Stórfelldur laxadauði í Berufirði Stórfelldur laxadauði var í nóvember, desember og janúar í sjókvíum í Berufirði en þar er fiskeldisfyrirtækið Kaldvík með aðstöðu. Fyrirtækið þurfti að farga tugþúsundum eldislaxa sem voru ýmist dauðir vegna vetrarsára eða áttu sér enga lífsvon vegna þess hversu illa leiknir þeir voru. 12.3.2025 08:01
Bjarni Þór segir Höllu keyra á aldursfordómum í kosningabaráttu Bjarni Þór Sigurðsson, frambjóðandi til formanns VR, ritar grein á Vísi þar sem hann heldur því fram staðfastlega að þeir sem eru að hringja út fyrir Höllu Gunnarsdóttur mótframbjóðanda síns haldi því fram að hann sé of gamall. 11.3.2025 14:14
Telur tillögu um afnám áminningar á leið í ruslið Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins beindi fyrirspurn til Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum: Hvað verður um tillöguna um að fella brott áminningar til opinberra starfsmanna? 11.3.2025 14:08
„Ég stóð með ykkur, ég stóð með ykkur!“ Margrét Ólöf A. Sanders bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ er verulega ósátt við nýja kjarasamninga kennara og sérstaklega aðkomu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur nýs borgarstjóra að þeim. Heiða Björg gegnir jafnframt embætti formanns Samtaka íslenskra sveitarfélaga. 10.3.2025 12:06
„Ríkismiðillinn eins og púkinn á fjósbitanum“ Snorri Másson þingmaður Miðflokksins kvaddi sér hljóðs á Alþingi í dag, í dagskrárliðnum Störf þingsins, og fór yfir það sem hann kallaði brenglað rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi. 5.3.2025 15:53
Tjörnin trónir á toppnum Rán Flygenring er í fyrsta sæti á toppi bóksölulistans með bók sína Tjörnina. En hún hlaut einmitt Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barnabóka. 5.3.2025 11:34
Blóðug slagsmál tveggja landsfundargesta Í kekki kastaðist milli tveggja landsfundargesta Sjálfstæðisflokksins á Petersen-svítunni á föstudagskvöldinu. Þá gerði Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu sér lítið fyrir og rétti Þorleifi Hallbirni Ingólfssyni einn á lúðurinn. 4.3.2025 15:03
Þorgerður lætur ekki nettröllin hræða sig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist standa við yfirlýsingar sínar varðandi Úkraínu og hefur ekki í hyggju að rifa seglin. 4.3.2025 13:40
Ísland gæti orðið leiðandi í notkun hugvíkkandi efna Mikil og velheppnuð ráðstefna þar sem notkun hugvíkkandi efna í lækningaskyni fór fram um síðustu helgi. Þar talaði meðal annarra Rick Doblin sálfræðingur - afar þekktur meðal þeirra sem hafa gefið hugvíkkandi efnum í tengslum við meðferðarstarf gaum. Hann taldi Ísland hafa allt til að taka forystu á heimsvísu í þessum efnum. Og sá engin tormerki á því. 4.3.2025 07:03
Kennari mun ekki hlýða snjallsímabanni í skólum Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, fordæmir fortakslaust áform Ásthildar Lóu Þórsdóttur, barna- og menntamálaráðherra, um bann við snjallsímum í grunnskólum landsins. 3.3.2025 15:16