Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Árlega Pæjumótið, eða TM mótið, fer fram í Vestmannaeyjum um helgina. Tæplega 1100 stelpur frá 34 félögum keppast um bikarinn en síðdegis í dag kemur í ljós hvaða lið hreppir hnossið. 15.6.2024 12:07
Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Tuttugu og tveir erlendir ferðamenn í rútunni sem valt við Öxnadal í gær. Fimm voru fluttir með þyrlu og sjúkraflugvélum á Landspítalann og þar á gjörgæsludeild. Tveimur er haldið sofandi í öndunarvél en eru sagðir vera með stöðug lífsmörk. 15.6.2024 11:52
Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Katrín prinsessa af Wales kom opinberlega fram í fyrsta skipti í dag síðan hún greindist með krabbamein og gekkst undir aðgerð í janúar. 15.6.2024 10:36
Öxnadalsheiði opin á ný Vegurinn um Öxnadalsheiði var opnaður á ný á fimmta tímanum í nótt. Honum var lokað í gærkvöldi eftir að alvarlegt rútuslys varð á veginum. 15.6.2024 09:41
Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Háskóli Íslands brautskráir 2.652 kandídata úr grunn- og framhaldsnámi í dag. Sem fyrr verður brautskráð í tvennu lagi og fara brautskráningarathafnirnar fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Vísir mun streyma frá athöfnunum. 15.6.2024 09:30
Festust á hvolfi í hálftíma Björgunarsveitir í Oregon-ríki í Bandaríkjunum björguðu 28 manns úr tívolítæki í skemmtigarði í gær eftir að tækið fraus á miðri leið og farþegar festust á hvolfi. 15.6.2024 08:37
Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vladimír Pútín Rússlandsforseti krefst þess að Úkraínumenn láti af hendi meira landsvæði í Kænugarði, fjarlægi hersveitir í eigin landi og dragi umsókn um aðild í Arlantshafsbandalginu til baka, til þess að hann bindi enda á stríð Rússa í Úkraínu. 15.6.2024 08:07
Hlýtt í dag en vætusöm vika fram undan Í dag er útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt, 3-8 m/s. Víða þurrt veður og bjartir kaflar, en stöku síðdegisskúrir gætu látið á sér kræla sunnanlands, en á Suður- og Suðausturlandi er spáð bjarviðri og allt að tuttugu stuiga hita. 15.6.2024 07:22
Fleiri aðildarfélög BSRB semja við ríkið Samninganefndir Landssambands lögreglumanna og ríkisins hafa undirritað nýjan kjarasamning til fjögurra ára. Samningurinn var undirritaður í húsnæði ríkissáttasemjara á sjötta tímanum í dag. 13.6.2024 23:48
Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti fyrr í kvöld að leiðtogar G7 ríkjanna hefðu komist að samkomulagi um að taka lán upp á fimmtíu milljarða Bandaríkjadala fyrir aðstoð til Úkraínu og borga upp lánið með vöxtum af ríkiseignum Rússa sem búið væri að frysta 13.6.2024 23:06