Þrír réðust á ungan dreng og reyndu að ná af honum munum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um rán í gær en þar höfðu þrír einstaklingar reynt að ná munum af ungum dreng og beitt hann ofbeldi. Vildu þeir meðal annars fá skó hans, skartgripi og fleira. Innlent 24. ágúst 2023 06:23
Lögregla rannsakar mannslát á Landspítalanum Lögreglurannsókn er hafin á andláti á Landspítalanum fyrr í þessum mánuði. Andlátið var tilkynnt til embættis landlæknis og lögreglu samkvæmt reglum spítalans. Innlent 23. ágúst 2023 13:34
Situr í gæsluvarðhaldi lengur en lög gera ráð fyrir: „Það einfaldlega gengur ekki í réttarríki“ Undanfarnar vikur hafa reglulega birst fréttir af því að fallist hafi verið á framlengingu gæsluvarðhalds manns sem grunaður er um að hafa banað ungri konu í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi út ágúst og mun þá hafa verið í haldi í átján vikur. Innlent 23. ágúst 2023 13:31
Kæra Vítalíu endanlega felld niður Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara frá því í apríl síðastliðnum um að fella niður rannsókn á kynferðisbrotakæru Vítalíu Lazarevu á hendur þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Innlent 23. ágúst 2023 08:29
Innbrot og líkamsárás í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna innbrots og líkamsárásar í Garðabæ um klukkan 20 í gærkvöldi. Svo virðist sem árásarmaðurinn hafi komist undan en hann er ókunnur. Innlent 23. ágúst 2023 06:21
Segir rannsóknarhagsmuni fyrir löngu gæsluvarðhaldi ekki til staðar Lögmaður mannsins sem grunaður er um að hafa myrt konu á Selfossi í apríl gagnrýnir hve lengi hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 27. apríl, sama dag og kona á þrítugsaldri fannst látin í húsi á Selfossi. Innlent 22. ágúst 2023 20:54
Drangahraunsmálið: Sagðist ætla að drepa manninn og síðan hengja sig Maður sem grunaður er um að hafa banað Jaroslaw Kaminski í Drangahrauni í Hafnarfirði þann 17. júní segist hafa stungið hann í sjálfsvörn. Hann stakk Kaminski ítrekað og lýsti því yfir í skilaboðum að hann ætlaði að drepa hann. Innlent 22. ágúst 2023 12:49
Bruninn ekki rannsakaður sem sakamál Eldsvoðinn á Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði er ekki rannsakaður sem sakamál. Innlent 21. ágúst 2023 12:22
Hefur ekki heyrt af dýrum sem brunnu inni Vettvangur þar sem gríðarlegur eldsvoði varð í Hafnarfirði í gær hefur verið afhentur lögreglu. Slökkvistarfi lauk í nótt eftir tólf tíma aðgerð. Slökkvistjórinn segist ekki vita til þess að dýr hafi brunnið inni. Innlent 21. ágúst 2023 11:28
Myndir frá vettvangi brunans við Hvaleyrarbraut Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan 13 í gær og logaði til um klukkan 04 í nótt. Myndir frá vettvangi sýna að húsnæðið, þar sem nokkur fjöldi fólks bjó, er handónýtt. Innlent 21. ágúst 2023 10:49
Tekinn fyrir akstur undir áhrifum en átti að vera í fangelsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var handtekinn og færður til blóðsýnatöku en við nánari athugun reyndist hann ekki hafa mætt til afplánunar í fangelsi. Innlent 21. ágúst 2023 06:27
Mikið unglingafyllerí á Menningarnótt Fimmtán ungmenni voru flutt á athvarf á vegum Reykjavíkurborgar þar sem foreldrar komu og náðu í börn sín. Í nokkrum tilvikum var áfengi hellt niður sem tekið var af ungmennum undir lögaldri. Innlent 20. ágúst 2023 08:34
Lögreglan rannsakar átökin við Vínbúðina Lögregla rannsakar nú slagsmál sem brutust út á bílastæðinu við Vínbúðina á Dalvegi í gærkvöld og hyggst taka skýrslur af tveimur einstaklingum sem voru handteknir í tengslum við málið. Innlent 19. ágúst 2023 15:52
Reyndi að flýja eftir líkamsárás Lögregla hafði uppi á gerendum líkamsárásar í nótt sem tilkynnt var um í miðborg Reykjavíkur en einn þeirra reyndi að flýja vettvang. Voru þeir handteknir og fluttir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Einn var vistaður í fangaklefa en tveimur sleppt að lokinni upplýsingatöku. Innlent 19. ágúst 2023 08:05
Ráðist á Birgittu og Enok með hníf, hamri og piparúða á Dalvegi Tveir menn réðust á Enok Vatnar Jónsson þar sem hann var staddur á bílaplani við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi um sjöleytið í kvöld ásamt kærustunni sinni Birgittu Líf Björnsdóttur, markaðsstjóra World Class. Innlent 18. ágúst 2023 22:51
Lögregla kölluð til vegna slagsmála á Dalvegi Lögregla var kölluð til vegna slagsmála sem brutust út á bílastæðinu við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi fyrr í kvöld. Innlent 18. ágúst 2023 20:32
Íkveikja rannsökuð sem hefnd gegn lögreglumanni Héraðssaksóknari rannsakar hvort að íkveikja í bíl lögreglumanns í gærmorgun hafi verið hefndaraðgerð. Bíllinn stóð á bílastæði við heimili mannsins í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 18. ágúst 2023 18:43
Umboðsmaður segir heimildir til framsals löggæsluverkefna of rúmar Umboðsmaður Alþingis hefur sent forseta Alþingis ábendingu þess efnis að orðalag í lögreglulögum um heimildir ríkislögreglustjóra til að fela erlendum ríkisborgurum framkvæmd löggæsluverkefna á Íslandi sé of rúmt. Innlent 18. ágúst 2023 06:49
Próflaus og ölvaður með farþega í skottinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi. Voru þeir handteknir og færðir til blóðsýnatöku. Innlent 18. ágúst 2023 06:27
Fundu allsbera manneskju í Breiðholtinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um allsbera manneskju í Breiðholtinu í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar var hún færð á spítala vegna notkunar á fíkniefnum. Innlent 17. ágúst 2023 23:03
Skreið nakinn um garðinn og tíndi gras Landsréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem er meðal annars sakaður um að hafa brotist tvisvar inn á heimili á höfuðborgarsvæðinu og beitt fólk þar ofbeldi. Sá er einnig grunaður um ítrekaðan þjófnað og að hafa valdið hneykslan á almannafæri þegar hann skreið allsnakinn um garð í Reykjavík og tíndi gras. Innlent 17. ágúst 2023 12:16
Rafhlaupahjólaþjófur gómaður Það var nokkuð um þjófnað og innbrot ef marka má dagbók lögreglu fyrir gærkvöldið. Lögreglunni var tilkynnt um einstakling sem bar nokkur rafmagnshlaupahjól inn í húsnæði. Hjólin reyndust vera þýfi og voru haldlögð af lögreglunni. Innlent 17. ágúst 2023 06:36
Tuttugu tilkynningar um hatursglæpi á Hinsegin dögum Samtökunum ´78 bárust tuttugu tilkynningar um hatursglæpi í aðdraganda og á meðan Hinsegin dögum stóð, sú alvarlegasta varðar líkamsrás. Lögregla rannsakar ellefu tilvik hatursglæpa á sama tímabili. Innlent 16. ágúst 2023 19:23
Fallist á lengra gæsluvarðhald: Vonast eftir niðurstöðu krufningar um mánaðamótin Landsréttur féllst í dag á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um manndráp í heimahúsi á Selfossi. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 27. apríl síðastliðnum og mun sæta því áfram til 31. þessa mánaðar hið skemmsta. Innlent 16. ágúst 2023 18:29
Fá að skoða síma í þágu rannsóknar á hefndarklámi Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þar sem heimiluð var rannsókn á efni farsíma manns sem lagt var hald á í þágu rannsóknar á hefndarklámi. Innlent 16. ágúst 2023 11:48
Reyndi að stela steikarhnífum í miðbænum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ýmsu í gærkvöldi. Henni bárust nokkrar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir þar sem menn reyndu að komast inn í bifreiðar. Þá reyndi annar maður að stela steikarhnífum af veitingastað í miðbænum. Innlent 16. ágúst 2023 06:36
Grunsamlegur maður með ryksugu Það var tíðindalítið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu ef marka má dagbók hennar frá gærkvöldinu og nóttinni. Henni barst tilkynning um grunsamlegan mann í miðborginni og æstan mann í Breiðholtinu. Innlent 15. ágúst 2023 06:29
Kæra bónda fyrir flutning á dráttarvél Matvælastofnun hefur kært flutning á dráttarvél frá riðusvæði á Norðurlandi vestra til riðulauss svæðis á Vesturlandi fyrr í sumar til lögreglu. Að sögn stofnunarinnar fór flutningurinn fram án lögbundinna þrifa og sótthreinsunar og án samþykkis héraðsdýralæknis. Innlent 14. ágúst 2023 10:47
EncroChat Eftir því sem næst verður komist lagði franska lögreglan í samstarfi við hollensku lögregluna til atlögu við fjarskiptafyrirtækið EncroChat árið 2019 með því brjótast inn í fjarskiptakerfi fyrirtækisins og koma fyrir hugbúnaði sem gerði frönsku lögreglunni kleift að hlaða niður skilaboðum og myndum um 60 þúsunda viðskiptavina EncroChat. Skoðun 14. ágúst 2023 08:01
Líðan hins slasaða sögð stöðug Líðan mannsins sem fluttur var alvarlega slasaður á slysadeild, eftir bílveltu á Ólafsfjarðarvegi, er stöðug samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Innlent 13. ágúst 2023 21:03