

Forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni vegna samskipta sinna við forsætisráðherra Ítalíu á leiðtogafundi Evrópuráðsins. Óljóst er hvað verður um byssur sem fluttar voru inn vegna fundarins en búið er að selja fjölda lúxusbíla.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands gerði sér lítið fyrir í gær og greip í míkrafóninn ásamt Helga Björns á Úlfarsfelli í grenjandi rigningu og roki. Lagið sem varð fyrir valinu var „Vertu þú sjálfur“.
Hiti fór yfir tuttugu stig á Austurlandi í dag og var dagurinn því sá heitasti ársins. Á Egilsstaðaflugvelli mældist hitinn 20,6 rétt eftir klukkan 12:00.
Jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar kostaði 162 milljónir punda eða um 28,3 milljarða íslenskra króna. Talið er að mestur peningur hafi farið í löggæslu.
Hátt í tuttugu þúsund hafa flúið heimili sín og þrettán farist vegna gríðarlegra flóða í norðausturhluta Ítalíu. Yfir tuttugu ár hafa flætt yfir bakka sína og á þriðja hundrað aurskriður féllu í nótt.
Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri hitti í dag Santiago Cafiero utanríkisráðherra Argentínu til að ræða loftslagsmál og orkuskipti. Halla Hrund kvaddi utanríkisráðherrann með gjöf, sem var mynd af víðfrægri markvörslu Hannesar Þórs Halldórssonar á víti Lionel Messi.
Sigmundur Stefánsson segir lækna hafa sagt sig kolruglaðan eftir að hann ákvað að hlaupa ítrekað maraþon í kjölfar hjartaáfalls og krabbameins.
Fyrsta áætlunarflug Icelandair til bandarísku borgarinnar Detroit fór í loftið á fimmta tímanum í dag. Félagið stefnir á að fljúga fjórum sinnum í viku til borgarinnar.
Skúr stóð í ljósum logum í Gufunesi í Reykjavík á tólfta tímanum í kvöld. Tveir dælubílar fóru á vettvang en slökkviliðið segir útkallið hafa verið umfangsminna en talið var í upphafi.
Sumarið er ekki komið enn og gert er ráð fyrir einhverri snjókomu víða um land í vikunni. Kalt verður í veðri en veðurfræðingur telur að úrkoman muni ekki valda vandræðum.