

Veður

Spenntur að halda jólin innilokaður og í friði
Snjóflóð hafa fallið í grennd við bæi og helstu vegir eru ýmist ófærir eða lokaðir á Vestjörðum. Björgunarsveitarmaður á Flateyri segir alls ekkert ferðaveður á svæðinu. Hann kippir sér ekkert upp við að halda jólin innilokaður. Óvissustig er áfram í gildi en veðrið á að vera gengið niður að mestu í kvöld.

Eitt snjóflóðið féll fram hjá varnargarði og út á veg
Snjóflóð féllu í nótt á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Flóðin hafa ekki valdið neinu tjóni svo vitað sé. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að búast megi við fleiri flóðum þar til dregur úr veðri.

Snjóflóðahætta á Norðurlandi og Vestfjörðum
Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og vegfarendur eru beðnir um að fara með gát. Snjóflóð hafa fallið bæði í Siglufirði og Ísafirði.

Óvissustig í gildi og margir vegir lokaðir
Veðurstofa Íslands lýsti í gær yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðanverðum Vestfjörðum. Óvissustigið tók gildi á miðnætti.

Um 24 stiga frost á Sauðárkróki í dag
23,9 stiga frost mældist við flugvöllinn á Sauðárkróki í dag, sem er með mesta frosti sem mælst hefur í ár. Mestur var hitinn 3,8 gráður við Steina á Suðurlandi.

Hellisheiði lokað eftir tvö slys
Veginum um Hellisheiði var lokað í dag vegna tveggja slysa. Slysin eru bæði sögð hafa orðið vegna slæms skyggnis og hálku. Engan sakaði alvarlega í slysunum og er vegurinn enn lokaður.

Erfitt að eyða jólunum fjarri fjölskyldunni en ekkert annað í boði
Háseti og kafari á varðskipinu Freyju segir stemninguna meðal átján áhafnarmeðlima mjög góða, þrátt fyrir að nú sé ljóst að þeir muni eyða jólunum um borð í skipinu við Ísafjarðarhöfn. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun fyrir morgundaginn auk þess sem miklar líkur eru taldar á snjóflóðum á svæðinu.

Appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum
Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun á Vestfjörðum sem tekur gildi klukkan fimm í fyrramálið. Víðtækar samgöngutruflanir eru taldar líklegar.

Gular viðvaranir á öllu vestanverðu landinu á aðfangadag
Gul viðvörun tekur gildi klukkan níu á Suðurlandi. Snjókoma og hugsanlegur skafrenningur geta leitt til erfiðra aksturskilyrða, sér í lagi undir Eyjafjöllum og á veginum við Reynisfjall. Á morgun, aðfangadag verða gular viðvaranir í gildi á öllu vestanverðu landinu.

Varðskipið Freyja til Vestfjarða vegna mikillar snjóflóðahættu
Mikil hætta er talin á snjóflóði á norðanverðum Vestfjörðum á aðfangadag. Lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðstoð varðskipsins Freyju sem hélt af stað vestur á firði um miðnætti.

Troðfullar brekkur í Bláfjöllum
Skíðabrekkurnar í Bláfjöllum voru troðfullar í dag, þegar svæðið var opnað í fyrsta sinn í vetur. Skíðagarpar sem fréttastofa ræddi við áttu misfarsælan dag að baki í brekkunni.

Spá næsta eldgosi á milli Sýlingarfells og Hagafells
Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvikusöfnun og landris við Svartsengi leiði til eldgoss á milli Sýlingarfells og Hagafells. Líkur á eldgosi aukast með hverjum degi sem líður.

Gul viðvörun víða um land á Þorláksmessu
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra vegna hvassviðris og snjókomu sem spáð er á morgun, Þorláksmessu, og á aðgangadag. Erfið akstursskilyrði gætu myndast.

Aðstæður eins og í Austurríki
Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag.

Daginn tekur að lengja á ný
Vetrarsólstöður voru á fjórða tímanum í nótt. Frá og með deginum í dag tekur sól að hækka á lofti og hver dagur verður örlítið lengri en dagurinn á undan, mörgum eflaust til mikillar ánægju.

Snjókoma norðantil en lengst af þurrt og bjart fyrir sunnan
Úrkomusvæði gengur nú inn yfir norðanvert landið og fylgir því breytileg átt, yfirleitt vindur fimm til þrettán metrar á sekúndu og snjókoma með köflum.

Hæg norðan- og norðvestanátt á landinu
Lægðin sem gekk yfir landið í gær er nú við vesturströnd Noregs og hefur hún dýpkað talsvert síðasta hálfa sólarhringinn og mun því valda illviðri í Norður-Evrópu í dag.

Hvít jól um allt land
Allir landsmenn mega eiga von á hvítum jólum, þó jörð geti verið hvítflekkótt syðst.

Gengur í vestanstrekking með rigningu og slyddu
Lægð gengur til austurs yfir mitt landið í dag þar sem gengur í vestanstrekking sunnantil með rigningu eða slyddu og hlýnar í veðri.

Glitský gleðja Akureyringa
Björt og litrík glitský sáust vel á Akureyri í dag. Slík ský sjást einkum þegar kalt er í veðri um vetur við sólarupprás eða sólsetur.

Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar
Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði.

Smálægðir og lægðadrög á sveimi við landið
Smálægðir og lægðadrög eru nú á sveimi við landið og verður fremur hæg suðvestlæg átt ríkjandi. Það verður þurrt að kalla norðaustanlands, en annars staðar él á víð og dreif.

Rauð jól í Reykjavík
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir það mjög ólíklegt að verði hvít jól í Reykjavík. Hann segir að hann snúist í norðanátt á miðvikudaginn og að það snjói sjaldnast með norðanáttinni.

Lægð sækir að landinu
Lægðir sækja að landinu um helgina og með þeim kalt loft um allt land. Djúp lægð var við Jan Mayen snemma í morgun og mun hún valda suðvestanátt með éljagangi sunnan og vestantil á landinu.

Segir óskiljanlegt að halda Grindavík áfram lokaðri
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Almannavarnir og Veðurstofuna harðlega fyrir að halda Grindavík áfram lokaðri. Að sínu áliti sé lokunin og framlenging hennar ekki réttlætanleg frá sjónarhóli jarðfræðings sem rannsakað hafi eldfjöll í sextíu ár.

Víða krefjandi aðstæður á vegum
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að það verði krefjandi aðstæður á vegum austur fyrir fjall í dag og eins norður í land og vestur á firði.

Hvassviðri víða á landinu í dag og gular viðvaranir
Gera má ráð fyrir hvassviðri víða um land í dag og eru gular viðvaranir í gildi. Eftir útsynning gærdagsins þá nálgast hlýtt loft landið úr suðri og framan af degi þá verður allhvöss sunnanátt með slyddu eða snjókomu, en rigningu sunnantil.

Bætir í vind og kólnar þegar líður á daginn
Núna í morgunsárið er suðvestanátt á landinu, yfirleitt á bilinu tíu til átján metrar á sekúndu. Úrkomubakki sem gekk á land á suðvesturhorninu í nótt er á leið norður af landinu en í kjölfarið eru skúrabakkar að nálgast.

Segir lægðina standa stutt yfir og spáir snjó um helgina
Gular viðvaranir skella á í nótt og lægðir ganga yfir landið nú í aðdraganda jóla. Veðurfræðingur segir að óveðrið verði yfirstaðið við fótferðartíma í fyrramálið. Þá spáir hann norðanátt með kólnandi veðri um jólin.

Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir taka gildi
Djúp lægð er nú stödd skammt austur af Hvarfi og hún nálgast landið í dag. Lægðin beinir til landsins hlýrri suðlægri átt, allhvössum vindi eða strekkingi og talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands, en vætu með köflum á norðausturhluta landsins.