
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Höttur 98-92 | Haukar höfðu betur í einvígi nýliðanna
Það var himinn og haf milli fyrri og seinni hálfleiks Hauka. Höttur spilaði frábærlega í fyrri hálfleik þar sem hvert þriggja stiga skotið á fætur öðru fór ofan í og voru gestirnir níu stigum yfir í hálfleik.Haukar keyrðu yfir Hött í þriðja leikhluta. Gestirnir komu til baka í fjórða leikhluta en það dugði ekki til og Haukar fögnuðu sex stiga sigri 98-92.