Hamar sendi Val í sumarfrí Kvennalið Hamars í Iceland Express deildinni vann í kvöld öruggan 70-51 sigur á Val og er fyrir vikið komið í undanúrslit deildarinnar eftir 2-0 sigur í einvígi liðanna. Körfubolti 4. mars 2009 21:05
Úrslitakeppnin hjá stelpunum í kvöld Valur tekur á móti Hamri í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í Vodafonehöllinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Körfubolti 4. mars 2009 16:00
KR-stúlkur lögðu Grindavík Kvennalið KR vann Grindavík 64-57 í hörkuleik í úrslitakeppni Íslandsmótsins í kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðanna en liðið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í undanúrslit. Körfubolti 3. mars 2009 20:54
Hamar í forystu gegn Val Kvennalið Hamars úr Hveragerði vann Val í kvöld 72-63 en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni Íslandsmóts kvenna í körfubolta. Liðið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst í undanúrslit. Körfubolti 2. mars 2009 21:03
Melissa Mitidiero byrjar vel með Val Bandaríski bakvörðurinn Melissa Mitidiero hefur byrjað vel með Val í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 27. febrúar 2009 14:01
Signý varði aftur yfir hundrað skot Valskonan Signý Hermannsdóttir náði því að verja yfir 100 skot annað árið í röð þegar hún varð sex skot frá Grindvíkingum í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í gær. Körfubolti 26. febrúar 2009 16:30
Sigrún er tólf tommu ryðfrír nagli KR-konan Sigrún Ámundadóttir kom miklu meira við sögu í sigri KR á Hamar í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld en búist var við því hún átti ekki að geta spilað leikinn vegna meiðsla. Körfubolti 25. febrúar 2009 22:30
KR tryggði sér 3. sætið með frábærum seinni hálfleik KR-konur unnu fjórtán stiga sigur á Hamar, 62-48, í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld og tryggðu sér þar með þriðja sætið í deildinni. Sport 25. febrúar 2009 20:57
Keflavík fór létt með deildarmeistarana Keflavík vann í kvöld stórsigur á deildarmeisturum Hauka á heimavelli í lokaumferð Iceland Express deildar kvenna. Körfubolti 25. febrúar 2009 20:43
Haukastúlkur tóku við bikarnum (myndir) Haukastúlkur töpuðu í kvöld 61-54 fyrir Hamri í A-riðli Iceland Express deildarinnar á Ásvöllum. Þær voru hinsvegar fljótar að gleyma tapinu því eftir leikinn fengu þær afhentan bikarinn fyrir að vinna deildameistaratitlinnn sem þær tryggðu sér á dögunum. Körfubolti 22. febrúar 2009 21:36
Keflavík kom fram hefndum Keflavík lagði KR 79-70 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna í körfubolta og hefndi þar með fyrir tapið í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. Körfubolti 21. febrúar 2009 17:34
Keflavík öruggt með 2. sætið Keflavík tryggði sér í kvöld 2. sæti A-riðils í Iceland Express deild kvenna með sigri á Hamar í Hveragerði, 81-76. Körfubolti 18. febrúar 2009 20:56
Haukar lögðu bikarmeistarana Haukar unnu í kvöld öruggan ellefu stiga sigur á nýkrýndum bikarmeisturum KR, 83-72. Þar með er ljóst að KR á engan möguleika að ná sér í annað sæti deildarinnar. Körfubolti 18. febrúar 2009 19:56
KR á 110 ára afmæli í dag Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, var stofnað á þessum degi árið 1899 og er því 110 ára í dag. Það var því tvöföld ástæða fyrir kvennalið KR í körfunni að fagna glæstum sigri sínum í bikarkeppninni í gær. Körfubolti 16. febrúar 2009 11:52
Grindavík lagði Val Grindavíkurstúlkur náðu að halda spennu í toppbaráttu B-riðilsins í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar þær gerðu góða ferð í bæinn og lögðu Val 61-58. Körfubolti 11. febrúar 2009 21:54
Haukastúlkur deildarmeistarar Kvennalið Hauka tryggði sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deildinni með öruggum sigri á Keflavík á Ásvöllum 82-67 og um leið heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina. Körfubolti 8. febrúar 2009 20:42
Toppslagur á Ásvöllum í kvöld Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitil kvenna í körfubolta takist liðinu að vinna Keflavík en liðin mætast að Ásvöllum klukkan 19:15 í kvöld. Körfubolti 8. febrúar 2009 13:09
KR í þriðja sætið KR-stúlkur unnu í dag góðan sigur á Hamri í Hveragerði 79-76 í A-riðli Iceland Express deildar kvenna og fyrir vikið er KR komið í þriðja sætið með 20 stig en Hamar hefur 18 stig. Körfubolti 7. febrúar 2009 19:50
Hildur tryggði KR sigur á Keflavík Haukar unnu í kvöld sigur á Hamar í Hveragerði, 72-63, en á sama tíma vann KR góðan sigur á Keflavík í æsispennandi leik, 78-74. Körfubolti 4. febrúar 2009 21:06
Stórsigur Grindavíkur Grindavík vann í dag stórsigur á Fjölni í B-riðli Iceland Express deild kvenna í Grafarvoginum, 72-42. Körfubolti 1. febrúar 2009 18:45
Birna skoraði 31 stig í sigri Keflavíkur Þrír leikir voru á dagskrá í Iceland Express deild kvenna í kvöld, einn í A-riðli og tveir í B-riðli. Körfubolti 28. janúar 2009 21:05
Keflavík og KR leika til úrslita Það verða Keflavík og KR sem leika til úrslita í Subway bikar kvenna í körfubolta. Liðin tryggðu sér sæti í úrslitum í dag með stórsigrum í undanúrslitaviðureignunum. Körfubolti 25. janúar 2009 17:33
Deildinni skipt í tvo riðla Nú hefur Iceland Express deild kvenna verið skipt í tvo riðla og er búið að raða niður leikjunum í fyrstu umferðinni í báðum riðlum. Körfubolti 23. janúar 2009 18:05
Haukar styrktu stöðu sína á toppnum Haukar unnu í kvöld sigur á Hamar í Iceland Express deild kvenna, 81-72, og styrktu þar meðs töðu sína á toppi deildarinnar. Körfubolti 21. janúar 2009 20:54
KR vann botnliðið KR vann í dag fremur auðveldan sigur á Fjölni, 90-57, eftir að hafa lent undir að loknum fyrsta leikhluta, 23-19. Körfubolti 17. janúar 2009 17:52
KR upp fyrir Val Þrettánda umferðinn í Iceland Express deild kvenna í körfubolta fór fram í kvöld. KR vann öruggan 77-53 sigur á Val og hirti þar með fjórða sætið af Valsliðinu. Körfubolti 14. janúar 2009 20:54
Grindavík vann ÍR Grindvíkingar eru komnir í undanúrslit Subway-bikars karla eftir sigur á ÍR-ingum á heimavelli í kvöld 105-78. Átta liða úrslitum keppninnar lýkur annað kvöld með viðureign Njarðvíkur og Hauka. Körfubolti 12. janúar 2009 20:49
KR-stúlkur burstuðu Hauka KR-stúlkur gerðu sér lítið fyrir og burstuðu Hauka 93-65 á Ásvöllum í 8-liða úrslitum Subway bikarsins í körfubolta í kvöld. Körfubolti 11. janúar 2009 18:42
Margrét Kara sýndi fjölhæfni sína í fyrsta leik Margrét Kara Sturludóttir sýndi fjölhæfni sína í fyrsta leik sínum í KR-búningnum í Iceland Express deild kvenna í gær. Körfubolti 8. janúar 2009 15:15
Valur lagði Hamar Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld þar sem Valur vann meðal annars eins stigs sigur á Hamar á heimavelli, 61-60. Körfubolti 7. janúar 2009 21:07