

Fréttamaður
Lovísa Arnardóttir
Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.
Nýjustu greinar eftir höfund

Tilraun til stunguárásar í Hafnarfirði
Karlmaður var handtekinn í Hafnarfirði í dag á milli 13 og 14 eftir að hann reyndi að stinga annan karlmann í bíl eftir að ökumaðurinn neitaði að gefa honum far.

Söng- og leikkonan Marianne Faithfull er látin
Söng- og leikkonan Marianne Faithfull er látin. Hún var 78 ára þegar hún lést. Talsmaður hennar hefur staðfest andlát hennar en hún lést í London. Fjölskylda hennar var með henni.

Tíu þúsund tillögur í 3.985 umsögnum
Alls bárust 3.985 umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda um hagræðingu í ríkisrekstri. Karlar sendu inn fleiri umsagnir en konur en áætlað er að í umsögnunum sé að finna um tíu þúsund tillögur. Gervigreindarforrit hefur verið notað til að taka saman tillögurnar í fyrsta kasti en fjögurra manna hagræðingarhópur á að skila forsætisráðherra skýrslu um tillögurnar í síðasta lagi við lok næsta mánaðar.

Björgunarskipið kallað út á mesta forgangi
Áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum var á fjórða tímanum kölluð út á mesta forgangi þegar nótaskipið Huginn VE55 varð vélarvana í innsiglingunni við Hörgárgarð gegnt Skansinum.

Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Valdimar Sveinsson hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands árið 2025 fyrir verkefnið Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna. Valdimar er nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands. Leiðbeinendur verkefnisins voru Kimberley Anderson Rannsóknarstofustjóri og Hans Tómas Björnsson Prófessor við læknadeild Háskóla Íslands. Verðlaunin í ár er LAVA Vasi, handblásinn úr endurunnu gleri frá Fólk Reykjavik.

Kennarar svara umboðsmanni barna
Kennarasamband Íslands furðar sig á því að umboðsmanni barna sé tíðrætt um það að verkfallsaðgerðir kennara mismuni börnum en ekki um þá staðreynd að nánast enginn leikskóli uppfylli kröfur landslaga um mönnun kennara. Þetta segja kennarar í yfirlýsingu á heimasíðu Kennarasambands Íslands nú síðdegis.

Heildarfjöldi farþega 4,7 milljónir í fyrra
Heildartekjur Icelandair á 4. ársfjórðungi jukust um 10 prósent og námu 48 milljörðum króna eða 349 milljónum Bandaríkjadala. EBIT afkoma batnaði um 2,5 milljarða króna (18 milljónir USD), EBIT á fjórða ársfjórðungi var neikvætt um 4,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair um ársreikning þeirra fyrir árið 2024. Þar kemur ennfremur fram að tap félagsins á síðasta ári hafi verið 2,5 milljarðar króna.

Verkföllum kennara aflýst samþykki deiluaðilar tillögu ríkissáttasemjara á laugardag
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari lagði í dag fram innanhústillögu í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Tillagan er ígildi kjarasamnings sem tryggir innágreiðslu á virðismat á störfum kennara auk sömu launahækkana og samið hefur verið um í almennum kjarasamningum. Samþykki deiluaðilar tillöguna á laugardag verður ekkert af boðuðum verkföllum í leik- og grunnskólum á mánudag. Ástráður fór yfir tillöguna í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni síðdegis í dag.

Segja formann fræðslunefndar hafa brotið siðareglur
Félagsfólk Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði telur formann fræðslunefndar Skagafjarðar hafa brotið siðareglur kjörinna fulltrúa og brotið traust með því að taka þátt í því að stefna Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkfall í leikskólum.

Eldgosin í stærri kantinum verði þau við flekamótin
Líkur á enn öðru eldgosi á Reykjanesskaga aukast með hverjum degi þar sem kvikumagnið undir Svartsengi svipar nú til þess sem kom upp í síðasta gosi. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir líklegt að við séum komin í seinni hluta goshrinunnar á Reykjanesskaga.