóttkví. Innlent 25. mars 2021 08:32
Smit í fjórum grunnskólum í Reykjavík Nemandi í unglingadeild Hlíðaskóla greindist með kórónuveiruna í gær og því hefur verið ákveðið að senda alla nemendur skólans í 8., 9. og 10. bekk í sóttkví. Þetta kom fram í bréfi skólastjórnenda til foreldra í gærkvöldi. Innlent 25. mars 2021 07:54
Hörðustu samkomutakmarkanir til þessa taka gildi Hörðustu sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins tóku gildi á miðnætti. Aðgerðirnar ná til landsins alls. Neyðarstig almannavarna hefur verið virkjað og þá er Landspítalinn kominn á hættustig. Innlent 25. mars 2021 07:10
Þessar fjórar ástæður geta gert fólk örmagna á fjarfundum Hertar sóttvarnarreglur leiða enn fleira starfsfólk heim í fjarvinnu, svo ekki sé talað um námsfólk á öllum aldri. Það er því ekki úr vegi að rifja aðeins upp þau einkenni rafrænnar þreytu sem allir þurfa að vera vakandi yfir og Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, fór yfir með okkur á dögunum. Atvinnulíf 25. mars 2021 07:01
Geta ekki fylgst með hvort sóttkvíarbrjótar sæki gosstöðvarnar heim Lögreglan á Suðurnesjum hefur ekki sérstaklega augun á því hvort fólk sem sækir gosstöðvarnar í Geldingadal heim eigi að vera í sóttkví. Innlent 25. mars 2021 06:44
Hættustig, neyðarstig og alls konar bannað Það er óhætt að ætla að hertar sóttvarnaaðgerðir sem kynntar voru í dag og taka gildi á miðnætti hafi verið mörgum vonbrigði. Aðgerðirnar eru þær hörðustu sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins og ná til landsins alls. Til viðbótar við hertar aðgerðir hefur hættustigi verið lýst yfir á Landspítala og neyðarstigi almannavarna hefur sömuleiðis verið lýst yfir. Innlent 24. mars 2021 23:54
Nemandi í Laugalækjarskóla greindist með veiruna Nemandi í 8. bekk í Laugalækjarskóla hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Þetta staðfestir Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla, í samtali við Vísi. Ákveðið hefur verið að allir nemendur skólans verið sendir í sóttkví fram á mánudag og þeir kennarar sem kenndu umræddum bekk auk annars starfsfólks skólans. Innlent 24. mars 2021 22:42
Hættir við hertar páskaaðgerðir og biðst afsökunar Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur fallið frá áformum um enn harðari aðgerðir yfir páskana aðeins rúmum sólarhring eftir að tilkynnt var um þær. Merkel segist hafa gert mistök og að hún beri ábyrgð á U-beygjunni. Erlent 24. mars 2021 22:00
Leikskólum lokað til hádegis á morgun og kennarar vilja skella í lás Stjórn félags leikskólakennara segir stjórnvöld taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum fram að páskafríi. Reykjavíkurborg hefur tekið ákvörðun um að allir leikskólar borgarinnar verði lokaðir til hádegis á morgun. Innlent 24. mars 2021 21:22
Útflutningsbann ESB á bóluefni á ekki við um Ísland: „Ekki boðlegt og brot á EES-samningnum“ Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að hertar reglur Evrópusambandsins sem kynntar voru í dag og er ætlað að takmarka útflutning á bóluefni gegn covid-19 frá sambandinu eigi ekki við um Ísland. Hann segir ekki boðlegt að annað hafi mátt ráða af yfirlýsingu frá sambandinu, enda myndi það fela í sér skýrt brot á EES-samningnum. Innlent 24. mars 2021 21:12
Bjartsýni sem ríkti hjá ferðaþjónustunni er á bak og burt Hertar samkomutakmarkanir hafa áhrif á margar greinar atvinnulífsins en sú grein sem hefur orðið fyrir einna mesta áfallinu er ferðaþjónustan. Það ríkti bjartsýni í geiranum í síðustu viku en það hefur breyst eftir fréttir dagsins. Innlent 24. mars 2021 21:00
Frétti af smitum skólafélaga í gegnum snapchat Marta Maier er í 6. bekk í Laugarnesskóla og því í sóttkví fram að helgi eins og allur árgangur skólans. Tólf börn í áranginum hafa greinst með kórónuveiruna og voru nemendur í Laugarnesskóla líklega fyrst að frétta af smitunum í gærkvöldi. Meira að segja á undan sóttvarnayfirvöldum. Innlent 24. mars 2021 21:00
Það er komið vor Því miður erum við enn á ný að hlaupa í skjól. Við fórum úr jólakúlunni í að halda okkur í páskaeggi næstu þrjár vikur. Íslenska þjóðin er vön því að búa við óútreiknanlegt veður. Þessi faraldur hagar sér með svipuðu móti. Nú er ekkert annað í boði en að tryggja aðstæður, fara í skjól og standa af sér veðrið. Skoðun 24. mars 2021 20:26
Neyðarstigi almannavarna lýst yfir Ákveðið hefur verið að færa almannavarnastig úr hættustigi og upp í neyðarstig vegna kórónuveirufaraldursins. Síðast var neyðarstig í gildi hér á landi 12. Febrúar en þann dag var neyðarstig lækkað niður á hættustig. Samkvæmt tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú í kvöld hefur verið ákveðið að færa almannavarnastigið aftur upp á neyðarstig. Innlent 24. mars 2021 20:21
Fermingarbörn í mikilli óvissu annað árið í röð Vegna nýrra sóttvarnareglna sem kynntar voru í dag og taka gildi á miðnætti er óvíst hvort verði úr fermingum á næstunni. Fermingartíminn er við það að hefjast en pálmasunnudagur er 28. mars, næsta sunnudag. Prestur í Laugarneskirkju segir allar fermingar sem fara áttu fram á næstunni frestast þar sem öll fermingarbörn kirkjunnar séu nú í sóttkví. Innlent 24. mars 2021 20:01
Ljóst að einstaklingsbundnar sóttvarnir hafi brugðist Sóttvarnalæknir segir ekkert annað hafa komið til greina en að grípa til hörðustu mögulegu aðgerða nú þegar fjórða bylgja faraldursins er yfirvofandi. Það hafi sýnt sig síðasta árið að minna íþyngjandi aðgerðir hafi ekki borið tilsettan árangur. Innlent 24. mars 2021 19:42
Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í skipið Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í súrálsskipið sem kom til Mjóeyrarhafnar á Reyðarfirði á laugardaginn í dag til að meta líðan og ástand skipverjanna sem þar eru í einangrun, smitaðir af covid-19. Enginn þeirra mun vera alvarlega veikur. Innlent 24. mars 2021 19:16
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent