„Við verðum bara að bregðast við“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að hertar aðgerðir vegna kórónuveirunnar hér á landi verði kynntar í dag. Heimir Már Pétursson, fréttamaður okkar, náði tali af Svandísi fyrir ríkisstjórnarfund sem nú stendur yfir í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu. Innlent 24. mars 2021 13:22
„Ekki útilokað að það sé smit einhvers staðar annars staðar“ Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna, segir erfitt að segja til um hversu mikið samfélagslegt smit er orðið eða hvort fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin. Innlent 24. mars 2021 12:34
Kortleggja áhrif hópsýkingar á skólastarf Ellefu nemendur við Laugarnesskóla greindust með Covid-19 smit eftir sýnatöku gærdagsins. Í heild hafa því þrettán smit greinst í skólanum, tólf nemendur og einn kennari. Innlent 24. mars 2021 12:26
Sálræn vandamál í kjölfar COVID-19 Óvissan er ennþá töluverð í þjóðfélaginu um þessar mundir í tengslum við COVID-19. Staða smita breytist ört og mikið óöryggi um framhaldið – erum við að ná tökum á veirunni – er allt að fara úr böndunum aftur? Þessi óvissa getur skapað óöryggi hjá fólki og ótta um sig og sína nánustu, fjölskyldu, vini, kunningja og samstarfsfólk. Skoðun 24. mars 2021 12:01
„Ég held að fjórða bylgjan sé komin hér í öllu sínu veldi“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að fjórða bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin hér á landi. Hann segir að tími sé kominn til þess að skella öllu í lás og vill sjá sambærilegar samkomutakmarkanir og voru þegar þær voru sem harðastar fyrr í vetur. Innlent 24. mars 2021 11:46
Tillögurnar frá Þórólfi komnar til Svandísar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur skilað minnisblaði um tillögur að aðgerðum innanlands til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Þetta staðfestir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, í samtali við Vísi. Innlent 24. mars 2021 11:40
Ellefu nemendur Laugarnesskóla greindust í gær Ellefu nemendur Laugarnesskóla greindust með kórónuveiruna í gær. Björn Gunnlaugsson aðstoðarskólastjóri segir að „lokatölur“ hafi borist nú um klukkan 11. Innlent 24. mars 2021 11:30
ESB hyggst takmarka útflutning á bóluefni Ríki utan Evrópusambandsins þurfa sérstakt leyfi til þess að fá að flytja inn bóluefni gegn kórónuveirunni þaðan samkvæmt hertum takmörkunum sem búist er við að verði kynntar í Brussel í dag. Takmarkanirnar eru taldar koma harðast niður á Bretlandi og Bandaríkjunum. Erlent 24. mars 2021 10:55
Sautján greindust innanlands og þrír utan sóttkvíar Sautján greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórtán þeirra sem greindust voru í sóttkví, en þrír utan sóttkvíar. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á einum degi síðan 30. nóvember. Innlent 24. mars 2021 10:54
Ríkisstjórnin fundar um hertar aðgerðir innanlands Ríkisstjórnin kemur saman til aukafundar síðar í dag til að ræða tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um hertar aðgerðir innanlands vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Innlent 24. mars 2021 10:31
Kári vill að stjórnvöld skelli öllu í lás Sautján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru utan sóttkvíar og hinir fjórtán í sóttkví. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, vill að stjórnvöld skelli öllu í lás. Innlent 24. mars 2021 09:49
Vaktin: Ráðherrar leggjast yfir tillögur Þórólfs og kynna aðgerðir Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu í morgun til aukaupplýsingafundar klukkan 11 í dag. Hálftíma síðar var hætt við fundinn. Innlent 24. mars 2021 09:31
Tímasetningin „eins slæm og hugsast getur“ Skólastjóri Laugalækjarskóla segir að skimunarsóttkví sem allir nemendur skólans hafa verið sendir í á morgun, 24. mars, gæti varla hafa komið á verri tíma. Árshátíð 8.-10. bekkja skólans, hápunktur ársins, átti að fara fram á morgun en hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ástandsins. Innlent 24. mars 2021 00:13
Allir nemendur Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla í úrvinnslusóttkví Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla í Reykjavík fara í úrvinnslusóttkví á morgun, miðvikudaginn 24. mars. Gripið er til þessa ráðstafana vegna fjölgunar kórónuveirusmita meðal nemenda í Laugarnesskóla. Allur árgangur 6. bekkjar í Laugarnesskóla, sem og 5. flokkur karla í knattspyrnu hjá Þrótti, er jafnframt í sóttkví. Innlent 23. mars 2021 22:43
565 tilvik mögulegra aukaverkana tilkynnt Lyfjastofnun Lyfjastofnun hafa borist 565 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Flestar þeirra, eða 529, eru flokkaðar „ekki alvarlegar“ en 36 „alvarlegar“. Innlent 23. mars 2021 21:33
Smit staðfest í fjórum af fimm bekkjum Að minnsta kosti þrír nemendur í Laugarnesskóla greindust með kórónuveiruna í dag. Þeir voru allir í sóttkví. Áður hafði einn nemandi auk kennara greinst með veiruna í skólanum. Smit eru nú staðfest í fjórum af fimm sjöttu bekkjum skólans. Innlent 23. mars 2021 20:51
Ný bylgja muni brotna á varnargarði bólusettra einstaklinga „Eftir á að hyggja er eflaust margt sem við vildum óska að við hefðum vitað og margt sem við vildum óska að við hefðum gert öðruvísi, eftir á að hyggja, af því að við vorum að berjast við nýjan sjúkdóm undir allt öðruvísi kringumstæðum en nokkur fyrrverandi stjórnvöld gátu ímyndað sér.“ Erlent 23. mars 2021 20:19
Heilbrigðisráðuneytið skoðar Sputnik V bóluefnið Formaður Miðflokksins spurði forsætisráðherra hvernig hefði gengið að semja um bóluefni framhjá þeim samningum sem gerðir hefðu verið með Evrópusambandinu. Innlent 23. mars 2021 19:29
Allir frá rauðum löndum í sótttvarnahús Börn fædd árið 2005 eða síðar skulu fara í sýnatöku við komuna til landsins eins og fullorðnir og allir sem koma frá hásmitasvæðum verður gert að taka sóttkví út í sóttvarnahúsi frá og með fyrsta apríl. Verið er að leita að hótelum til að hýsa þetta fólk. Innlent 23. mars 2021 19:20
Er allt í rugli með sóttvarnirnar? Nei, sannarlega ekki. En umræðan um bólusetningar, sóttkvíarreglur, breytingar á sóttvörnum gagnvart fólki utan Schengen og fyrirhugaða breytingu á sóttvarnarreglum frá og með 1. maí hefur grautast töluvert saman undanfarna viku. Skoðun 23. mars 2021 16:01
Uppsagnir og lokanir hjá Kaffitári Kaffitár hefur lokað kaffihúsi sínu í Bankastræti tímabundið og endanlega hætt rekstri í Þjóðminjasafninu. Þetta staðfestir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffihúsa hjá Kaffitári, í samtali við Vísi. Viðskipti innlent 23. mars 2021 15:07
Enginn með brasilíska afbrigðið alvarlega veikur Læknir og hjúkrunarfræðingur, sem bæði hafa verið bólusett fyrir kórónuveirunni, fóru um borð í súrálsskip frá Brasilíu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Innlent 23. mars 2021 15:06
Bilun í tækjabúnaði tafði greiningu Covid-sýna í gær Bilun kom upp í greiningartæki sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans í gær sem tafði greiningu Covid-sýna. Ekki er reiknað með að það verði marktækar tafir á greiningu sýna í dag. Innlent 23. mars 2021 13:22
Leigja hótel og skikka fólk af eldrauðu svæðunum í sóttvarnahús Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tvær tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir er tengjast landamærunum og kórónuveirufaraldrinum. Innlent 23. mars 2021 11:46
Þjóðverjar skella í lás yfir páskana Sóttvarnaaðgerðir í Þýskalandi verða framlengdar um þrjár vikur og hertar verulega yfir páskana. Ástæðan er þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem gengur nú yfir Þýskaland og ýmis önnur Evrópuríki. Erlent 23. mars 2021 11:44
Rúmlega 400 manns í sóttkví Þeim fjölgar mjög á milli daga sem eru í sóttkví vegna kórónuveirusmita. Í gær voru tæplega 200 einstaklingar í sóttkví en í dag eru þeir 435 samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Innlent 23. mars 2021 11:10
Reyndust allir tíu vera með brasilíska afbrigðið Skipverjar um borð í súrálskipinu Taurus Confidence sem smitaðir eru af Covid-19 eru allir með brasilíska afbrigðið. Þetta staðfestir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, við Fréttablaðið en raðgreiningu á smitunum er lokið. Innlent 23. mars 2021 11:03
Gætu lagt fjársektir á þá sem reyna að ferðast frá Englandi Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 23. mars 2021 10:32
Einn greindist innanlands í gær Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Hann var í sóttkví. Innlent 23. mars 2021 09:44
Ætla að skylda fólk frá áhættusvæðum í farsóttarhús Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar á fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í dag að kynna drög að nýjum reglum varðandi fólk sem kemur hingað til lands. Innlent 23. mars 2021 08:54