
Birtist í Fréttablaðinu

Bílasalan næmari fyrir umræðunni
Þjóðfélagsumræðan í vetur hafði töluverð áhrif á bílasölu. Aftur á móti jókst eftirspurn eftir bílaleigubílum.

Fólksfjölgun hætti um miðja þessa öld
Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið eins lág og árið 2017 frá því að talning hófst árið 1855. Miðað við þróun er alls ekki útilokað að slíkar tölur verði enn lægri árið 2018.

Kína lokaði fyrir þúsundir smáforrita
Veraldarvefsstofnun Kína (CAC) tilkynnti í gær að fyrirtækið hefði að undanförnu eytt sjö milljónum innleggja á veraldarvefnum og nærri 10.000 öppum.

Nú er komið að okkur
Algengast er í lífi manna að hver búi að sínu. Það er reglan. Menn hafast ólíkt að og bera mismikið úr býtum.

Meirihluti er hlynntur því að seinka klukkunni
Meirihluti Íslendinga er hlynntur því að klukkunni verði seinkað um eina klukkustund í samræmi við hnattstöðu landsins.

Frestun barneigna hefur ýmsar afleiðingar
Meðalaldur frumbyrja á Íslandi fer sífellt hækkandi. Í dag er aldurinn rúm 27 ár sem virðist ekki vera svo slæmt en ef litið er til heildarfjölda mæðra þá fer þeim fjölgandi sem eru 35 ára og eldri.

Skúli fógeti loki hótelinu
Forstjóri Minjastofnunnar varaði hótelbyggjendur á Landsímareitnum við því að að Minjastofnun geti látið færa styttuna af Skúla fógeta og sett hana fyrir inngang hótelsins verði hann um Víkurgarð.

Auka frelsi húseigenda í þremur borgarhverfum
Eigendur húsnæðis í Árbæ, Selás og Ártúnsholti geta með nýju hverfisskipulagi fengið heimild til að byggja við og skipta upp húsnæðinu til að bæta við íbúðum.

500 hillumetrar af skjölum
Guðmundur Sveinsson, forstöðumaður Skjala- og myndasafns Norðfjarðar, var meðal hvatamanna að stofnun safnsins fyrir fjörutíu árum og hefur haft umsjón með því síðan.

Elskar ástríðu og hita í samræðum
Guy Woods er einn þeirra sem deila munu reynslu sinni á Markþjálfunardeginum. Hann er markþjálfi og hjálpar viðskiptavinum sínum að nota samfélagsmiðla til að koma rödd sinni á framfæri.

Segir starfsmennina ekki taka við mútum
Eftirlitsmönnum Fiskistofu er iðulega boðið að þiggja fisk án endurgjalds. Eftirlitsmaður var settur í leyfi vegna gruns um alvarlegt brot við eftirlit í Grindavík. Um afmarkað tilvik að ræða, segir fiskistofustjóri.

Seðlar og mynt á undanhaldi
Peningar hafa verið til í þúsundir ára en aðrar aðferðir til að greiða fyrir vörur og þjónustu hafa alltaf verið fyrir hendi. Seðlar og mynt hafa verið algengasti greiðslumátinn en nú er það að breytast.

Mike Ashley vill kaupa plötuverslunarkeðjuna HMV
Breski kaupsýslumaðurinn Mike Ashley, eigandi Sports Direct, hefur gert tilboð í bresku hljómplötuverslunarkeðjuna HMV sem fór í gjaldþrot í síðasta mánuði.

Hver verður staðan árið 2060?
Getur verið að við séum að vanmeta stórlega hversu góð fjárhagsstaða aldamótakynslóðarinnar kemur til með að verða á lífeyrisaldri?

Hlutabréfamarkaðurinn sem missti af hagsveiflunni
Hlutabréfavísitala Kauphallar Íslands (OMX8GI) hefur lækkað undanfarin þrjú ár.

Óháðir og Miðflokksmenn háværir við kjör auka varaforseta
Miðflokksmenn og óháðir létu vel í sér heyra áður en Alþingi samþykkti kjör tveggja varaforseta.

Plástrar duga ekki í menntamálum
Líkja má hugmyndum menntamálaráðherra um sérstaka styrki til kennaranema við haldlitla plástra.

Guðbjörg í Ísfélaginu byggir upp stöðu í TM
Félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, eiganda Ísfélagsins, hefur verið að bæta við hlut sinn í TM í gegnum framvirka samninga hjá Íslandsbanka.

Lækkar hagvaxtarspána fyrir 2019
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varaði við því á mánudag að harðnandi viðskiptadeilur á milli ríkja gætu grafið undan hagvexti í heimshagkerfinu.

Að byrja á byrjuninni
Húsnæðismálin eru ein stærsta áskorunin sem ráða þarf fram úr í viðkvæmum kjaraviðræðum og mikið ríður á að leysist farsællega úr.


Ástvinir minnissjúkra
Fyrir fimmtán árum flutti ég fyrirlestur á Grandhóteli um áhrif minnissjúkdóma og sagði m.a. að ef allir sjúkdómar heimsins væru settir í hatt og ég þyrfti að draga einn óskaði ég þess að draga allt nema minnissjúkdóma.

Menningarhús á Seltjarnarnesi
Sala eða leiga Seltjarnarnesbæjar á svokölluðu Lækningaminjasafni vestast á Nesinu lýsir uppgjöf við að leysa jákvætt samfélagslegt úrlausnarefni sem snúið hefur verið upp í fjárhagslegt vandamál.

Kvika breytti kröfum upp á 660 milljónir í hlutafé
Kvika banki, stærsti hluthafi Kortaþjónustunnar, breytti í síðasta mánuði ríflega 660 milljóna króna kröfum sínum á hendur kortafyrirtækinu í hlutafé.

Hótar að hindra yfirtökuna á Flybe
Stærsti hluthafi Flybe skoðar réttarstöðu sína vegna yfirtöku fjárfesta á breska flugfélaginu. Hann sakar forsvarsmenn Flybe um að bera hagsmuni hluthafa fyrir borð.

Efling hafrannsókna
Sú umræða sem átti sér stað í upphafi þessa árs um fjárframlög til Hafrannsóknastofnunar var til þess fallin að varpa skýru ljósi á ýmsa veikleika varðandi það hvernig stofnunin hefur verið fjármögnuð undanfarin ár.

Hvalur kaupir í Marel fyrir um milljarð króna
Félagið Hvalur hf., sem er óbeint að stórum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar og fjölskyldu, hefur fest kaup á hlut í Marel fyrir um milljarð króna.

15 milljónir fyrir 10 milljóna króna spildu
Vegagerðinni hefur verið gert að greiða tveimur landeigendum í Bláskógabyggð ríflega 7,8 milljónir króna fyrir eignarnám á spildum úr landi þeirra vegna endurbóta á Reykjavegi milli Biskupstungnabrautar og Laugarvatnsvegar.

Heimili landsins áfram mun meira í óverðtryggðum húsnæðislánum
Ný óverðtryggð lán viðskiptabankanna til heimila landsins, með veði í húsnæði, námu 10,6 milljörðum króna umfram uppgreiðslur í desember síðastliðnum á sama tíma og ný verðtryggð húsnæðislán til heimilanna voru aðeins 318 milljónir króna umfram uppgreiðslur.

Níu dagar ofan í borholunni
Björgunarfólk vann sinn níunda dag í gær að því að ná hinum tveggja ára Julen Roselló úr borholu á suðurhluta Spánar.