
WOW Air

Viðskipti með bréf Icelandair hafin á ný
Viðskiptin voru stöðvuð klukkan 10:21 í morgun að beiðni Fjármálaeftirlitsins.

Icelandair: Ólíklegt að allir fyrirvarar á kaupunum á WOW air verði uppfylltir fyrir hluthafafund
Icelandair Group telur ólíklegt að allir fyrirvarar í kaupsamning félagsins á öllu hlutaféi í Wow Air verði uppfylltir í tæka tíð fyrir hluthafafund félagsins þar sem hin fyrirhuguðu kaup verða tekin fyrir.

Segja WOW air ætla að fækka verulega í flotanum
Víkurfréttir í Reykjanesbæ hafa heimildir fyrir því að verulega verði fækkað í flugflota WOW air.

Þyrfti allt að 31 milljarðs rekstrarbata
Verði af samruna Icelandair og WOW air mun sameinað félag þurfa á allt að 31 milljarðs króna rekstrarbata að halda, samkvæmt nýrri greiningu.

Braut reglur í flugi WOW og var handtekinn
Reykti inni á klósetti og lét ófriðlega.

Spáir breytingum á rekstri Icelandair og WOW Air
Sérfræðingur í málefnum alþjóðaflugs á Íslandi sér ekki fyrir sér að Icelandair og WOW AIR verði rekin áfram með sama sniði til framtíðar.

Sprungin rúða og löskuð hurð ollu töfum á tveimur ferðum WOW air
Umtalsverðar tafir urðu á tveimur áætlunarflugferðum WOW air til landsins vegna óhappa í dag. Annars vegar var um að ræða sprungu í rúðu vélar sem fara átti frá Mílanó til Keflavíkur í dag. Þá slóst landgöngubrú í hurð vélar félagsins í Kaupmannahöfn meðan farþegar hennar stigu frá borði og olli því að vélin var ekki metin flughæf.

Skuldabréfaeigendur fá 20 prósenta þóknun
Yfirtaka Icelandair Group á WOW air er háð því skilyrði að kaupréttir að hlutafé í síðarnefnda félaginu verði felldir niður. Í staðinn fá eigendur skuldabréfa WOW air aukagreiðslu. Kosið verður á næstu vikum um breytta skilmála b

Telur ólíklegt að Icelandair og WOW verði rekin sem tvö félög til frambúðar
Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og reynslubolti í fluggeiranum telur ólíklegt að Icelandair og WOW Air verði rekin sem tvö mismunandi vörumerki til frambúðar í kjölfar samruna félaganna.

Vilja auka hlutafé um 960 milljónir til að fjármagna kaupin
Boðað hefur verið til hluthafafundar hjá Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa félagsins á WOW Air.

Gengi hinnar sveiflukenndu krónu vart haggast þrátt fyrir stórar fréttir úr viðskiptalífinu
Sveiflur á gengi krónunnar í október voru miklar en gengið hefur verið stöðugt það sem af er nóvembermánuði.

Formaður Flugfreyjufélagsins segir óvissuna versta fyrir félagsmenn
Berglind Hafsteinsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir þó nokkrar fyrirspurnir hafa borist félaginu vegna kaupa Icelandair á flugfélaginu WOW air sem tilkynnt var á mánudagsmorgun.

Icelandair óskar ekki eftir undanþágu
Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax.

Bogi Nils segir ekki sjálfbært að miðaverð haldist lágt til lengdar
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri Icelandair Group segir fargjöld Wow Air mjög lág og ráða má af orðum hans að þau muni hækka. Hann segir að margvísleg samlegðaráhrif fylgi kaupum Icelandair á Wow Air gangi þau eftir.

Staða WOW air hafi verið verst geymda leyndarmál íslensks efnahagslífs
Jóhannes Þór Skúlason formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að kaup Icelandair Group á WOW air hafi að mestu eytt óvissuástandi innan ferðaþjónustunnar á Íslandi.

Þurfti að ráða „hálfa þjóðina“ í vinnu til að fólk færi að hafa trú á WOW
Einn af fyrstu starfsmönnum WOW Air segir fólk hafa haft litla trú á flugfélagi Skúla Mogensen til að byrja með.

Skúli Mogensen: Einhverjir erfiðustu 72 tímar í lífi mínu
Skúli Mogensen, stofnandi WOW Air, segir að síðustu þrír sólarhringar hafi verið einhverjir þeir erfiðustu í lífi hans. Ákvörðunin um að selja flugfélagið til Icelandair hafi verið honum þungbær en um leið segist hann telja að það hafi verið rétt ákvörðun.

Segir óþarft að óttast fákeppni eftir samrunann
Sameining Icelandair og WOW eru frábær tíðindi að mati hagfræðingsins Heiðars Guðjónssonar.

Bréf Icelandair lækka á ný
Það sem af er morgni hafa hlutabréf í Icelandair lækkað um næstum sex prósent.

Halldór 06.11.18
Mynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

„Hvað verður um þessi 99 dollara flug til Reykjavíkur?“
Fjölmiðlar víða um heim hafa undanfarinn sólarhring eða svo fjallað um fyrirhuguð kaup Icelandair Group á flugfélaginu WOW air.

Með flóknari samrunamálum hér á landi
Samkvæmt reglum samkeppnisréttar getur samruni fyrirtækis á fallanda fæti, til dæmis fyrirtækis á barmi gjaldþrots, verið heimilaður þrátt fyrir að samruninn sé skaðlegur samkeppni.

Kaupin minnka hættuna á stóráföllum
Greinendur telja að kaup Icelandair Group á WOW air minnki líkurnar á því að íslensk ferðaþjónusta verði fyrir verulegum skakkaföllum í vetur.

Biðla til Icelandair að velta ekki kostnaði á herðar neytenda
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neytendasamtökunum.

Kaupin á WOW Air hrundu af stað mestu viðskiptum í Kauphöllinni síðan föstudaginn fyrir hrun
Fjörugur dagur á markaði er nú að kvöldi kominn en gengi Icelandair Group hækkaði um 39,2% eftir að tilkynnt var um kaup félagsins á flugfélaginu WOW Air.

Icelandair hækkaði um 39% í dag eftir að tilkynnt var um kaupin á WOW Air
Hlutabréf í Icelandair Group hækkuðu um 39 prósent í Kauphöll Íslands í dag eftir að tilkynnt var kaup félagsins á öllu hlutafé í WOW Air. Kaupverðið er greitt með hlutabréfum í Icelandair. WOW Air verður sjálfstætt dótturfélag Icelandair. Félögin verða rekin áfram undir sömu vörumerkjum og engin breyting verður á rekstri þeirra fyrst um sinn.

Samrunatilkynning ekki borist Samkeppniseftirlitinu
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir algjörlega ótímabært að gefa nokkuð út um um hve langan tíma mun taka að komast að niðurstöðu varðandi kaup Icelandair Group á WOW air.

Eftir ókyrrð í lofti flaug WOW í fang Icelandair
Það er ekki ofsögum sagt að það hafi gustað um flugfélagið WOW air undanfarna mánuði en í dag var tilkynnt að fyrirtækið verði selt Icelandair Group, að uppfylltu samþykki hluthafafundar, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Bréf í Icelandair hækkuðu um fimmtíu prósent eftir opnun
Hlutabréf í Icelandair hafa hækkað um rúm 50 prósent eftir að tilkynnt var um kaup Icelandair Group á WOW air.

Þetta hefur þjóðin að segja um yfirtöku Icelandair á WOW
Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air.