KSÍ

Mikael gaf ekki kost á sér í U21-landsliðið | Svona er hópurinn
Það er nóg um að vera hjá íslenskum landsliðum í nóvember og það er ekki bara A-landslið karla sem er í eldlínunni á næstu dögum því einnig á U21-árs landsliðið mikilvæga leiki framundan.

Sveindís best, Cecilía efnilegust og Þorsteinn besti þjálfarinn
KSÍ tilkynnti í kvöld hvaða leikmenn hefðu verið kosnir bestir og efnilegastir í Pepsi Max deild kvenna. Það var gert í Pepsi Max mörkum kvenna sem var á dagskránni í kvöld.

Fögnuður Vals og Leiknis ekki á borð aganefndar
Framkvæmdastjóri KSÍ mun ekki vísa meintum brotum Vals- og Leiknismanna á sóttvarnareglum til aga- og úrskurðanefndar sambandsins.

Þorvaldur hættur með U19 landsliðið
Knattspyrnuþjálfarinn Þorvaldur Örlygsson og KSÍ hafa komist að samkomulagi um að Þorvaldur hætti sem þjálfari U19-landsliðs karla.

KR-ingar telja ákvörðun KSÍ ekki standast lög sambandsins: „Stjórnin getur ekki einhliða breytt lögum“
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ræddi við Gaupa í Sportpakka Stöðvar 2 um ákvörðun Knattspyrnusambands Íslands að enda Íslandsmótið í knattspyrnu. Ætlar KR að áfrýja málinu til áfrýjunadómstóls KSÍ.

Ólafur Ingi: Þýðir ekkert að henda í eitthvað frekjukast
Ólafur Ingi Skúlason, spilandi aðstoðarþjálfari Fylkis, skilur ákvörðun KSÍ að blása mótið af Íslandsmótin. Mannslíf séu í húfi og því sé réttara að huga þeim að en að klára knattspyrnutímabilin.

Guðni segir sátt hafa ríkt með 1. des viðmiðið þegar það var gefið út
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld að mikil sátt hefði ríkt með 1. desember viðmiðið þegar það var gefið út í sumar. Þá skilur hann gremju félaganna sem töpuðu á ákvörðun KSÍ.

KR ætlar að áfrýja ákvörðun KSÍ
Stjórn Knattspyrnudeildar KR hefur ákveðið að áfrýja ákvörðun KSÍ um að hætta keppni í Íslandsmótinu í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflu gilda. KR er það lið í Pepsi Max deildinni sem fer hvað verst út úr ákvörðuninni, enda þýðir hún að liðið muni ekki leika í Evrópukeppni næsta tímabil.

„Auðvitað munu alltaf einhverjir sitja eftir með sárt ennið“
KSÍ tók þá erfiðu ákvörðun í gær að flauta af Íslandsmótið í knattspyrnu og láta núverandi stöðutöflur gilda. Sú ákvörðun kemur sér misvel fyrir knattspyrnulið á Íslandi, sum þeirra njóta góðs af á meðan önnur sem sáu fram á að bæta stöðu sína með góðum lokaspretti sitja eftir í súpunni.

Framarar segja þetta „sorgardag í sögu fótboltans á Íslandi“
Fram situr eftir með sárt ennið í Lengjudeild karla eftir að KSÍ tilkynnti í dag að allt mótahald yrði blásið af vegna kórónuveirunnar.

Magnamenn ætla að leita réttar síns
Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna Grenivíkur í Lengjudeild karla var eðlilega manna ósáttastur með ákvörðun KSÍ. Magni fellur úr Lengjudeildinni á markatölu, einu marki munar á liði Magna og Þrótti Reykjavíkur.

Guðni: Staðan var orðin óviðunandi með þessu langa stoppi
Guðni Bergsson segir að sex vikna stopp frá æfingum hafi verið óviðunandi og því hafi KSÍ tekið þá þungbæru ákvörðun að hætta keppni á Íslandsmótum - sem og bikarkeppnum - karla og kvenna í knattspyrnu.

Twitter eftir ákvörðun KSÍ: „Titlar vinnast á vellinum en ekki á skrifstofu VG“
Það hafa miklar umræður skapast á flestum samfélagsmiðlunum eftir ákvörðun KSÍ í dag en eins og kunnugt er ákvað KSÍ að blása allt mótahald af.

Guðni sagði ákvörðunina nauðsynlega
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að ákvörðun KSÍ í dag um að blása allt mótahald af vegna kórónuveirufaraldursins hafi verið nauðsynleg.

Keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu hætt
Knattspyrnusamband Íslands greindi frá því nú rétt í þessu að keppni á Íslandsmótinu í knattspyrnu yrði hætt. Var þetta samþykkt á fundi sambandsins nú í dag.

KSÍ frestar leikjum helgarinnar
Knattspyrnusamband Íslands hefur frestað þeim tveimur leikjum sem fara áttu fram um helgina, í Lengjudeild karla og 2. deild kvenna.

Umdeilda KSÍ auglýsingin verðlaunuð
Auglýsingastofan Brandenburg hefur verið verðlaunuð fyrir nýja ásýnd íslensku landsliðanna í knattspyrnu. Stofan vann verkefnið fyrir KSÍ og vakti auglýsingin mikil viðbrögð síðastliðið sumar þar sem griðungur, gammur, dreki og bergrisi, landvættirnar fjórar, voru í forgrunni.

Guðni ekki bjartsýnn á framhaldið
Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, er ekki bjartsýnn fyrir framhaldi Íslandsmótsins í fótbolta eftir ummæli sóttvarnalæknis fyrr í dag.

„Það sem hefur verið leiðinlegast í þessu öllu hafa verið átökin á milli liðanna“
Hjörvar Hafliðason hrósaði KSÍ fyrir það hvernig sambandið kom deildarkeppnunum aftur á laggirnar en Þorkell Máni Pétursson hefði viljað sjá skýrari svör frá KSÍ í upphafi.

KSÍ búið að endurskipuleggja mótin: Pepsi Max deild karla lýkur á mánudegi
KSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðin fyrir nóvembermánuð en eins og flestir knattspyrnuáhugamenn vita hefur deildin verið á pásu vegna kórónuveirunnar.

Meistaraflokkar á höfuðborgarsvæðinu mega æfa en engar snertingar leyfðar
Knattspyrnusamband Íslands fékk það staðfest í dag að meistaraflokkar á höfuðborgarsvæðinu mega núna æfa en að leikmenn þurfa að fylgja ströngum reglum.

Guðni: Mjög erfið ákvörðun og enginn áberandi góður kostur í stöðunni
Guðni Bergsson útskýrir afstöðu KSÍ að ætla að klára Íslandsmótin í knattspyrnu.

KSÍ ætlar að klára Íslandsmótið
Svo lengi sem takmarkanir á æfingum og keppni verði afnumdar eigi síðar en 3. nóvember ætlar KSÍ að klára Íslandsmótið í fótbolta.

Ákvörðunin um Íslandsmótin tilkynnt á morgun
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, staðfesti í samtali við Fótbolti.net að ákvörðun um Íslandsmótin í knattspyrnu verði tekin á morgun.

KSÍ reddaði vikuæfingabúðum fyrir kvennalandsliðið í Svíþjóð
Knattspyrnusamband Íslands ákvað að senda kvennalandsliðið þremur dögum fyrr út til Svíþjóðar til að auðvelda liðinu undirbúninginn fyrir Svíþjóðarleikinn mikilvæga.

Davíð Snorri segir það mikla reynslu að hafa fengið að stýra landsliðinu
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U17 karlalandsliðs Íslands í fótbolta, fékk óvænt tækifæri til að stýra A-landsliðinu gegn Belgíu í Þjóðadeild UEFA þegar Freyr Alexandersson og Erik Hamrén voru í sóttkví.

Freyr til liðs við Heimi í Katar
Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari Íslands í knattspyrnu, er í þann mund að skrifa undir hjá Al-Arabi í Katar þar sem Heimir Hallgrímsson ræður ríkjum.

KSÍ bíður nákvæmari upplýsinga en stutt í stóru ákvörðunina
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að fundað verði í dag og um helgina um framtíð Íslandsmótsins í fótbolta. Lið á höfuðborgarsvæðinu mega ekki æfa það sem eftir er október.

Níu félög skora á KSÍ að klára Íslandsmótið
Níu félög hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau hvetja KSÍ til að klára Íslandsmótið í fótbolta.

Allar íþróttir með snertingu bannaðar á höfuðborgarsvæðinu
Tilmæli sóttvarnalæknis um íþróttaiðkun verða nú að reglum.