Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum vegna áreksturs. Sérfræðingur í samskiptum hjá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að göngin verði lokuð í einhvern tíma og beinir fólki um Hvalfjarðarveginn. Innlent 2. ágúst 2024 14:06
Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Karlmaður á fertugsaldri, sem er einn sakborninga í stórfelldu fíkniefnamáli, sem kennt hefur verið við potta og skemmtiferðaskip, er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Honum er gefið að sök að hafa tekið annan mann kyrkingartaki, eins og segir í ákæru, og þrengt að öndunarvegi hans í að minnsta kosti sjö mínútur. Innlent 2. ágúst 2024 11:49
Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Sérsveit Ríkislögreglustjóra var kölluð til þegar tilkynnt var um slagsmál tveggja hópa í Mjódd í Breiðholti í gærkvöldi. Um var að ræða hópa unglinga, sem fóru sína leið eftir að lögregla hafði rætt við þá. Engin kæra hefur verið lögð fram vegna slagsmálanna. Innlent 2. ágúst 2024 10:27
Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í dag hefst verslunarmannahelgin sem landsmenn hafa beðið í ofvæni eftir og hyggja margir á ferðir út á land. Þjóðhátíð heldur upp á 150 ára afmæli sitt um helgina og verður því margt um Reykvíkinginn í Eyjum og þar af leiðandi margt um mannlaus og innbrotsvæn heimili í höfuðborginni. Innlent 2. ágúst 2024 09:15
Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, ef marka má dagbókarfærslu lögreglu. Þar segir meðal annars frá manni sem gistir fangaklefa á Hverfisgötu vegna gruns um að hafa brotið rúðu með því að kasta steini í hana og fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu. Innlent 2. ágúst 2024 06:42
Góða skemmtun kæru landsmenn Vitundarvakning sem ber yfirskriftina „Góða skemmtun“ stendur yfir í sumar. Markmiðið er að tryggja að við öll getum notið skemmtana á öruggan og ofbeldislausan hátt. Skoðun 1. ágúst 2024 16:00
Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Undirbúningur viðbragðsaðila fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er í fullum gangi. Lögregla hefur aukið viðbúnað í Dalnum til að bregðast við tiltölulega nýtilkominni eggvopnamenningu hér á landi. Innlent 1. ágúst 2024 11:42
Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn „Það má því segja að þau séu að verða þétt tvíeyki, Sigríður og Helgi Magnús,“ var skrifað í Viðskiptablaðið þegar Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson voru skipuð í embætti ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara árið 2011, en þar á undan höfðu þau verið saksóknarar Alþingis í málaferlum á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 1. ágúst 2024 08:01
Ók á mann og stakk af Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur útköllum í gærkvöldi þar sem slys höfðu orðið á fólki í umferðinni. Þar á meðal var tilkynning um að ekið hefði verið á mann á hlaupahjóli og ekið á brott. Innlent 1. ágúst 2024 06:30
Rúður brotnar í Rimaskóla Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um brothljóð frá Rimaskóla í Grafarvogi í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að fjöldi rúða í skólanum hafði verið brotinn og einhverju tjónið valdið inni í skólanum. Innlent 31. júlí 2024 06:42
„Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Eigandi verslunarinnar King Kong segir svo virðast sem innbrot séu fastur liður í því að reka söluturn á Íslandi í dag. Brotist var inn í King Kong við Auðbrekku í Kópavogi í nótt, rúmum sjö mánuðum eftir að brotist var inn í samnefnda verslun við Höfðabakka. Innlent 30. júlí 2024 18:00
Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur að rétt hafi verið staðið að tilkynningu til Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara og annarra starfsmanna embættisins. Hún segir Helga Magnús ekki hafa bætt ráð sitt eftir áminningu. Innlent 30. júlí 2024 11:34
Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Lögregla aðstoðaði í tveimur málum í gærkvöldi eða nótt þar sem almennir borgara höfðu tekið málin í eigin hendur eftir að hafa komist á snoðir um glæp. Innlent 30. júlí 2024 06:23
Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins skorar á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að fallast hvorki á varanlega né tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara frá störfum vegna ummæla hans um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Innlent 29. júlí 2024 22:09
Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari verði leystur tímabundið frá störfum vegna kæru á hendur honum fyrir ummæli um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Helgi er afar ósáttur við viðbrögð yfirmanns síns og spyr hvort hún sé embætti sínu vaxin. Innlent 29. júlí 2024 15:59
Handteknir við að stela dósum úr gám Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti margvíslegum verkefnum í gærkvöldi og nótt og gistu sjö fangageymslur nú í morgun. Innlent 29. júlí 2024 06:15
Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna þriggja unglinga sem voru sagðir vera að brjóta rúðu á heimili í Kópavogi. Innlent 29. júlí 2024 06:07
Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í dag mann grunaðan um alvarlega líkamsárás eftir að árásarþoli leitaði á sjúkrahús til aðhlynningar. Innlent 28. júlí 2024 17:26
Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Tveir menn sem tóku leigubifreið upp í Breiðholt í nótt greiddu ekki fyrir farið. Annar þeirra hljóp úr bifreiðinni, og kýldi leigubílstjórann þegar hann hljóp á eftir honum. Málið er í rannsókn. Innlent 28. júlí 2024 07:33
Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir My Ky Le, 52 ára, en ekkert er vitað um ferðir hans frá því um hádegi á föstudag. Innlent 27. júlí 2024 23:14
„Vitum ekki til þess að nokkur hafi verið í hættu“ Óvissustig er í gildi vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Lögreglustjórinn á Suðurlandi segist ekki vitað til þess að neinn hafi verið í hættu og segir aðgerðir hafa gengið vel. Fyrir liggur að hlaupið er á pari við jökulhlaupið í Múlakvísl 2011. Innlent 27. júlí 2024 19:16
Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Lögreglan er búin að finna manninn sem elti konu í nótt og beraði kynfæri sín fyrir henni. Innlent 27. júlí 2024 11:40
Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Veiðivörður tilkynnti um tvo að veiðum í Elliðaá án leyfis. Aðilarnir á vettvangi neituðu sök við lögreglu þrátt fyrir að vera með veiðistangir meðferðis en veiðivörðurinn sagðist vera með mynd af þeim að veiðum. Ökumaður framvísaði skírteni bróður síns, og maður beraði sig fyrir konu. Innlent 27. júlí 2024 07:37
Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað frá kæru Byko á hendur íslenskum karlmanni fyrir eignaspjöll. Karlmaðurinn setti límmiða á vörur frá Byko þar sem hvatt var til sniðgöngu á vörum frá Ísrael. Innlent 26. júlí 2024 15:29
Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá Þrítugur íslenskur karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hnífaárás á göngustíg í Lundi í Kópavogi í lok júní. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis. Innlent 26. júlí 2024 13:38
Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á umtalsvert magn af fíkniefnum og teygir málið anga sína víða. Yfirlögregluþjónn segir talsvert magn fíkniefna í umferð og sala þeirra fari fram fyrir opnum tjöldum á samfélagsmiðlum. Fimm manns eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 26. júlí 2024 12:05
Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Þrír erlendir ferðamenn sem gengu í skrokk Íslendings í miðbæ Reykjavíkur síðustu helgi eru lausir úr haldi að lokinni yfirheyrslu. Engin tengsl voru milli mannanna og þolanda, en varðstjóri segir skemmtunina hafa farið fram úr sér. Innlent 26. júlí 2024 11:45
Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Dómsmálaráðherra hefur óskað eftir gögnum frá Þjóðskrá vegna nafnabreytingar Mohammad Kourini sem fékk nafni sínu breytt í Mohamad Th. Jóhannesson. Hún væntir svara frá stofnuninni og ítrekar að sveigjanleiki í lögum um nafnabreytingar sé ekki ætlaður að auðvelda brotamönnum að fela sig í samfélaginu. Innlent 26. júlí 2024 10:35
Verstu skemmdarverk í sögu Lystigarðsins Unnar hafa verið miklar skemmdir á grasflötinni í Lystigarðinum í Hveragerði og hefur málið verið tilkynnt til Lögreglunnar á Suðurlandi. Talið er að óprúttnir aðilar hafi ekið um blautan garðinn á vespum. Innlent 26. júlí 2024 10:09
Ráðherra hyggst skoða nafnabreytingu Mohamad Th. Jóhannessonar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur óskað eftir upplýsingum frá Þjóðskrá um það hvernig lagaákvæði um kenninafnabreytingar var túlkað þegar Mohamad Kourani fékk nafni sínu breytt í Mohamad Thor Jóhannesson. Innlent 26. júlí 2024 06:34