Varðskipið Freyja til Vestfjarða vegna mikillar snjóflóðahættu Mikil hætta er talin á snjóflóði á norðanverðum Vestfjörðum á aðfangadag. Lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðstoð varðskipsins Freyju sem hélt af stað vestur á firði um miðnætti. Innlent 23. desember 2023 07:15
Troðfullar brekkur í Bláfjöllum Skíðabrekkurnar í Bláfjöllum voru troðfullar í dag, þegar svæðið var opnað í fyrsta sinn í vetur. Skíðagarpar sem fréttastofa ræddi við áttu misfarsælan dag að baki í brekkunni. Innlent 22. desember 2023 20:28
Spá næsta eldgosi á milli Sýlingarfells og Hagafells Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvikusöfnun og landris við Svartsengi leiði til eldgoss á milli Sýlingarfells og Hagafells. Líkur á eldgosi aukast með hverjum degi sem líður. Innlent 22. desember 2023 16:02
Gul viðvörun víða um land á Þorláksmessu Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra vegna hvassviðris og snjókomu sem spáð er á morgun, Þorláksmessu, og á aðgangadag. Erfið akstursskilyrði gætu myndast. Veður 22. desember 2023 13:03
Aðstæður eins og í Austurríki Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag. Innlent 22. desember 2023 11:22
Daginn tekur að lengja á ný Vetrarsólstöður voru á fjórða tímanum í nótt. Frá og með deginum í dag tekur sól að hækka á lofti og hver dagur verður örlítið lengri en dagurinn á undan, mörgum eflaust til mikillar ánægju. Innlent 22. desember 2023 08:41
Snjókoma norðantil en lengst af þurrt og bjart fyrir sunnan Úrkomusvæði gengur nú inn yfir norðanvert landið og fylgir því breytileg átt, yfirleitt vindur fimm til þrettán metrar á sekúndu og snjókoma með köflum. Veður 22. desember 2023 07:12
Hæg norðan- og norðvestanátt á landinu Lægðin sem gekk yfir landið í gær er nú við vesturströnd Noregs og hefur hún dýpkað talsvert síðasta hálfa sólarhringinn og mun því valda illviðri í Norður-Evrópu í dag. Veður 21. desember 2023 07:12
Hvít jól um allt land Allir landsmenn mega eiga von á hvítum jólum, þó jörð geti verið hvítflekkótt syðst. Veður 20. desember 2023 07:49
Gengur í vestanstrekking með rigningu og slyddu Lægð gengur til austurs yfir mitt landið í dag þar sem gengur í vestanstrekking sunnantil með rigningu eða slyddu og hlýnar í veðri. Veður 20. desember 2023 07:25
Glitský gleðja Akureyringa Björt og litrík glitský sáust vel á Akureyri í dag. Slík ský sjást einkum þegar kalt er í veðri um vetur við sólarupprás eða sólsetur. Veður 19. desember 2023 14:03
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19. desember 2023 13:11
Smálægðir og lægðadrög á sveimi við landið Smálægðir og lægðadrög eru nú á sveimi við landið og verður fremur hæg suðvestlæg átt ríkjandi. Það verður þurrt að kalla norðaustanlands, en annars staðar él á víð og dreif. Veður 18. desember 2023 07:12
Rauð jól í Reykjavík Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir það mjög ólíklegt að verði hvít jól í Reykjavík. Hann segir að hann snúist í norðanátt á miðvikudaginn og að það snjói sjaldnast með norðanáttinni. Veður 16. desember 2023 10:47
Lægð sækir að landinu Lægðir sækja að landinu um helgina og með þeim kalt loft um allt land. Djúp lægð var við Jan Mayen snemma í morgun og mun hún valda suðvestanátt með éljagangi sunnan og vestantil á landinu. Veður 16. desember 2023 09:23
Segir óskiljanlegt að halda Grindavík áfram lokaðri Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Almannavarnir og Veðurstofuna harðlega fyrir að halda Grindavík áfram lokaðri. Að sínu áliti sé lokunin og framlenging hennar ekki réttlætanleg frá sjónarhóli jarðfræðings sem rannsakað hafi eldfjöll í sextíu ár. Innlent 15. desember 2023 10:36
Víða krefjandi aðstæður á vegum Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að það verði krefjandi aðstæður á vegum austur fyrir fjall í dag og eins norður í land og vestur á firði. Innlent 15. desember 2023 07:23
Hvassviðri víða á landinu í dag og gular viðvaranir Gera má ráð fyrir hvassviðri víða um land í dag og eru gular viðvaranir í gildi. Eftir útsynning gærdagsins þá nálgast hlýtt loft landið úr suðri og framan af degi þá verður allhvöss sunnanátt með slyddu eða snjókomu, en rigningu sunnantil. Veður 15. desember 2023 07:09
Bætir í vind og kólnar þegar líður á daginn Núna í morgunsárið er suðvestanátt á landinu, yfirleitt á bilinu tíu til átján metrar á sekúndu. Úrkomubakki sem gekk á land á suðvesturhorninu í nótt er á leið norður af landinu en í kjölfarið eru skúrabakkar að nálgast. Veður 14. desember 2023 07:33
Segir lægðina standa stutt yfir og spáir snjó um helgina Gular viðvaranir skella á í nótt og lægðir ganga yfir landið nú í aðdraganda jóla. Veðurfræðingur segir að óveðrið verði yfirstaðið við fótferðartíma í fyrramálið. Þá spáir hann norðanátt með kólnandi veðri um jólin. Innlent 13. desember 2023 22:03
Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir taka gildi Djúp lægð er nú stödd skammt austur af Hvarfi og hún nálgast landið í dag. Lægðin beinir til landsins hlýrri suðlægri átt, allhvössum vindi eða strekkingi og talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands, en vætu með köflum á norðausturhluta landsins. Veður 13. desember 2023 06:57
Von á rigningu eða snjókomu seinni partinn Nú í morgunsárið er hægur vindur á landinu og yfirleitt þurrt og kalt veður. Úrkomusvæði mun nálgast dálítið úr vestri í dag og mun þykkna upp á Suður- og Vesturlandi. Þannig má má búast við rigningu eða snjókomu með köflum á þeim slóðum síðdegis og mun hlýna smám saman. Austanlands verður lengst af þurrt og bjart. Veður 12. desember 2023 07:43
Víða hált á vegum landsins Víða er hált á vegum landsins og eru ökumenn beðnir að keyra varlega. Innlent 12. desember 2023 07:36
Fékk slæmt höfuðhögg í fljúgandi hálku Glerhált var víða á höfuðborgarsvæðinu í morgun þegar að rigndi ofan í frostið sem var um helgina. Dæmi er um að fólk hafi flogið á hausinn og slasað sig alvarlega. Innlent 11. desember 2023 09:58
Hægur vindur og skýjað að mestu Útlit er fyrir fremur hæga vestan- og norðvestanátt á landinu í dag þar sem skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél. Þó má reikna með að verði léttskýjað suðaustan- og austanlands. Veður 11. desember 2023 07:03
Búast við stormi um miðja viku Í dag er útlit fyrir hæga breytilega átt á landinu. Þannig heldur það áfram þar til um miðja viku þegar allhvöss sunnanátt og rigning tekur við. Samhliða því hlýnar og á fimmtudag er samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings von á stormi. Veður 10. desember 2023 07:21
Sólin geri lítið gagn til upphitunar Útlit er fyrir rólegt veður víðast hvar á landinu um helgina og litlar breytingar frá því sem verið hefur, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Innlent 9. desember 2023 07:40
Víða léttskýjað og frost að fimmtán stigum Lægðasvæði suður af landinu veldur nú austlægri átt hjá okkur með strekkingi syðst en annars fremur hægum vindi. Gera má ráð fyrir að frost verði yfirelitt á bilinu núll til fimmtán stig og verður kaldast í innsveitum norðan heiða. Veður 8. desember 2023 07:42
Vara börn við hættulegum leik á Sauðá Sauðá á Sauðárkróki er hættuleg um þessar mundir og börn eru vöruð við að leika sér á henni. Innlent 7. desember 2023 23:48
Áfram hvasst við suðurströndina Hæð er nú yfir Grænlandi, en víðáttumikið lægðasvæði allangt suður af landinu. Gera má ráð fyrir austlægri átt í dag, yfirleitt fimm til þrettán metrum á sekúndu en talsvert hvassara við suðurströndina með snörpum vindhviðum. Aðstæður geta verið varasamar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Veður 7. desember 2023 07:18