

Subway-deild karla
Leikirnir

Stoltur Pavel um stóru breytinguna | „Ég hef enga tilfinningu fyrir leiknum“
Pavel Ermolinskij, þjálfari karlaliðs Tindastóls í körfubolta, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld er liðið bar sigurorðið gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna í undanúrslitaeinvígi í úrslitakeppni Subway deildar karla.

Benedikt bjartsýnn fyrir leik þrjú þrátt fyrir tap í kvöld
Benedikt Guðmundsson, þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í körfubolta var að vonum svekktur með að hafa tapað leik tvo gegn Tindastól í úrslitakeppni Subway deildarinnar en hann er þó stoltur af frammistöðu sinna leikmanna sem stigu upp eftir algjört afhroð í leik eitt.

Umfjöllun: Tindastóll 97-86 Njarðvík | Tindastóll 2-0 yfir í einvíginu
Tindastóll bar sigurorðið af Njarðvík er liðin mættust í leik 2 í undanúrslita einvígi sínu í úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta í kvöld. Spilað var í dúndrandi stemningu í Síkinu á Sauðárkróki.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur - Þór Þ. 75-83 | Þórsarar taka forystuna gegn meisturunum
Þór frá Þorlákshöfn vann góðan átta stiga sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld, 75-83. Þórsarar eru því komnir með 1-0 forystu í einvíginu.

„Eftir jól höfum við verið besta varnarliðið í deildinni“
Þór Þorlákshöfn vann Val 75-83 í fyrsta leik í undanúrslitum Subway-deildarinnar. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var afar ánægður með varnarleik Þórs sem að hans mati skilaði sigrinum.

Pavel: Njarðvík var ekki að leggjast niður heldur vorum við að leggja þá niður
Það var ljóst strax á fyrstu mínútum leiks Njarðvíkur og Tindastóls í hvað stefndi þegar liðin mættust í fyrsta leik undarúrslita Íslandsmótsins í körfuknattleik karla í Ljónagryfjunni í kvöld. Stefnan var á sigur gestanna af Sauðárkrók en þeir byrjuðu ótrúlega vel og slepptu aldrei hálstakinu sem þeir náðu Njarðvíkingum í. Leikar enduðu 52-85 fyrir Tindastól sem leiða 1-0 í einvíginu sem fer norður á sunnudag.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík – Tindastóll 52-85 | Tindastóll kafsigldi Njarðvíkinga í heimahöfn
Tindastóll er kominn í 1-0 forystu í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik karla. Þeim tókst að bursta Njarðvíkinga í Njarðvík og var það að þakka geggjaðri byrjun. Leikar enduðu 52-85 og liðin mætast að nýju fyrir norðan á sunnudaginn.

„Við ætluðum okkur klárlega stærri hluti“
„Hjalti er búinn að vera í fjögur ár í Keflavík og í körfuboltaheiminum er það mjög langur tími. Heilt yfir hefur hann staðið sig vel og er samningslaus eftir tímabilið. Ég var ekki búinn að eiga neitt spjall við hann um að hann myndi hætta,“ sagði Magnús Sverrir Þorsteinsson, formaður Keflavíkur, í samtali við Vísi.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Haukar – Þór Þorl. 93-95 | Þórsarar í undanúrslit eftir ævintýralegan sigur
Þór Þorlákshöfn er komið í undanúrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir ævintýralegan sigur í oddaleik í Ólafssal.

„Haukar tóku fleiri brauðmola en við nýttum færin okkar betur“
Þór Þorlákshöfn vann tveggja stiga sigur á Haukum í Ólafssal 93-95 og tryggði sér farseðilinn í undanúrslit. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var afar ánægður með sigur í oddaleik.

Allt undir í Ólafssal í kvöld: „Vil frekar að menn prjóni yfir sig“
Það ræðst í kvöld hvort lið Hauka eða Þórs úr Þorlákshöfn fer í sumarfrí og um leið verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Máté Dalmay, þjálfari Hauka, vill frekar að sínir menn „prjóni aðeins yfir sig“ en að þeir mæti til leiks eins og í Þorlákshöfn á laugardaginn.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Haukar 94-82 | Þór knúði fram oddaleik
Þór Þorlákshöfn vann tólf stiga sigur á Haukum 94-82. Þórsarar voru ekki á því að fara í sumarfrí í kvöld. Heimamenn tóku frumkvæðið snemma og gáfu Haukum ekki færi á að koma til baka.Úrslitin þýða að það verður oddaleikur í Ólafssal á mánudaginn.

„Maður nýtur þess að spila í úrslitakeppninni“
Þór Þorlákshöfn vann tólf stiga sigur á Haukum 94-82. Emil Karel Einarsson, leikmaður Þórs Þorlákshafnar, var ánægður með sigurinn og var spenntur fyrir oddaleiknum á mánudaginn.

Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 97-79 | Stólarnir í undanúrslit eftir öruggan sigur
Tindastóll er komið í undanúrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir frábæran sigur á Keflavík á Sauðárkróki í kvöld. Tindastóll vann einvígið 3-1.

Hjalti Þór hættur með Keflavík
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur í Subway-deild karla, er hættur með liðið. Þetta staðfesti Hjalti Þór eftir að Keflavík féll úr leik í úrslitakeppni Subway-deildarinnar.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 68-74 | Valur í undanúrslit og sendi Stjörnuna í sumarfrí
Íslandsmeistarar Vals unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni í 8-liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta í Umhyggjuhöllinni í kvöld. Með sigrinum eru Valsmenn komnir áfram í undanúrslit keppninnar og er keppnistímabili Stjörnunnar lokið í ár.

Arnar: Bara myrkur og mannaskítur framundan
Arnar Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta var svekktur eftir að lið hans tapaði gegn Íslandsmeisturum Vals í 8-liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta í kvöld í Umhyggjuhöllinni. Með tapinu eru Stjörnumenn úr leik og er því körfubolta tímabilinu lokið hjá Garðabæjarliðinu.

Oddaleikur eða sumarfrí?
Stjarnan fær Val í heimsókn í Umhyggjuhöllina í kvöld í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Subway deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.

„Það er helvítis samheldni í okkur núna“
„Ég er ekkert eðlilega kátur og stoltur,“ sagði afar ánægður Maté Dalmay eftir glæsilegan sigur Hauka á Þór Þorlákshöfn í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í Ólafssal í kvöld. Liðið var án tveggja mikilvægra pósta í þeim Norbertas Giga og Darwin Davis Jr. Sigurinn þýðir að Haukar eru komnir 2-1 yfir í einvíginu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 100-78 | Sópurinn brotnaði
Tindastóll hefði með sigri tryggt sér sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta en Keflavík var ekki alveg á því máli að láta sópa sér úr keppni. Keflavík vann einstaklega öruggan sigur og einvígið lifir því áfram.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Þór Þ. 104-90 | Haukar komnir í forystu
Haukar tóku á móti Þór Þorlákshöfn í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Hvort lið hafði unni sitt hvora viðureignina fyrir leik kvöldsins og það var því mikið undir í Ólafssal í kvöld.

Hjalti Þór eftir að Keflavík braut sópinn: Megum ekki fara of hátt upp
Keflvíkingar unnu yfirburða sigur á Tindastóli í kvöld í þriðju viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla, lokatölur 100-78. Keflvíkingar virtust vera með góð tök á leiknum allt frá upphafi og gestirnir aldrei líklegir til að gera leikinn spennandi.

„Það er akkúrat ekkert sem ég get gert í því“
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, segir ekkert pláss fyrir værukærð hjá sínum mönnum fyrir leik kvöldsins við Keflavík í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Tindstóll leiðir einvígið 2-0 og þarf aðeins einn sigur enn til að tryggja sæti í undanúrslitum.

Kári Jónsson: Var búinn að vera lélegur framan af leik
Valur vann Stjörnuna 96-89. Valur er því einum sigri frá því að komast í undanúrslitin. Kári Jónsson, leikmaður Vals, fór á kostum í fjórða leikhluta og gerði sautján stig á fimm mínútum.

Leik lokið: Njarðvík - Grindavík 102-93 | Njarðvíkingar fyrstir í undanúrslit
Fyrr í kvöld áttust Njarðvík og Grindavík við í þriðja leik sínum í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta. Leikurinn fór fram í Ljónagryfjunni heimavelli Njarðvíkinga. Njarðvíkingar byrjuðu mun betur en Grindvíkingar veittu harðari mótspyrnu þegar leið á. Það dugði hins vegar ekki til og Njarðvík sigraði 102-93 og einvígið 3-0.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan 96-89 | Kári Jónsson kláraði Stjörnuna
Valur vann Stjörnuna í hörkuleik 96-89. Stjarnan komst tíu stigum yfir þegar fimm mínútur voru eftir en þá tók Kári Jónsson málin í sínar hendur og gerði 17 stig á fimm mínútum og sá til þess að Valur er komið í 2-1 í einvíginu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Ég er augljóslega mjög fúll“
Grindavík er úr leik í úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta eftir ósigur á útivelli gegn Njarðvík, 102-93, fyrr í kvöld í þriðja leik liðanna. Það var því að vonum ekki bjart yfir Jóhanni Þór Ólafssyni, þjálfara Grindvíkinga, þegar fréttamaður Vísis ræddi við hann að leik loknum.

Umfjöllun: Tindastóll - Keflavík 107-81 | Tindastóll valtaði yfir Keflavík og er kominn í kjörstöðu
Tindastóll og Keflavík leiddu saman hesta sína í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Tindastóll burstaði Keflavík með 26 stiga mun, 107-81 og eru Stólar þar með komnir 2-0 yfir í einvígi liðanna.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Haukar 96-75 | Þórsarar komu sterkir til baka og jöfnuðu metin
Þór Þorlákshöfn hafði betur, 96-75, gegn Haukum í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni Subway-deildar karla í dag og er staðan í einvíginu því orðin 1-1.

„Stuðningsmenn Grindavíkur kveiktu í mér“
Njarðvík hafði betur gegn Grindavík 86-94. Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, gerði síðustu sjö stig Njarðvíkur og kláraði leikinn. Haukur var brattur eftir leik og sagði að stuðningsmenn Grindavíkur hafi kveikt í sér.