Ólafur: Þetta var fullkomið Stórskyttan unga í liði FH, Ólafur Guðmundsson, fór mikinn í liði FH í gær og ljóst var að hann vildi klára dæmið á heimavelli. Ólafur var að leika sinn síðasta leik fyrir FH í bili en hann spilaði sem lánsmaður frá danska liðinu AGK, sem keypti hann síðasta sumar. Handbolti 5. maí 2011 07:00
Einar Andri: Við erum besta lið á Íslandi "Það er vonlaust að lýsa því. Það er frábært að ná að vinna þetta eftir nítján ár,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfara FH, eftir að hans lið vann Akureyri 3-1 í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 4. maí 2011 22:24
Baldvin: Næsta sem ég geri er að klára ginflöskuna Baldvin Þorsteinsson, leikmaður FH, var kampakátur eftir að liðið hampaði Íslandsmeistaratitlinum í handbolta. Handbolti 4. maí 2011 21:55
Umfjöllun: Bið FH-inga á enda FH-ingar urðu í kvöld Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta skipti í 19 ár þegar þeir unnu sigur á Akureyri, 28-24, í hreint út sagt frábærum handboltaleik fyrir framan 3.000 áhorfendur í Kaplakrika. FH vann úrslitarimmu liðanna 3-1. Handbolti 4. maí 2011 21:06
Framkvæmdastjóri FH: Bærinn er á hvolfi Það verður mikið um dýrðir í Kaplakrika í kvöld þegar fjórði leikur FH og Akureyrar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta fer fram. Handbolti 4. maí 2011 14:45
Áhorfendametið í Krikanum á 19 ára afmæli í dag FH-ingar vonast til þess að slá áhorfendametið í Kaplakrikanum þegar fjórði úrslitaleikur FH og Akureyrar fer þar fram í kvöld. FH-ingar eru 2-1 yfir í úrslitaeinvíginu og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í þessum leik sem hefst klukkan 19.30. Handbolti 4. maí 2011 14:15
Guðlaugur: Sveinbjörn var frábær Guðlaugur Arnarsson var sem klettur í vörn Akureyrar í dag er liðið vann FH 23-22 í æsispennandi leik. Akureyri er 2-1 undir í einvíginu en lék betur í dag en í hinum tveimur leikjunum. Handbolti 1. maí 2011 18:32
Pálmar: Datt þeirra megin í dag Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson var eðlilega hundsvekktur með tapið gegn Akureyri í dag. FH fór tómhent heim að norðan eftir 23-22 sigur Deildarmeistaranna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 1. maí 2011 18:28
Heimir og Baldvin: Ræðst á lokaskotinu Æskufélagarnir Heimir Örn Árnason og Baldvin Þorsteinsson skiptust á léttum skotum eftir sigur Akureyrar á FH í dag, 23-22. Heimir segir að úrslitin í einvíginu ráðist ekki fyrr en á lokaskoti þess, á föstudaginn. Handbolti 1. maí 2011 18:20
Umfjöllun: Enn er líf í Akureyringum Akureyri vann nauman sigur á FH í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í dag. Akureyri vann leikinn 23-22 og því er staðan í einvígi liðanna um titilinn 2-1 fyrir FH. Næst er leikið á miðvikudag. Handbolti 1. maí 2011 16:35
Heimir: Það vill enginn fara í sumarfrí Heimir Örn Árnason, leikmaður Akureyrar, ætlar sér alls ekki að fara í sumarfrí í dag og telur að lið sitt geti hæglega unnið FH í Höllinni á Akureyri kl 16:00 nú síðdegis. Handbolti 1. maí 2011 14:03
Jóhann Gunnar spáir í þriðja leik Akureyrar og FH Jóhann Gunnar Einarsson, leikmaður Fram, hefur verið einn af öflugustu leikmönnum Safamýrapilta í vetur og fékk Vísir hann til að spá fyrir um þriðja leik Akureyrar og FH í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Handbolti 1. maí 2011 13:45
Ársþing HSÍ: Fleiri leikir í úrslitakeppninni næsta vetur Ársþing HSÍ var haldið í dag og bar helst til tíðinda að lítilsháttar breytingar voru gerðar á úrslitakeppni deildanna. Handbolti 30. apríl 2011 20:00
FH einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í 19 ár - myndir FH-ingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla með sigri á Akureyri í þriðja úrslitaleik liðanna á Akureyri á morgun. FH vann 28-26 sigur í öðrum leiknum í Kaplakrika í gær en hafði unnið fyrsta leikinn með einu marki á Akureyri. Handbolti 30. apríl 2011 10:00
Einar Andri: Gerum allt til að landa titlinum „Þetta er góð staða sem við erum komnir í og liðið hefur sýnt flottan karakter í þessum fyrstu leikjum,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld. Handbolti 29. apríl 2011 23:18
Ásbjörn: Þægilegt, en alls ekki búið „Það er virkilega þægilegt að vera komnir í 2-0 í einvíginu,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, leikmaður FH, eftir sigurinn í kvöld. FH vann Akureyri, 28-26, í öðrum leik liðanna sem fram fór í Kaplakrika. Handbolti 29. apríl 2011 23:07
Atli: Ég verð að fara í gamlar æfingabækur "Þetta er alls ekki staðan sem við vildum vera í eftir tvo leiki,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, eftir tapið gegn FH í kvöld. Handbolti 29. apríl 2011 22:53
Baldvin: Þetta getur verið hættuleg staða Þetta var góður sigur hjá okkur og liðheildin var sterk í kvöld," sagði Baldvin Þorsteinsson, leikmaður FH, eftir sigurinn gegn Akureyri í kvöld. Handbolti 29. apríl 2011 22:44
Umfjöllun: Akureyringar komnir út í horn FH er í lykilstöðu í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta eftir sigur á heimavelli í kvöld, 28-26. Staðan er því 2-0, FH-ingum í vil. Handbolti 29. apríl 2011 21:45
Guðmundur Hólmar: Þetta er búið að vera skrautlegt Guðmundur Hólmar Helgason, leikmaður Akureyrar, hefur mikið verið í umræðunni eftir fyrsta leik Akureyrar og FH. Guðmundur fékk að líta rauða spjaldið í leiknum en slapp við bann þar sem dómarar leiksins skiluðu ekki inn agaskýrslu eftir leik. Við það var formaður dómaranefndar HSÍ ósáttur. Handbolti 29. apríl 2011 14:30
Ólafur: Það verður hátíð í Krikanum Annar leikur FH og Akureyrar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta fer fram í Kaplakrika í kvöld. FH vann góðan útisigur í fyrsta leik og kemur sér í kjörstöðu með sigri í kvöld Handbolti 29. apríl 2011 13:30
Afturelding hélt sæti sínu í N1 deild karla Afturelding tryggði sér 2-0 sigur í úrslitaeinvíginu í umspili N1 deild karla í handbolta með því að vinna sjö marka sigur á Stjörnunni, 25-18, í öðrum leik liðanna í Mýrinni í kvöld. Afturelding vann þar með alla fjóra leiki sína í umspilinu og heldur því sæti sínu í N1 deild karla. Handbolti 28. apríl 2011 21:00
Formaður dómaranefndar ósammála Antoni og Hlyni Guðjón L. Sigurðsson, formaður dómaranefndar HSÍ, er ekki sammála þeirri ákvörðun dómaranna Antons Gylfa Pálssonar og Hlyns Leifssonar að sleppa því að senda inn agaskýrslu vegna rauða spjaldsins sem þeir gáfu Akureyringnum, Guðmundi Hólmar Helgasyni, í gær. Handbolti 27. apríl 2011 14:42
Guðmundur Hólmar fer ekki í leikbann HSÍ hefur staðfest að Guðmundur Hólmar Helgason, leikmaður Akureyrar, muni ekki fara í leikbann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum gegn FH í gær. Handbolti 27. apríl 2011 14:14
Alls óvíst hvort Guðmundur Hólmar fari í bann Akureyringurinn Guðmundur Hólmar Helgason fékk að líta umdeilt rautt spjald undir lok leiks Akureyrar og FH í úrslitum N1-deildar karla í gær. Handbolti 27. apríl 2011 12:22
Ólafur: Það verður miklu betri stemning í Krikanum Ólafi Guðmundssyni virtist létt eftir frábæran sigur FH á Akureyri í fyrstu viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. FH tryggði sér sigur á lokasekúndunni og hefur 1-0 forystu í einvíginu. Handbolti 26. apríl 2011 23:38
Atli Rúnar: Hugsaði ekkert sérstakt Atli Rúnar Steinþórsson var kampakátur eftir sigurmark sitt gegn Akureyri í kvöld. Hann skoraði um leið og lokaflautan gall og tryggði Hafnfirðingum forskot í rimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 26. apríl 2011 23:26
Afturelding komin 1-0 yfir á móti Stjörnunni Afturelding steig eitt skref í átt að því að halda sæti sínu í N1 deild karla í handbolta þegar liðið vann 28-27 sigur á Stjörnunni í fyrsta úrslitaleik liðanna um sæti í N1 deild karla á næsta tímabili. Mosfellingar eru þar með komnir í 1-0 en tvo sigra þarf til að tryggja sér sætið í úrvalsdeildinni. Handbolti 26. apríl 2011 22:17
Atli Hilmarsson mjög ósáttur við dómarana Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, var langt frá því að vera sáttur við dómara leiksins gegn FH í kvöld Ástæðan er rauða spjaldið undir lokin. Handbolti 26. apríl 2011 21:56
Umfjöllun: Sigurmark Atla á lokasekúndunni Atli Rúnar Steinþórsson tryggði FH dramatískan sigur með síðasta kasti leiksins gegn Akureyri í kvöld. Lokatölur 21-22. Þetta var fyrsti leikur liðanna um Íslandsmeistaratitilinn en þrjá sigurleiki þarf til að verða meistari. Handbolti 26. apríl 2011 20:43