Skoða uppbyggingu sérstaks búsetuúrræðis fyrir flóttafólk í borginni Borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að hefja viðræður við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið um að fundin verði staðsetning fyrir svokallaða Skjólgarða, búsetuúrræðis fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Innlent 9. maí 2023 08:04
Eigi að „drullast“ til að rukka ferðamenn til að koma upp neyðarþjónustu Þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Þingvallanefndar ætlar að þrýsta á að tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu á Suðurlandi fari af stað að nýju. Verkefnið var sett á ís í Covid en þingmaðurinn segir nú kominn tíma til að hefja það að nýju, þegar von er á miklum fjölda ferðamanna til landsins. Innlent 9. maí 2023 07:01
Gætu dregið ríkið fyrir dóm vegna aðgerðaleysis Náttúruverndarsamtök skoða nú hvort þau geti dregið íslenska ríkið fyrir dómstóla fyrir aðgerðaleysi í hvalveiði- og loftslagsmálum. Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir undiröldu gegn hvalveiðum allt öðruvísi nú en undanfarin ár. Innlent 9. maí 2023 07:01
Hefði verið gott að hafa nemendur í stýrihóp um sameiningar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að gott hefði verið ef framhaldsskólanemendur hefðu fengið sæti við borðið í stýrihópi menntamálaráðuneytisins sem falið var að kanna fýsileika á sameiningum menntaskóla. Innlent 8. maí 2023 21:41
„Þetta hlýtur að teljast óásættanlegt“ Ný skýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala og hvalveiðar er sláandi að sögn matvælaráðherra. Nú fer að hefjast síðasta vertíð núverandi leyfistímabils og ráðherra telur að skoða þurfi málin vel áður en nýtt leyfi verður gefið út. Innlent 8. maí 2023 21:02
Umbæru aldrei slíka meðferð á öðrum dýrategundum Lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir að Íslendingar myndu aldrei sætta sig við að aðrar dýrategundir væru látnar sæta sömu meðferð og hvalir eins og lýst er í nýrri skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar. Ráðherra sé skylt að afturkalla veiðileyfi á grundvelli hennar. Innlent 8. maí 2023 20:59
„Þetta gerir mig bæði öskureiða og sorgmædda“ Móðir stúlku í Laugarnesskóla er bæði öskureið og sorgmædd yfir að borgaryfirvöldum hafi ekki tekist að tryggja heilnæmt skólaumhverfi fyrir börnin sín. Dóttir hennar hafi verið líkt og langveik þegar verst lét eftir heilan vetur í skólastofu með rakaskemmdum. Innlent 8. maí 2023 19:40
„Mér finnst þetta náttúrulega alveg rosalega mikið“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir starfsmannafjölda ráðuneytanna vera mikinn. Hún gagnrýnir að hið opinbera keppi um starfsfólk við markað og bjóði betri kjör. Ekki sé hægt að horfa fram hjá því að báknið hafi blásið út á vakt Sjálfstæðisflokksins. Innlent 8. maí 2023 17:13
Veiðileyfið ekki afturkallað fyrir árið en skýrslan gæti haft áhrif á framhaldið Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir nýja skýrslu Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur vekja upp spurningar hvort endurskoða þurfi hvort atvinnugreinin tilheyri fortíðinni frekar en framtíð. Ekki sé þó hægt að afturkalla veiðileyfi fyrir þetta sumar. Innlent 8. maí 2023 16:44
Umbi vill skýrari svör frá Bjarna um Íslandsbankasöluna Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra. Innlent 8. maí 2023 11:24
Vill fjölga opnum úrræðum í fangelsi og segir mat á sakhæfi til skoðunar Dómsmálaráðherra vill stíga frekari skref í átt að betrunarstefnu og fjölga opnum úrræðum í fangelsi. Hann segir sérfræðinga í ráðuneytinu nú skoða mat á sakhæfi og hefur áhyggjur af skorti á úrræðum fyrir fólk að afplánun lokinni. Innlent 8. maí 2023 07:00
Leggur til nýtt úrræði fyrir alvarlega veika fanga Dómsmálaráðherra mun leggja fyrir ríkisstjórnina tillögur að nýju úrræði fyrir fanga sem glíma við alvarleg andleg veikindi og þá borgara sem þurfa á öryggisvistun að halda. Hann undirbýr nú minnisblað um málið sem hann segir forgangsmál í ráðuneytinu. Innlent 7. maí 2023 18:30
Óheilindi hverra? Málefni Reykjavíkurflugvallar hafa lengi verið í brennidepli. Af þeim sökum hefur margt verið sagt og samþykkt varðandi framtíð flugvallarins. Samhljómur hefur verið í andstöðu þeirra sem búa fjær höfuðborgarsvæðinu, við ógnun á flugöryggi og lokun flugbrauta. Skoðun 7. maí 2023 11:30
Ráðherra skammar stjórnvöld vegna iðnmenntunar Ráðherra í ríkisstjórninni skammast út í stjórnvöld fyrir að sinna ekki iðnmenntun betur í landinu því á sama tíma og ungt fólk hefur áhuga á menntuninni er ekki pláss fyrir það í skólunum, sem sé óboðlegt. Innlent 6. maí 2023 21:05
Ríflega sjö hundruð manns starfa í ráðuneytunum Alls starfa ríflega sjö hundruð manns í ráðuneytum ríkisstjórnar Íslands í dag. Starfsmannafjöldinn er mestur í utanríkisráðuneytinu. Erfitt er að bera saman starfsmannafjölda í öllum ráðuneytum milli ára sökum uppstokkunar á ráðuneytum. Innlent 6. maí 2023 16:39
Sonur Sigurðar Inga nýr skrifstofustjóri Framsóknar Jóhann H. Sigurðsson hefur verið ráðinn skrifstofustjóri Framsóknarflokksins. Jóhann er sonur Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns flokksins. Tekur hann við af Teiti Erlingssyni sem er að taka við sem aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra. Innlent 6. maí 2023 09:18
Kynslóðir saman - grænt búsetuform framtíðar Reykjavíkurborg stendur á tímamótum. Síðasta áratug og þann næsta verða mestu breytingar á borginni í hálfa öld. Framtíðarborgin farin að taka á sig mynd á sínu mesta uppbyggingarskeiði. Það er viðeigandi mitt í HönnunarMars að hafa hugrekki til að kasta fram djörfum hugmyndum um nýja nálgun í búsetuformi. Skoðun 6. maí 2023 09:01
Kató gamli, tíminn og vatnið Seyðisfjörður er ein margra náttúruperla á langri festi slíkra á Austurlandi. Fyrir fjarðarbotni býr fólk sem á sögu og kyn til að bjarga sér sjálft. Þegar hallaði undan fæti í fiskveiðum og -vinnslu hófu íbúar, hægt en örugglega, að skapa sér ný tækifæri og byggðu á náttúrugæðum Seyðisfjarðar. Skoðun 6. maí 2023 08:00
Óvissa um næstu jarðgöng og hvernig þau verða fjármögnuð Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun. Innlent 6. maí 2023 06:12
Starfsfólk hrökklist úr starfi og iðnaðarmenn hvergi sjáanlegir Starfsfólk í Laugarnesskóla hefur sent borgarstjóra Reykjavíkur opið bréf þar sem það krefst úrbóta á starfsaðstæðum sínum og nemanda í Laugarnesskóla. Dæmi séu um að starfsfólk hafi hætt vegna veikinda tengdum myglu. Innlent 5. maí 2023 15:16
Eigendur OR bera ábyrgð á mun meiri skuldum en ríkið hjá Landsvirkjun Ábyrgð eigenda á vaxtaberandi skuldum Orkuveitu Reykjavíkur (OR) er umtalsvert meiri en ríkisbyrgð á skuldum Landsvirkjunar. Hlutfallið var 38 prósent af vaxtaberandi skuldum við árslok hjá OR en 16 prósent hjá Landsvirkjun. Mikið hefur dregið úr ábyrgð eigenda fyrirtækjanna á lánum frá árinu 2010. Innherji 5. maí 2023 14:57
Starfsfólk Flensborgar uggandi og óttast uppsagnir Formaður kennarafélags Flensborgarskólans segir starfsfólk skólans uggandi yfir mögulegri sameiningu Flensborgarskólans og Tækniskólans. Þau hafi fyrst frétt af mögulegum samruna í fjölmiðlum. Þetta sé sparnaðaraðgerð sem þýði að öllum líkindum uppsagnir. Innlent 5. maí 2023 13:01
Þrálátur vandi Pírata Nú þegar meira en tíu ár eru liðin frá stofnun flokksins höfða þessar áherslur ekki til fólks í sama mæli og þær gerðu, og nafnið sem áður var ögrandi er nú orðið hjákátlegt. Umræðan 5. maí 2023 07:40
Hvorki gengur né rekur að koma æfingaflugi úr Vatnsmýrinni Enn var tekist á um flugvöllinn í Vatnsmýrinni að þessu sinni í frísklegum umræðum í Pallborði Vísis og Stöðvar 2. Þar mættust þeir Pawel Bartoszek, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fóru yfir þetta sígilda hitamál. Innlent 4. maí 2023 16:12
Stóraukinn stuðningur við ungt fólk í viðkvæmri stöðu Lífið getur verið flókið og það getur stundum verið erfitt að fóta sig, sérstaklega meðan við erum ung. Við getum auðveldlega hrasað á þessari vegferð sem lífið er. Við sem samfélag verðum að aðstoða ungt fólk aftur á fætur sem lendir í viðkvæmri stöðu, til dæmis vegna andlegra veikinda, og eru ekki virkir þátttakendur í samfélaginu. Skoðun 4. maí 2023 15:00
Straumhvörf fyrir sauðfjárbændur Í lok liðins mánaðar voru staðfest þau gleðilegu tíðindi að Íslensk Erfðagreining muni taka þátt í því að rannsaka riðu í íslensku sauðfé, en riða er langvinnur og ólæknandi smitsjúkdómur sem leggst á sauðfé og veldur svampkenndum hrörnunarskemmdum í heila og mænu. Skoðun 4. maí 2023 14:31
Taka undir áhyggjur foreldra í Laugardal Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar segir nauðsynlegt að koma í veg fyrir allan óleyfisakstur yfir göngustíg við líkamsræktarstöð World Class Laugum í Laugardal í Reykjavík. Borgarfulltrúar taka undir áhyggjur foreldra í hverfinu. Innlent 4. maí 2023 14:00
Frumvarpið sé viðbragð við stóra kókaínmálinu og sjö vikna banni fjölmiðla Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um meðferð einka- og sakamála sem beinir sjónum að frásögn fjölmiðla af skýrslutökum úr dómsal. Frumvarpið er hugsað sem viðbragð við stóra kókaínmálinu og því ástandi sem skapaðist þegar dómari bannaði fréttaflutning úr dómsal í heilar sjö vikur. Innlent 4. maí 2023 13:30
Flugvöllurinn fer hvergi Stjórnmál geta verið allavega. Í mínum huga eru þau mikilvægt tæki til að móta samfélag og vinna að framförum. Átök eru hluti af stjórnmálunum, hluti af lýðræðinu. Almennt gilda í stjórnmálum ákveðnar leikreglur. Þær eru mikilvægar og snúa helst að því að stjórnmálamenn komi fram af heilindum og nýti sér ekki viðkvæm málefni til að skapa ótta meðal borgaranna. Það er ekki aðeins ómerkilegt heldur skaðlegt. Skoðun 4. maí 2023 09:32
Eldra fólk hefur ekki tíma til að bíða eftir réttlæti Kjaragliðnun er pólitísk ákvörðun. Lög um almannatryggingar tryggja lífeyristaka gegn kjaragliðnun, en þrátt fyrir það er kjaragliðnun staðreynd á Íslandi. Skoðun 4. maí 2023 09:00