Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Fimm greindust á landamærum, allir í seinni landamæraskimun. Innlent 19. mars 2021 10:40
Landsliðsþjálfarinn segir að leikmenn eigi að fá bóluefni sem fyrst Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, er harður á því að knattspyrnumenn eigi nú að ganga fyrir í röðinni þar sem beðið er eftir því að fá bóluefni gegn kórónuveirunni. Fótbolti 19. mars 2021 10:01
Lögregla hefur rannsókn á sóttvarnabrotum Solbergs Lögregla í Noregi hefur hafið rannsókn á sóttvarnabrotum norska forsætisráðherrans Ernu Solberg. Greint var frá því í gær að Solberg hafi gerst brotleg við reglur þar sem hún settist til borðs með þrettán öðrum þegar hún hélt upp á sextugsafmæli sitt í lok febrúar. Erlent 19. mars 2021 09:48
„Mamma“ Samia fyrsta konan á forsetastóli í Tansaníu Samia Suluhu Hassan varð í dag fyrsta konan til þess að gegna embætti forseta Tansaníu þegar hún sór embættiseið. Hassan var varaforseti Johns Magufuli sem er sagður hafa látist úr hjartaáfalli í vikunni. Hún nýtur virðingar á meðal landsmanna sem kalla hana „Mömmu“ Samiu. Erlent 19. mars 2021 08:40
Ísland enn eina „græna“ land álfunnar Aftur er Ísland eina land Evrópu sem skilgreint er sem „grænt“ á nýuppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Auk Íslands eru tvö fylki í Noregi skilgreind sem „græn“. Innlent 19. mars 2021 07:59
Hyggst láta bólusetja sig með AstraZeneca til að fullvissa Breta um öryggi Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hyggst láta bólusetja sig með bóluefni AstraZeneca til að fullvissa Breta um að bóluefnið sé öruggt. Nokkurrar tortryggni hefur gætt í garð bóluefnisins eftir að tilkynningar bárust um alvarlegar aukaverkanir. Erlent 19. mars 2021 07:43
Sóttvarnalæknir ákveði næsti skref nú þegar EMA hefur veitt AstraZeneca blessun sína Forstjóri Lyfjastofnunar segir að niðurstaða Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) á hugsanlegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við kórónuveirunni sýni að ávinningur af notkun þess sé meiri en hugsanleg áhætta sem fylgir því að fá Covid-19. Innlent 18. mars 2021 23:59
Erna Solberg braut sóttvarnareglur í ferð með fjölskyldunni Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, braut sóttvarnareglur í febrúar þegar hún borðaði kvöldverð með þrettán öðrum. Þetta kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins NRK en brotið átti sér stað á meðan Solberg var í fríi í skíðabænum Geilo þar sem hún hélt upp á sextugsafmæli sitt. Þar var hún stödd ásamt fjölskyldu, tveimur systrum sínum og fjölskyldum þeirra. Erlent 18. mars 2021 23:08
Óttast þriðju bylgjuna og skella í lás Útgöngubann verður sett á í frönsku höfuðborginni París í ljósi þess að kórónuveirusmitum fer fjölgandi. Síðasta sólarhringinn greindust 35 þúsund í Frakklandi og verður gripið til sambærilegra aðgerða á fimmtán svæðum til viðbótar. Erlent 18. mars 2021 21:14
Ingó veðurguð í sóttkví eftir að hafa skemmt í starfsmannagleði Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er á leið í sóttkví. Hann skemmti á starfsmannagleði ION hótela á sunnudag en einn starfsmaður sem sótti samkvæmið greindist með veiruna í gær. Lífið 18. mars 2021 18:12
Yfir hundrað í sóttkví vegna smitsins sem greindist í gær Rúmlega hundrað einstaklingar hafa verið sendir í sóttkví í tengslum við kórónuveirusmitið sem greindist utan sóttkvíar í gær. Enn liggur ekki fyrir hvort um sé að ræða hið svokallaða breska afbrigði veirunnar en búist er við að raðgreiningu ljúki í kvöld. Innlent 18. mars 2021 17:27
Lyfjastofnun Evrópu gefur AstraZeneca grænt ljós Lyfjastofnun Evrópu (EMA) segir að bóluefni AstraZenica sé öruggt og skilvirkt. Að kostir þess skyggi á áhættu og að notkun þess feli ekki í sér aukna áhættu á blóðtöppum. Frekari rannsókna væri þó þörf. Erlent 18. mars 2021 16:13
Yfir 50 starfsmenn Landspítala í sóttkví vegna smitsins sem greindist í gær Fleiri en 50 starfsmenn sem tilheyra 28 starfseiningum Landspítala verða sendir í sóttkví og skimun vegna Covid-19 smitsins sem greindist utan sóttkvíar í gær. Þetta kemur fram á Facebook-síðu spítalans. Innlent 18. mars 2021 16:13
Átján í sóttkví hjá Mími vegna smitsins í gær Sautján nemendur og einn kennari hjá Mími eru nú í sóttkví eftir að nemandi greindist með Covid í gærkvöldi. Fram kemur í tilkynningu frá Mími að gripið hafi verið til allra nauðsynlegra ráðstafana til að hindra útbreiðslu smitsins. Innlent 18. mars 2021 15:26
Hefur ekki hugmynd um hvernig hann smitaðist Á fjórða tug hið minnsta eru í sóttkví eftir að starfsmaður ION hótela á Nesjavöllum greindist með kórónuveiruna í gær. Starfsmaðurinn hefur ekki verið við vinnu síðan í byrjun mars en sótti þó starfsmannagleði á sunnudag. Eigandi hótelsins segir starfsmanninn ekki hafa hugmynd um hvernig hann smitaðist. Innlent 18. mars 2021 14:36
„Ég tel mig sem sóttvarnalækni ekki bundinn af þessu litakóðunarkerfi“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur ákveðnar áhyggjur af því fyrirkomulagi sem stjórnvöld hafa boðað á landamærunum þann 1. maí næstkomandi. Innlent 18. mars 2021 13:04
Telja blóðtappa heiftarleg ónæmisviðbrögð við bóluefninu Rannsakendur við Háskólasjúkrahúsið í Osló telja að bóluefni AstraZeneca hafi valdið blóðtappa í þremur heilbrigðisstarfsmönnum þar. Efnið hafi valdið sterku ónæmissvari í fólkinu sem hafi orskaða blóðtappa. Erlent 18. mars 2021 12:30
Von á niðurstöðu um eittleytið Lyfjastofnun Evrópu fundar nú um bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni og mögulegt orsakasamhengi við blóðtappa. Niðurstöðu er að vænta um klukkan eitt. Innlent 18. mars 2021 12:01
WHO ráðleggur Evrópuríkjum að nota bóluefni AstraZeneca Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) hvatti Evrópuríkja til þess að halda áfram að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni þrátt fyrir nokkrar tilkynningar um blóðtappa. Bóluefnið bjargi mannslífum og ábati af því vegi mun þyngra en áhættan. Erlent 18. mars 2021 11:50
Segir ástæðu til að hafa áhyggjur af smiti gærdagsins Innanlandssmitið sem greindist utan sóttkvíar í gær sýnir að veiran er ekki horfin úr íslensku samfélagi. Ekki er búið að rekja smitið og þá liggur raðgreining ekki fyrir. Innlent 18. mars 2021 11:32
Einn greindist utan sóttkvíar Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta kórónuveirusmitið sem greinist hér á landi utan sóttkvíar síðan 8. mars. Innlent 18. mars 2021 10:43
Svona var 169. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulega upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 18. mars 2021 10:12
Þessar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir tók gildi á miðnætti. Reglur haldast að mestu óbreyttar frá því sem fyrir var, utan þess að skerpt er á skráningu gesta á viðburði, veitingar eru bannaðar í hléi og gæta þarf betur að sóttvörnum við hlaðborð. Innlent 18. mars 2021 08:52
Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. Erlent 18. mars 2021 08:02
Reyna að brjóta upp á fábreyttan hversdagsleikann Strangar sóttvarnaraðgerðir eru enn í gildi í Danmörku þótt nokkur skref hafi verið stigin til afléttingar. Íslendingar í Kaupmannahöfn sakna þess meðal annars hvað helst að komast á barinn, á veitingastaði og vona að landamæri verði opnuð sem fyrst. Innlent 17. mars 2021 22:03
Nýjar landamærareglur á Íslandi einsdæmi í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að gefið verði út samevrópskt rafrænt grænt vottorð fyrir alla íbúa evrópska efnahagssvæðisins sem staðfesti stöðu þeirra gagnvart COVID-19. Nýjar reglur varðandi vottorð ferðamanna utan Schengens sem taka gildi á morgun eru einsdæmi innan Evrópska efnahagssvæðisins. Innlent 17. mars 2021 19:21
Jón Guðni einn af sextán leikmönnum með kórónuveiruna: „Finn enga lykt og ekkert bragð“ Sextán leikmenn og fimm starfsfólk sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby eru með kórónuveiruna. Jón Guðni Fjóluson er einn leikmannanna með veiruna. Fótbolti 17. mars 2021 18:31
ESB íhugar að banna útflutning á bóluefni til Bretlands Evrópusambandið hótaði því að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands til að tryggja sem flesta skammta fyrir sína eigin þegna. Sambandið er ósátt við hversu fáir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem samið var um hafa verið afhentir til þessa. Erlent 17. mars 2021 16:03
Rósa Björk: Ætlum við að klúðra stöðunni? Svandís Svavarsdóttir segir löngu tímabært að Íslendingar fái upplýsingar um afhendingaráætlun bóluefna fyrir næsta ársfjórðung. Gert er ráð fyrir að fjörutíu og þrjú þúsund manns verði bólusettir í lok mánaðarins. Innlent 17. mars 2021 14:48
Einn lagður inn með Covid í nótt Einn var lagður inn á Landspítala vegna Covid-sýkingar í nótt. Innlögnin er sú fyrsta vegna Covid í nokkrar vikur, að sögn yfirlæknis. Enginn lá inni á spítalanum með Covid í gær. Innlent 17. mars 2021 14:47
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent