Áfram kalt á landinu en bjartviðri sunnan heiða Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2024 07:24 Gera má ráð fyrir að frost æa landinu verði á bilinu eitt til tólf stig og kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir norðlæga átt í dag þar sem víða verður stinningsgola en allhvasst á Austfjörðum fyrripart dags.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði áfram kalt í veðri og dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hvessir aðeins á Vestfjörðum í kvöld. Gera má ráð fyrir að frost verði á bilinu eitt til tólf stig og kaldast inn til landsins. „Norðaustan kaldi eða strekkingur á morgun. Lítilsháttar él fyrir norðan og yfirleitt bjart sunnantil, en líkur á stöku éljum á Suðvesturlandi. Bætir heldur í ofankomu norðaustanlands um kvöldið. Frost um allt land,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðaustan og norðan 5-13 m/s og dálítil él á víð og dreif, en bætir í ofankomu á Norður- og Austurlandi um kvöldið. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Á laugardag: Norðaustlæg átt 5-13, en hvassviðri við suðausturströndina. Víða bjart, en skýjað og stöku él norðaustantil. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Norðaustan 8-15, en 15-23 á Suðausturlandi. Dálítil snjókoma um landið norðaustanvert, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig. Á mánudag: Norðlæg átt og lítilsháttar él, en þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Áfram kalt í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir suðvestlæga eða breytilega átt og stöku él, en yfirleitt bjart fyrir austan. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent Fullir í flugi Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Fleiri fréttir Norðlæg átt og víðast hvar væta Hlýjast suðaustantil Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Hitamet aldarinnar slegið Gular viðvaranir öðrum megin og 28 stiga hiti hinum megin Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Gular viðvaranir í dag en hiti að 27 stigum á morgun Gular viðvaranir í þremur landshlutum Þungbúið norðantil en bjart og hlýtt sunnan heiða Úrkoma í öllum landshlutum „Það er nóg eftir af sumrinu“ 27 daga frostlausum kafla lokið Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Viðrar vel til gleðigöngu Rigning norðantil en yfirleitt bjart sunnan heiða Hiti að sautján stigum og hlýjast suðvestantil Úrkomusvæði fer yfir sunnan- og vestanvert landið Dálítil væta en fremur hlýtt Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Sjá meira