MeToo

„Vöndum til verka“ – hópuppsagnir og jafnréttismál
Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá HR, er gestur Unnar í hlaðvarpinu "Á mannauðsmáli“. Í spjalli sínu við Unni fer Ella Sigga meðal annars yfir hvernig undirbúa megi stjórnendur sem þurfa að segja upp fólki, mikilvægi ráðgjafar til starfsfólks sem missir vinnuna og hvernig má hlúa að þeim sem eftir eru.

Valdastaðan uppspretta ofbeldis
Það að dvalarleyfi innflytjenda á Íslandi sé bundið við maka eða vinnuveita er í mörgum tilvikum uppspretta andlegs og líkamlegs ofbeldis. Erlendar konur sem eiga íslenskan maka eru oft í verstu aðstæðunum.

Woody Allen og Amazon ná samkomulagi um A Rainy Day in New York
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn og Amazon hafa náð samkomulagi um greiðslu til Allen eftir að Amazon ákvað að sýna ekki nýjustu mynd leikstjórans, A Rainy Day in New York.

Leikarinn, lektorinn, #metoo og mannréttindi
Eva Hauksdóttir svarar meðal annars nýlegum pistli Láru V. Júlíusdóttur í grein þar sem hún fjallar um nýfallna dóma.

„Þér er ég greinilega mjög hugleikin, Steinunn Ólína“
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir gagnrýnir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur harðlega fyrir skrif hennar síðustu daga og segir hana hafa vegið gróflega að starfsheiðri sínum.

Freyja frábiður sér samanburð Steinunnar Ólínu á málum þeirra Atla Rafns
Freyja Haraldsdóttir doktorsnemi og fyrrverandi varaþingmaður, sem vann mál sitt gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti í vikunni, segir það erfitt þegar máli sínu sé stillt upp við hlið máls Atla Rafns Sigurðarsonar leikara, líkt og leikkonan Steinunn Ólína gerði í pistli sem hún birti í gær.

Sjá svart og hvítt í málinu sem aðrir leikarar þora varla að hafa opinbera skoðun á
Leikkonurnar Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sjá svart og hvítt þegar kemur að nýföllum dómi í máli Atla Rafns Sigurðarsonar leikara gegn Borgarleikhúsinu og leikstjóranum Kristínu Eysteinsdóttur.

Birna segir mál Atla Rafns, Kristínar og Borgarleikhússins snúið
Málið hefur verið rætt á fundi norræna leikararáðsins í Kaupmannahöfn.

Kristínu hefði mátt vera ljóst að orðspor og starfsheiður Atla Rafns væri að veði
Kristín Eysteinsdóttir Borgarleikhússtjóri og Leikfélag Reykjavíkur vógu að æru og persónu Atla Rafns Sigurðssonar leikara með því að segja honum upp störfum í desember 2017 og fresta frumsýningu á leikverki, sem hann átti að fara með stórt hlutverk í.

„Allar reglur voru brotnar sem hægt var að brjóta“
Lögmaður Atla Rafns Sigurðssonar leikara segir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhúsinu sé ánægjuleg.

Borgarleikhúsið dæmt til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi nú eftir hádegi Kristínu Eysteinsdóttur Borgarleikhússtjóra og Leikfélag Reykjavíkur til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir í bætur og eina milljón króna í málskostnað.

Séra Þórir sendi kirkjunni umslag sem ekki má opna fyrr en ári eftir andlát hans
Kirkjuráð hefur móttekið umslag frá séra Þóri Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprests, sem ekki ekki má opna fyrr en einu ári eftir andlát hans. Biskup segir að ósk Séra Þóris verði virt.

Hróp gerð að gagnrýnendum Weinstein á viðburði í New York
Tveimur konum var vísað af viðburðinum og gestir bauluðu á aðra eftir að þær vöktu athygli á að Weinstein væri á meðal gesta.

Atli Rafn stefnir Persónuvernd
Atli Rafn Sigurðsson leikari hefur stefnt Persónuvernd og gerir þá kröfu að úrskurður stofnunarinnar frá 15. október í fyrra verði felldur úr gildi.

Starfsmaður forseta áminntur vegna kynferðislegrar áreitni
Í yfirlýsingu forseta Íslands segir að starfsmaður embættisins hafi gerst sekur um óþolandi framkomu en hann fái eitt tækifæri til að bæta ráð sitt.

Plácido Domingo hættir í kjölfar ásakana
Spænski óperusöngvarinn hefur tilkynnt að hann muni hætta sem framkvæmdastjóri Óperunnar í Los Angeles auk þess að hann komi ekki til með að taka þátt í framtíðaruppsetningum á vegum hennar.

„Brotaþolum ber engin skylda til að fara fyrir fjölmiðla eða dómstóla“
#METOO konur hafa sent frá sér yfirlýsingu til að minna á tilgang byltingarinnar.

Hafna ásökunum blaðakonu á hendur Boris Johnson
Breska forsætisráðuneytið hefur hafnað ásökunum bresku blaðakonunnar Charlotte Edwardes, á hendur forsætisráðherranum Boris Johnson, sem birtust í blaðinu Sunday Times.

Ekki spurning hvort heldur hvenær erfið dómsmál fylgdu byltingunni
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir ræddi mál leikarans Atla Rafns Sigurðarsonar gegn Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússstjóra fyrir ólögmæta uppsögn.

Leikstjóri segir fullt af vitnum og upptökur til af „lygasögunni“ um Atla Rafn
Ari Alexander Magnússon leikstjóri segir að ung leikkona hafi logið upp á fjörutíu manna tökulið, þeirra á meðal Atla Rafn Sigurðarson leikara, með frásögn sinni undir merkjum #metoo í nóvember 2017. Lýsingar hennar á því sem gerst hafi verði auðveldlega hraktar enda sé allt til á upptökum.

Hver frásögn er fyrirmynd
Samstaða á samfélagsmiðlum getur skapað góðar aðstæður til að segja frá kynferðisofbeldi. Jákvæð viðbrögð skipta máli því neikvæð viðbrögð geta haft slæm áhrif á líðan þess sem segir frá og aukið líkur á þunglyndi.

Deildu um hvort reglum hefði verið fylgt við uppsögn Atla Rafns
Lögmaður Borgarleikhússins spurði hvort því hafi verið skylt að halda Atla Rafni í vinnu eftir að ásakanir um kynferðislega áreitni komu fram. Lögmaður leikarans sagði að mannorði hans hefði verið kálað með uppsögn hans árið 2017.

Fjöldi, eðli og umfang ásakana gegn Atla Rafni leiddu til brottrekstursins
Fjórir þáverandi starfsmenn Borgarleikhússins greindu Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra, frá ásökunum um kynferðislega áreitni og ofbeldi af hálfu Atla Rafns Sigurðarsonar og lýstu vanlíðan á vinnustaðnum.

Atli Rafn sagðist hafa verið haldið í algeru myrkri um ásakanir
Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson sagði að honum hefði verið haldið í algeru myrkri um ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi.

Barátta og boðskapur
Það hefur reynst ómetanlegt fyrir marga að geta sagt sögu sína af kynferðisofbeldi á netinu. MeToo-byltingin óx og magnaðist á samfélagsmiðlum og hefur haft mikil áhrif hérlendis.

„Ég vil að við getum átt okkar líkama í friði“
Elísabet Ormslev segir að hún sé orðin dauðþreytt á að verja sig gegn áreitni karlmanna.

Katrín fjallar um „þrálátustu meinsemd okkar tíma“ á vef CNN
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur kynferðisofbeldi gegn konum af erlendum uppruna á Íslandi sérstaklega til umfjöllunar í grein um #MeToo-hreyfinguna sem birtist á vef bandarísku fréttastofunnar CNN í morgun.

Leiða saman ólíka hópa á #metoo-ráðstefnu í Hörpu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setur alþjóðlega ráðstefnu um Metoo-hreyfinguna í Hörpu í dag.

Barnaníð í Frakklandi rannsökuð í tengslum við Epstein
Aðalsaksóknari Parísar tilkynnti í dag að embættið hyggðist opna rannsókn á kynferðisbrotum gegn ólögráða einstaklingum í tengslum við Jeffrey Epstein.

Quentin Tarantino og Daniella Pick eiga von á barni
Hjónin giftu sig fyrir um ári síðan og eiga nú von á barni. Daniella Pick lék í nýjustu kvikmynd leikstjórans Once Upon a Time in Hollywood.