

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Paul mun framlengja við Clippers
ESPN greinir frá því að leikstjórnandinn Chris Paul sé búinn að ná samkomulagi við LA Clippers um nýjan fimm ára samning. Sá samningur mun færa Paul yfir 100 milljónir dollara í aðra hönd.

Kirilenko reynir fyrir sér á leikmannamarkaðnum
Rússneski körfuboltaleikmaðurinn Andrei Kirilenko ætlar ekki að klára samning sinn við Minnesota Timberwolves í NBA deildinni en hann hafði val um það hvort hann léki eitt ár til viðbótar með liðinu.

Chris Paul verður áfram hjá Clippers
Umboðsmaður Chris Paul hefur tilkynnt liðum í NBA deildinni í körfubolta að Chris Paul muni ekki ræða við nein félög heldur semja að nýju við Los Angeles Clippers. Liðin mega byrja að ræða við leikmenn á morgun 1. júlí og skrifa undir samninga 10. júlí.

Howard mun ræða við allt að tíu lið
Miðherjinn Dwight Howard hjá Los Angeles Lakers í NBA körfuboltanum mun ræða við Lakers, Houston Rockets, Dallas Mavericks að minnsta kosti þegar hann má byrja að ræða við félög á morgun. Howard er með lausan samning og ætlar að skoða kosti sína vandlega.

Allen spilar áfram með Miami
Stórskyttan Ray Allen hefur nýtt sér ákvæði í samningi sínum og framlengt dvöl sína hjá Miami til lok næsta tímabils.

Cavaliers valdi Anthony Bennett í nýliðavalinu
Nýliðavalið í NBA-deildinni fór fram í nótt en valið í ár er talið eitt mest óspennandi í áratug.

Pierce og Garnett til Nets í risaskiptum
Mögnuð tíðindi berast frá Bandaríkjunum en NBA - liðið Brooklyn Nets hefur náð samkomulagi við Boston Celtics um að fá til liðsins Kevin Garnett og Paul Pierce í skiptum fyrir þó nokkra leikmenn.

Gilbert Arenas stöðvaður með 20 kassa af flugeldum
Körfuknattleiksmaðurinn Gilbert Arenas kom sér enn einu sinni í vandræði við bandarísku lögregluna en hann var stöðvaður með troðfullan bíl að ólöglegum flugeldum í Los Angeles.

J.R. Smith ekki lengur samningsbundinn Knicks
J.R. Smith hefur ákveðið að nýta sér klausu í samningi sínum við New York Knicks og rifta núverandi samningi við félagið.

Bird kominn aftur til Pacers
Larry Bird hefur samþykkt að taka við gamla starfinu sínu hjá NBA-liðinu Indiana Pacers á ný eftir eins árs fjarveru.

Durant semur við Jay-Z
Rapparinn Jay-Z er orðinn umboðsmaður íþróttamanna og hann er búinn að landa sinni fyrstu stórstjörnu því Kevin Durant, leikmaður Oklahoma Thunder, hefur samið við rapparann.

Pippen kýldi mann fyrir utan veitingastað
Scottie Pippen, fyrrum leikmaður Chicago Bulls, hefur hingað til verið þekktur fyrir að vera einstakt ljúfmenni en hann getur greinilega reiðst eins og aðrir.

Shaw tekur við Denver Nuggets
Það vakti eðlilega athygli þegar NBA-liðið Denver Nuggets ákvað að reka þjálfara sinn, George Karl, skömmu eftir að búið var að velja hann þjálfara ársins í NBA-deildinni.

NBA-meistararnir í stórhættu á sigurhátíð
NBA-meistarar Miami Heat fögnuðu meistaratitli sínum í gær er þeir fóru með tveggja hæða rútu í gegnum borgina.

Green var ekki að djamma með leikmönnum Miami
Danny Green, leikmaður San Antonio Spurs, hefur mátt þola slæma meðferð á samfélagsmiðlum eftir að myndir birtust af honum á djamminu með leikmönnum Miami Heat eftir oddaleik liðanna.

Rivers á leiðinni til Clippers
Framtíð körfuboltaþjálfarans Doc Rivers eru loksins að skýrast. Samkvæmt heimildum Sports Illustrated er hann á leið til LA Clippers.

Westbrook hjálpaði stuðningsmanni með bónorð
Stjarna Oklahoma Thunder, Russell Westbrook, sinnir ýmsu á meðan hann jafnar sig eftir aðgerð. Meðal annars hjálpar hann stuðningsmönnum Thunder að gifta sig.

Doc og Rondo slógust næstum því
Það er mikil óvissa með framtíðina hjá Boston Celtics. Doc Rivers verður líklega ekki þjálfari liðsins áfram og þeir Paul Pierce og Kevin Garnett eru líklega á förum.

Þurfti að tappa af hnénu á Wade
Dwyane Wade hefur upplýst að hann var í meiri vandræðum með hnéð á sér í úrslitarimmunni gegn San Antonio en menn héldu.

Þessi leikur mun ásækja mig alla ævi
Tim Duncan á seint eftir að gleyma leik næturinnar í NBA-deildinni en þá varð Miami Heat meistari eftir sigur á San Antonio Spurs í oddaleik lokaúrslitanna.

Miami meistari annað árið í röð
Miami Heat tryggði sér sinn annan NBA-meistaratitil í röð eftir sjö stiga sigur, 95-88, á San Antonio Spurs í oddaleik liðanna um titilinn í nótt.

Kobe stefnir á að spila í desember
Kobe Bryant hefur einsett sér að byrja að spila með LA Lakers á nýjan leik í síðasta lagi í desember.

Þið sem fóruð megið vera áfram heima hjá ykkur
Chris Bosh, leikmaður Miami Heat, er brjálaður út í þá stuðningsmenn Miami sem létu sig hverfa á ögurstundu í sjötta leiknum gegn San Antonio Spurs um NBA-meistaratitilinn. Þeir misstu af frábærri endurkomu Heat.

LeBron spilar með svitabandið í kvöld
Körfuboltaáhugamenn hafa sýnt svitabandi LeBron James mikinn áhuga eftir að hann týndi því undir lok síðasta leik lokaúrslitanna í NBA-deildinni.

Fjöldi stuðningsmanna Miami missti af endurkomunni
Leikur Miami Heat og San Antonio Spurs í úrslitum NBA-deildarinnar í gær var lyginni líkastur. Því miður misstu margir, svartsýnir stuðningsmenn Heat af dramatíkinni í lok leiksins.

Carroll stóðst læknisskoðun hjá West Ham
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Andy Carroll verði leikmaður West Ham en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í gær.

Miami þvingaði fram oddaleik með ótrúlegum sigri
Miami náði að þvinga fram oddaleik í lokaúrslitum NBA-deildarinnar með hádramatískum sigri í framlengdum leik gegn San Antonio, 103-100.

James orðinn tvöfaldur NBA-meistari samkvæmt nýju skónum
Pressan á LeBron James, stórstjörnu Miami Heat, fyrir kvöldið er mikil. Ekki minnkaði hún í dag þegar út láku myndir af nýju skónum hans.

Börn Iverson komin aftur til móður sinnar
Körfuboltastjarnan fyrrverandi, Allen Iverson, neitar því að hafa rænt börnunum sínum sem nú eru komin aftur í umsjá móður sinnar, Tawanna.

Iverson sagður hafa rænt börnunum sínum
Lögreglan er nú á eftir körfuboltamanninum fyrrverandi, Allen Iverson, en hann á að hafa rænt börnunum sínum.