

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Forsetinn lét það vera að slamma og fara í pyttinn
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er heiðursgestur stærstu þungarokkshátíðar heims, sem haldin er í Wacken í Þýskalandi um helgina.

Býður þeim sem ekki komast úr bænum á tónleika
Björn Thoroddsen, einn besti gítarleikari landsins og þó víðar væri leitað, blæs til tónleika í dag og annað kvöld við gömlu höfnina í Reykjavík. Ekkert verður rukkað inn á tónleikana og markmiðið er að þeir sem ekki komast út úr bænum um helgina geti gert sér glaðan dag.

Samkeppnin mikil en rokkararnir tryggur hópur
Stjórnendur veitingastaðarins Lemmy ráðast ekki á garðinn sem hann er lægstur og bjóða nú upp á sannkallaða rokkhátíð í miðbæ Reykjavíkur á sama tíma og íbúar höfuðborgarsvæðisins yfirgefa suðvesturhornið í stórum stíl.

Sara Péturs á von á barni
Tónlistarkonan Sara Pétursdóttir, sem þekktust er undir listamannanafninu Glowie, og kærastinn Guðlaugur Andri Eyþórsson, klippari og ljósmyndari, eiga von á sínu fyrsta barni.

Bað gesti um vatnsgusur en brást ókvæða við
Rapparinn Cardi B er laus allra mála þrátt fyrir að hafa grýtt hljóðnema í tónleikagest í Las Vegas í Bandaríkjunum.

Finna ekki lyf sem virka en halda í vonina
Erfiðlega gengur að finna lausn á vandamálunum sem fylgja ólæknandi taugasjúkdóminum sem söngkonan Céline Dion er með. Söngkonan hefur frestað öllum tónleikum sínum vegna sjúkdómsins.

Forseti Íslands á leið í drulluna í Wacken
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heldur á morgun til Þýskalands þar sem hann er heiðursgestur á tónlistarhátíðinni Wacken Open Air sem fram fer dagana 2.–5. ágúst. Mikið úrhelli hefur gert tónleikagestum erfitt um vik enda hluti tónleikasvæðisins orðinn að drullusvaði.

Lizzo segir ásakanir um fitusmánun vera ósannar
Bandaríska tónlistarkonan Melissa Viviane Jefferson, betur þekkt sem Lizzo, segir ásakanir sem settar voru fram af þremur fyrrverandi dönsurum hennar vera ósannar. Ásakanirnar snúa meðal annars að meintri kynferðislegri áreitni, fitusmánun og fjandsamlegu vinnuumhverfi.

Innipúkar eiga von á góðu
Það verður nóg um að vera um land allt um verslunarmannahelgina. Þeir sem ætla að halda sig í höfuðborginni og vera svokallaðir Innipúkar eiga líka von á góðu.

Sambandsslit stjörnupars skekja tónlistarheiminn
Tónlistarkonan Rosalía og reggaeton-söngvarinn Rauw Alejandro hafa slitið trúlofun sinni og eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Fregnirnar eru áfall fyrir heim latíntónlistar enda eru þau bæði risastjörnur innan hans.

Spænskur landsliðsmaður þeytir skífum ber að ofan í stofunni heima
Borja Iglesias, framherja Real Betis og spænska landsliðsins í fótbolta, er fleira til lista lagt en að skora mörk. Hann er nefnilega vinsæll plötusnúður.

Lizzo sökuð um áreitni og fitusmánun
Þrír dansarar hafa höfðað mál gegn poppstjörnunni Lizzo vegna ásakana sem snúa að kynferðislegri áreitni, fitusmánun og því að hafa búið til fjandsamlegt vinnuumhverfi.

Acox: Sótti innblástur í Drake í sínum fyrstu lögum
Kristófer Acox hefur haft í nægu að snúast undanfarna mánuði á meðan körfuboltadeildin hér heima er í fríi. Á dögunum opinberaði hann óvænta hlið á sér er hann gaf út smáskífuna Bjartar nætur undir listamannsnafninu Acox.

Stjörnur úr Söngvakeppninni saman í stúdíó
Diljá Pétursdóttir og vestfirska hljómsveitin Celebs eru í hljóðveri þessa dagana að leggja lokahönd á nýtt lag. Lagið verður gefið út þarnæsta mánudag, 14. ágúst.

Uppskeran
Þessi pistill er tileinkaður minningu Sinéad O´Connor og hugrekki hennar að segja sannleikann.Öll sjáum við árangur í mismunandi ljósi. Það sem þú kallar velgengni gæti litið allt öðruvísi út fyrir mig.

Mexíkóskt fylki bannar söngtexta sem innihalda kvenfyrirlitningu
Yfirvöld í Chihuahua-fylki í Norðvestur-Mexíkó hafa bannað lifandi flutning tónlistarmanna á söngtextum sem hvetja til ofbeldis gagnvart konum.

„Tónlistin er það sem gerir lífið þess virði að lifa því“
„Tónlist hefur alltaf verið svo sjálfsagður partur af lífi mínu. Það hafði auðvitað mikil áhrif á mig að pabbi minn, Kristján Eldjárn heitinn, starfaði sem gítarleikari þannig að tónlistin var alltaf mjög stór partur af heimilislífinu og það er eitthvað sem ég er mjög þakklát fyrir,“ segir tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn. Blaðamaður ræddi við hana um tónlistina og lífið í Suður Frakklandi, þar sem hún er búsett.

Grýtti hljóðnema í aðdáanda
Framkoma rapparans Cardi B á tónleikum í Las Vegas í gær fór ekki sem skyldi. Við flutning á laginu Bodak yellow grýtti hún hljóðnema í konu sem kastaði drykk yfir rapparann á sviðinu.

Tekur alltaf stresspissið rétt áður en hann stígur á svið
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti trónir staðfastur á toppi Íslenska listans á FM957 fjórðu vikuna í röð með lagið Þúsund hjörtu. Blaðamaður tók púlsinn á honum og fékk að heyra hvernig hann er stemmdur tæpri viku fyrir stóru stundina.

Reykholtshátíð í Reykholti um helgina
Það verður mikið um að vera í Reykholti í Borgarfirði um helgina því þar fer fram Reykholtshátíð í tuttugasta og sjöunda skipti. Fjölmargir listamenn munu koma fram á hátíðinni, auk þess sem vígsluafmæli Reykholtskirkju verður minnst á morgun.

Fortíðin og flugeldar renna í eitt á nýrri plötu Auðar
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur undir listamannanafninu Auður, gaf út plötuna Útvarp úlala á miðnætti. Platan inniheldur fimm lög úr ólíkum áttum sem Auður samdi og tók upp.

Fyrsti bassaleikari the Eagles er látinn
Randy Meisner, fyrsti bassaleikari og einn stofnenda hljómsveitarinnar the Eagles, lést á miðvikudag.

Einar Örn: Hennar framlag var að vera alltaf Sinéad O‘Connor
Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður segir að Sinéad O'Connor verði helst minnst fyrir að hafa alltaf verið hún sjálf. Hún hafi verið á undan sinni samtíð í gagnrýni á kaþólsku kirkjuna fyrir illa meðferð á börnum og konum og verið refsað fyrir það á sínum tíma.

Frumsýning á Vísi: GKR og Nossan sleppa neikvæðninni
Rapparinn Gaukur Grétuson, betur þekktur sem GKR hefur gefið út nýtt tónlistarmyndband við lag sitt AHA AHA en í þetta skiptið er norski rapparinn Nossan með í för. Myndbandið er frumsýnt á Vísi og má horfa á hér að neðan.

Sinéad O’Connor er látin
Írska stórsöngkonan Sinéad O’Connor er látin, aðeins 56 ára að aldri.

Fálkaorðuhafi setur sjarmerandi íbúð á sölu
Tónlistarkennararnir Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir hafa sett afar sjarmerandi hæð sína í Norðurmýrinni í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina er 102,9 milljónir.

Hjólar í eigin aðdáendur
Tónlistarkonan Doja Cat hefur vakið töluverða athygli fyrir ummæli um aðdáendur sína sem hún lét falla á samfélagsmiðlum. Hún virðist ekki vera mjög hrifin af sínum hörðustu aðdáendum og segir þeim að hætta í símanum og byrja að vinna.

Fjör með Bylgjulestinni í Hljómskálagarðinum
Það var mikið um dýrðir í Hljómskálagarðinum í Reykjavík síðustu helgi þar sem hin árlega Götubitahátíð fór fram.

Sér tækifæri í Cher-útbúnum ísbíl
Tónlistarkonan Cher hefur ákveðið að leita á nýjar slóðir og selja ís í eigin nafni, svokallaðan Cherlato. Hún segir að um sé að ræða verkefni sem sé búið að vera lengi í undirbúningi. Þá fullvissar hún aðdáendur sína um að þetta sé ekki grín.

Hildur Guðna og Sam giftu sig á ástarfleyi
Tónlistarkonan og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir og bandaríska tónskáldið Sam Slater giftu sig í Þýskalandi um helgina. Brúðkaupið fór fram á bát í borginni Berlín, eða á ástarfleyi eins og móðir Hildar orðar það.