

Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.
Leikur sjö á milli Los Angeles Lakers og Boston Celtics fékk nánast met áhorf í Bandaríkjunum. Lakers vann leikinn með fjórum stigum og tryggði sér NBA-meistaratitilinn.
Los Angeles Lakers tryggði sér NBA-meistaratitilinn i nótt með sætum sigri á Boston Celtics. Lokatölur 83-79 fyrir Lakers sem vann einvígið 4-3.
Los Angeles Lakers vann fjögurra stiga sigur á Boston Celtics, 83-79, í úrslitaleik liðanna um NBA-meistaratitilinn í nótt. Lakers er þar með meistari eftir 4-3 sigur í einvíginu.
Svali H. Björgvinsson og Baldur Beck hafa skipts á að lýsa frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta á Stöð 2 Sport í vetur og þeir ætla lýsa saman lokaleiknum í kvöld þegar Los Angeles Lakers og Boston Celtics mætast í hreinum úrslitaleik um NBA-meistaratitilinn.
Los Angeles Lakers og Boston Celtics spila í kvöld sjöunda og síðasta leikinn sinn um NBA-meistaratitilinn í körfubolta. Leikurinn fer fram í Staples Center í Los Angeles og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 00.50.
Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, fær veglegan bónus fyrir að gera Lakers-liðið að NBA-meisturum annað árið í röð.
Allar líkur eru á því að Fernando Torres verði að verma varamannabekk Spánverja í Suður-Afríku. Evrópumeistararnir hefja leik í dag, gegn Sviss klukkan 14.00.
Los Angeles Lakers gerði lítið úr Boston Celtics í sjötta leik liðanna í nótt. Boston gat tryggt sér titilinn en var aldrei líklegt til þess. Lokatölur 89-67.
Boston Celtics getur tryggt sér NBA-meistaratitilinn í annað skipti á þremur árum og í 18. skipti frá upphafi þegar liðið sækir Los Angeles Lakers heim í sjötta leik liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta en leikurinn fer fram í nótt.
Los Angeles Lakers er lent undir í fyrsta sinn í úrslitakeppninni þetta árið. Það kemur ekki á góðum tíma því Boston Celtics vann frábæran 92-86 sigur í leiknum í nótt og er því komið 3-2 yfir í einvíginu.
Kobe Bryant var ekki kátur á blaðamannafundi á milli fjórða og fimmta leiks Los Angeles Lakers og Boston Celtics í lokaúrslitum NBA-deildarinnar.
Andrew Bynum, miðherji Los Angeles Lakers, glímir við erfið hnémeiðsli í miðjum lokaúrslitum NBA-deildarinnar og hefur ítrekað þurft að tappa af hægra hnénu til þess að létta á bólgunum. Bynum þarf nauðsynlega að fara í aðgerð en frestaði henni þar til eftir tímabilið.
Amare Stoudemire er ekkert að hika við hlutina í Arizona. Kappinn vill fá hæstu laun allra leikmanna Phoenix Suns, ellegar ætlar hann að róa á önnur mið.
Í nótt leika Los Angeles Lakers og Boston Celtics fjórða leik sinn í úrslitum NBA-deildarinnar. Staðan er 2-1 fyrir Lakers sem er í fínum málum í einvíginu.
LA Lakers hefur tekið forystuna á ný í úrslitaeinvíginu geegn Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta.
Boston vann í nótt sigur á LA Lakers, 103-94, í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta og jafnaði þar með stöðuna í rimmu liðanna í 1-1.
Tom Thibodeau, aðstoðarþjálfari Doc Rivers hjá Boston Celtics, og hugmyndasmiðurinn á bak við hinn magnaða varnarleik liðsins verður næsti þjálfari Chicago Bulls samkvæmt fréttum vestra. Bulls mun ráða hann til tveggja ára og hann fær 6,5 milljónir dollara fyrir.
LeBron James ætlar að hegða sér eins og vinsæl rokkhljómsveit á tónleikaferðalagi þegar hann í sumar heimsækir NBA-liðin sem hafa áhuga á að fá hann til sín. James er nefnilega búinn að skipuleggja "Free Agency Tour 2010".
Mikilvægi 102-89 sigurs Los Angeles Lakers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í nótt verður enn mikilvægari eftir smá söguskoðun á gengi liða þjálfa Lakersliðsins, Phil Jackson. Lið hans hafa nefnilega unnið 47 einvígi í röð í úrslitakeppni þar sem þau komast 1-0 yfir.
Los Angeles Lakers er komið í 1-0 í úrslitaeinvíginu á móti Boston Celtics eftir 102-89 sigur í fyrsta leiknum í Los Angeles í nótt. Það var mikil harka í leiknum frá byrjun en Lakers-menn gáfu ekkert eftir undir forustu þeirra Kobe Bryant og Pau Gasol.
Phil Jackson, þjálfari Los Angeles Lakers, hefur verið duglegur að skjóta á andstæðinga liðsins í aðdraganda einvíga þeirra í úrslitakeppninni og hann hefur ekkert látið af þeim sið fyrir úrslitaeinvígið á móti Boston Celtics sem hefst annað kvöld.
Boston Celtics myndi ekki veita af nokkurra daga fríi áður en það mætir Los Angeles Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar. Því miður fyrir það hefst rimman strax í þessari viku.
Kobe Bryant átti stórleik þegar Los Angeles Lakers tryggði sæti sitt gegn Boston í úrslitarimmunni um NBA-titilinn í nótt. Lakers lagði Phoenix Suns 111-103 og er þar með meistari í Austurdeild NBA.
Ron Artest var svo spenntur eftir sigurkörfuna sína gegn Phoenix Suns í fyrrinótt að hann svaf yfir sig daginn eftir og kom of seint á æfingu.
Boston Celtics tryggði sér sigur í Austurdeild NBA með því að leggja Orlando í sjötta leik liðanna, 96-84. Liðið mætir Los Angeles Lakers eða Phoenix Suns í úrslitunum þar sem staðan er 3-2 fyrir Lakers.
Boston Celtics fær í kvöld þriðja tækifærið í röð til þess að slá Orlando Magic út úr úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta og tryggja sér sæti í lokaúrslitunum á móti annaðhvort Los Angeles Lakers eða Phoenix Suns. Staðan er 3-2 fyrir Boston en sjötti leikurinn hefst klukkan 12.30 í Boston og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
LeBron James er samningslaus í sumar og eru mörg félög sem vilja fá besta leikmann heims í sínar raðir. Los Angeles Clippers er eitt þeirra.
Ron Artest, af öllum mönnum, tryggði Los Angeles Lakers sigur á Phoenix Suns í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. Lakers leiðir nú einvígið 3-2.
Kendrick Perkins, miðherji Boston Celtics, verður ekki í banni í sjötta leik Boston Celtics og Orlando Magic í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta en leikurinn fer fram annað kvöld.
Dwight Howard sveiflaði olnboga sínum heldur hressilega eftir að hann reif til sín frákast í fjórða leik Orlando Magic og Boston Celtic í vikunni.