Sumir eru hræddir við risann Margar af ferskustu hljómsveitum landsins eiga það sameiginlegt að vera á mála hjá einyrkjanum Haraldi Leví Gunnarssyni, sem starfrækir plötuútgáfuna Record Records. Hann segir Stíg Helgasyni að það sé ekki á döfinni að leyfa stærri útgáfu að gleypa sig. Tónlist 11. ágúst 2012 20:00
Viggó og Víóletta syngja á Gay Pride í New York "Hann þekkti lagið en upprunalega er þetta Don‘t Rain on my Parade með Barbra Streisand og hann vildi að við myndum flytja lagið á ensku með sama boðskap og við gerum á íslensku,“ segir Bjarni Snæbjörnsson leikari sem skipar hið konunglega söngleikjapar Viggó og Víólettu ásamt leikkonunni Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur. Þau eru flytjendur lags Hinsegin daga í ár, Rönd í regnboga, og hefur nú verið boðið að flytja það og bregða á leik á næstu Gay Pride-hátíð í New York í júní að ári liðnu. Tónlist 11. ágúst 2012 07:00
Glæsilegur afmælispakki Þeir Kenneth Gamble og Leon Huff stofnuðu Philadelphia International plötufyrirtækið árið 1971 í Fíladelfíuborg. Fyrir nokkrum vikum gaf Harmless-útgáfan út veglegan 40 ára afmælispakka með tónlist Philadelphia International. Harmless er þekktust fyrir ódýrar endurútgáfur af fönki og grúvi, en hér hafa forsvarsmenn hennar ákveðið að leggja allt undir. Lífið 10. ágúst 2012 20:00
Dj Equal á Vegamótum Plötusnúðurinn Dj Equal er á Evróputúr og spilar á Íslandi í kvöld. Hann kemur fram á Vegamótum ásamt Dj B-ruff og Jay-O. Equal er funheitur í bransanum, spilar meðal annars með Beyonce og systur hennar Solange, Snoop Dogg og og N.E.R.D. Hann spilar vikulega á heitustu stöðunum í New York, LA, Miami og víðar. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Equal spila í Chicago fyrr í sumar. Kvöldið hefst kl 23 og er frítt inn. Nánar um atburðinn á Facebook. Tónlist 10. ágúst 2012 14:00
Stuðmenn verða með aukatónleika Klukkan tíu í morgun hófst sala á stórtónleika Stuðmanna í Hörpu. Innan 15 mínútna frá því að miðasala hófst varð ljóst að uppselt yrði á tónleikana og var þegar hafist handa við skipulagningu annarra tónleika klukkan ellefu sama kvöld. Gert er ráð fyrir að sala á þá geti hafist um hádegisbil. Tónlist 10. ágúst 2012 11:51
Engar skorður settar í nýju popprokklagi "Ég samdi lag og texta, syng aðalröddina og bakraddirnar og spila alla strengi, svo ég held að það sé óhætt að segja að þetta lag sé svolítið ég,“ segir Eurovision-farinn Greta Salóme Stefánsdóttir hlæjandi. Tónlist 10. ágúst 2012 11:00
Björk söng í Noregi í gær Söngkonan Björk fær ágæta einkunn í norska blaðinu Aftenposten eftir tónleika sem hún hélt þar í landi í gær. Gagnrýnandi bendir á að söngkonan hafi ávallt þótt óvenjuleg og engin breyting hafi verið á því í gærkvöld. Hún sé jafnvel enn furðulegri nú í ár, en áður. Gagnrýnandi blaðsins minnist líka tónleikanna sem Björk hélt á Hróarskeldu í júlí og segir að margir hafi orðið fyrir vonbrigðum. Tónleikarnir þá hafi þó verið með því besta sem hann hefur séð í langan tíma. Hann hafi kunnað að meta tónlist Bjarkar enn betur í gær þegar hann heyrði hana að nýju. Tónlist 10. ágúst 2012 09:09
Glimmerskreytt geðveiki Rafpoppararnir í Passion Pit sendu frá sér aðra breiðskífu sína á dögunum en hafa þurft að aflýsa tónleikum vegna slæmrar geðheilsu söngvarans. Tónlist 9. ágúst 2012 11:00
Védís hefur sólóferilinn að nýju „Þetta er svo ríkt í mér og það sem gerir mig hamingjusamasta og það liggur beinast við að rækta garðinn sinn,“ segir söngkonan Védís Hervör Árnadóttir. Hún flytur eigin tónsmíðar í fyrsta sinn í langan tíma annað kvöld sem gestur Ragnheiðar Gröndal í tónleikaröð hennar á Café Haiti klukkan hálf tíu. Tónlist 9. ágúst 2012 07:30
Voffinn verður ljón Rapparinn Snoop Dogg kom öllum á óvart á dögunum þegar hann sagðist vera búinn að breyta nafni sínu í Snoop Lion. Ekki nóg með það, þá er hann hættur í rappinu og hyggst senda frá sér reggíplötu. Tónlist 2. ágúst 2012 22:00
Hafnar amerískum þætti en vill syngja í Eurovision Leonice hefur sent frá sér nýtt lag. Þá biðlar hún til RÚV að fá að fara fyrir Íslands hönd í Eurovision. Tónlist 2. ágúst 2012 12:00
Friðrik Dór syngur um Al Thani "Þetta er öðruvísi en allt sem ég hef gert áður og það er eiginlega það sem gerir þetta skemmtilegt fyrir mér,“ segir söngvarinn Friðrik Dór sem frumflutti nýtt lag í gær. Lagið verður á nýrri plötu sem hann stefnir á að gefa út í haust. Tónlist 2. ágúst 2012 10:53
Hæggeng sveimtónlist í djassstíl "Um er að ræða hæggenga og stemningsfulla sveimtónlist í aflöppuðum djassstíl,“ segir Pan Thorarensen, eða raftónlistarmaðurinn Beatmakin Troopa, inntur eftir lýsingu á tónlistinni á nýjustu plötu sinni, If You Fall You Fly. Fjögur ár eru liðin frá útgáfu breiðskífu hans, Search for Peace, en hún fékk verðskuldaða athygli í raftónlistarheiminum hér og erlendis. Tónlist 28. júlí 2012 15:00
Frumsýning á glænýju myndbandi frá Tilbury Vísir frumsýnir hér nýtt myndband frá Tilbury. Myndbandið er við lagið "Drama“ og gerist í sérkennilegri garðveislu hjá ungri stúlku. Tónlist 27. júlí 2012 12:21
Þeytir skífum af ástríðu fyrir dansóðan landann Francesca Lombardo er plötusnúður á uppleið og þeytir skífum á Faktorý annað kvöld fyrir íslenska dansunnendur. Tónlist 26. júlí 2012 15:30
Nýtt myndband frá Tilbury frumsýnt á Vísi á morgun Nýtt myndband frá Tilbury lítur dagsins ljós á morgun. Myndbandið er við lagið Drama og gerist í sérkennilegri garðveislu hjá ungri stúlku. Tónlist 26. júlí 2012 14:00
Opna öfluga vefsíðu um tónlist "Mér fannst eitthvað vanta til að skrásetja þessa íslensku tónlistarsenu sem er í gangi og hefur verið mjög öflug síðustu ár,“ segir tónlistarspekingurinn Ólafur Halldór Ólafsson, betur þekktur sem Óli Dóri. Hann hefur sett á laggirnar vefsíðuna straum.is sem verður með virka og daglega tónlistarumfjöllun. Tónlist 26. júlí 2012 13:00
Engin kvöð að þykjast vera ástfanginn af Þórunni "Við vildum hafa myndbandið bjart og fallegt og að það fengi fólk til að dilla sér og brosa. Rauði þráðurinn er ástfangið par í helgarferð,“ segir söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir um væntanlegt myndband við lag sitt So High. Tónlist 26. júlí 2012 10:15
Geir með trommara Simpsons "Ég er með hluta af bestu hljómlistarmönnum Íslands, Don Randi, fyrrum píanóleikara Frank Sinatra, og einum besta trommuleikara heims sem heitir Bernie Dresel,“ segir Geir Ólafsson sem var við upptökur í Stúdíói Sýrlandi fyrir væntanlega hljómplötu sína í síðustu viku ásamt einvalaliði tónlistarmanna og Þóri Baldurssyni, sem stýrði upptökunum. Tónlist 25. júlí 2012 09:00
Söngfuglarnir í Hamrahlíð frumflytja íslenskar tónsmíðar Hamrahlíðarkórinn frumflytur nýjar útsetningar Hafliða Hallgrímssonar á íslensku þjóðlögunum Móðir mín í kví, kví og Bí, bí og blaka á tónleikum í Háteigskirkju í kvöld. Hafliði lauk við þessar útsetningar nú í vor og tileinkar þær Þorgerði og "söngfuglunum í Hamrahlíð". Tónlist 24. júlí 2012 12:48
Saman á ný Drengjasveitin Backstreet Boys vinnur að sinni fimmtu plötu og er þetta í fyrsta sinn sem allir meðlimir sveitarinnar koma saman í hljóðveri síðan árið 2005. Tónlist 20. júlí 2012 16:00
Breytt rokk úr Breiðholtinu frá fyrrum björtustu voninni Önnur breiðskífa Sudden Weather Change kemur út á miðvikudaginn og er margt spennandi í vændum hjá sveitinni sem ferðast vestur um haf með haustinu. Tónlist 19. júlí 2012 10:00
Goðsögn spilar teknó fyrir útvalda "Fáum hefur tekist jafn vel að teknó-væða mannfólkið eins og Dave Clarke,“ segir Arnviður Snorrason betur þekktur sem Addi Exos. Hann er meðal skipuleggjenda framkomu eins frægasta teknó-plötusnúð heims á Þýska barnum næsta laugardagskvöld. Tónlist 16. júlí 2012 11:00
Átján tónleikar á sama stað Jónas Sigurðsson tónlistarmaður fagnar væntanlegri útgáfu þriðju plötu sinnar, Þar sem himin ber við haf, á nokkuð sérstakan máta. Jónas kemur fram sex sinnum í viku í félagsheimilinu Fjarðaborg á Borgarfirði eystri næstu þrjár vikur í þeim tilgangi að kynna plötu sína. Alls mun Jónas halda átján tónleika á þremur vikum. Tónlist 13. júlí 2012 16:00
Stelpurnar elska mig „Ég veit ekki betur en að ég sé með eina þátt landsins sem býður upp á að fólk geti hringt inn og flippað og verið í stuði,“ segir útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn Sigurður Hlöðversson, einnig þekktur sem Siggi Hlö, eða Hlö-vélin. Tónlist 13. júlí 2012 12:00
Strax byrjaðir á nýrri plötu „Við gerðum 34 lög í vetur og völdum ellefu þar úr og settum á diskinn,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, Fjallabróðir með meiru, um diskinn Föstudagslögin sem hann og Sverrir Bergmann gáfu út síðastliðinn föstudag. Tónlist 13. júlí 2012 11:00
Nas kveður fortíðina Tíunda plata rapparans Nas kemur út í næstu viku. Hann segir plötuna afar mikilvæga fyrir sig, þar sem hann þurfi að segja skilið við fortíðina. Tónlist 12. júlí 2012 12:00
Merkilegt framhald fyrir tónvísindasmiðjur Bjarkar Biophiliu-tónvísindasmiðjur Bjarkar hafa farið sigurför um heiminn. Stór áfangi næst með opnun slíkrar smiðju í Borgarbókasafninu í New York á fimmtudaginn. Tónlist 11. júlí 2012 11:00
Mammút kláraði dýrslega breiðskífu í draumaparadís „Við pökkuðum stúdíóinu niður og settum það upp í stofunni á sveitabænum Kóngsbakka,“ segir Ása Dýradóttir, bassaleikari hljómsveitarinnar Mammút. Tónlist 11. júlí 2012 11:00
Selur 10.000 plötur heima hjá sér "Ég er að reyna að grisja safnið eins og ég get svo ég geti haldið áfram og safnað af meiri fókus. Það kom tímabil þar sem ég ætlaði að kaupa allar plötur heimsins en það er víst óþarfi,“ segir Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarmógúll, sem verður með yfir 10.000 titla úr tónlistarsafni sínu á garðsölu um komandi helgi. Tónlist 11. júlí 2012 09:00