
Sameinuðu þjóðirnar

Milljónir sjá fram á matarskort næstu mánuði
Hækkandi matvælaverð, stríðsátök og afleiðinga heimsfaraldurs valda matarskorti.

UNICEF veitir neyðaraðstoð á St. Vincent eyju
Þúsundir barna hafa þurft að yfirgefa heimili sín á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi eftir að sprengigos hófst í eldfjallinu La Soufriere fyrir helgi.

Afhending á bóluefnum til snauðra ríkja nær stöðvast
Nær ekkert hefur verið afhent af bóluefni gegn kórónuveirunni til fátækustu ríkja heims frá því á mánudag og nú stefnir í að allt að sextíu ríki geti ekki gefið seinni skammt af bóluefni fyrr en í júní. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar gagnrýnir harðlega misskiptingu í bólusetningum á milli ríkra þjóða og snauðra.

Telja líklegast að veiran hafi borist úr dýrum
Líklegast er að nýtt afbrigði kórónuveirunnar hafi borist úr leðurblökum í menn í gegnum aðra dýrategund samkvæmt niðurstöðum sameiginlegrar rannsóknar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og kínverskra stjórnvalda. „Afar ólíklegt“ er talið að veiran hafi sloppið út af tilraunastofu eins og samsæriskenningar hafa verið um.

Hið meinta þunglyndi Finna stórlega orðum aukið
Finnar mælast þeir hamingjusömustu í heimi samkvæmt árlegri árlegri hamingjuskýrslu. Íslendingar eru í öðru sæti.

Neyðarsjóður Sameinuðu þjóðanna fimmtán ára
Neyðarsjóður sameinuðu þjóðanna hefur ráðstafað um 900 milljörðum frá því hann var stofnaður í mars 2006

Fjórðungur kvenna beittur ofbeldi af maka
Ein af hverjum fjórum konum hefur verið beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu eiginmanns eða karlkyns maka samkvæmt stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á ofbeldi gegn konum.

Sameinuðu þjóðirnar fá engin svör vegna týndu prinsessunnar
Tveimur vikum eftir að Sameinuðu þjóðirnar báðu um sannanir fyrir því að dóttir ráðanda Dubaí væri á lífi, hafa þær ekki borist. Dóttirin, prinsessan Latifa Al Maktoum, hefur undanfarin ár gengið undir nafninu „Týnda prinsessan“.

Blóðugasti dagur Mjanmar hingað til en mótmælin halda áfram
Mótmælendur í Mjanmar virðast ekki láta deigan síga þrátt fyrir að minnst 38 hafi verið skotnir til bana af öryggissveitum í gær. Fjölmargir hafa komið saman á götum borga landsins í morgun og hafa öryggissveitir aftur beitt valdi til að dreifa mótmælendum.

Jóna Þórey kjörin ungmennafulltrúi Íslands hjá SÞ á sviði mannréttinda
Jóna Þórey Pétursdóttir var í gær kjörin nýr ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði mannréttinda. Kjörið fór fram á sambandsþingi Landssambands ungmennafélaga en hún var tilnefnd fyrir hönd Ungra jafnaðarmanna.

Sendiherra Mjanmar hjá SÞ rekinn fyrir að biðja um hjálp
Herforingjastjórn Mjanmar, sem rændi völdum í byrjun febrúarmánaðar, hefur rekið Kyaw Moe Tun, sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, eftir að hann óskaði eftir aðstoð SÞ til þess að hrekja herforingjastjórnina frá völdum.

Ekki skuli nota faraldurinn til að skerða mannréttindi
Staða mannréttindamála í Rússlandi er áhyggjuefni. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er hann ávarpaði mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í dag.

Sendiherra Ítalíu látinn eftir árás á bílalest í Austur-Kongó
Sendiherra Ítalíu í Austur-Kongó, Luca Attanasio, er látinn eftir að hópur manna réðst á bílalest á vegum Sameinuðu þjóðanna í Goma í austurhluta landsins.

Mannréttindaráðið fordæmir valdarán í Mjanmar
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í dag valdarán hersins í Mjanmar á sérstökum fundi sem Ísland lagði til að væri haldinn ásamt öðrum ríkjum.

„Það bjargar enginn heiminum einn“
Ungir þáttastjórnendur kynna sér heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í nýrri þáttaröð á KrakkaRÚV, HM30, sem framleidd í samstarfi við forsætis- og utanríkisráðuneytið.

Árás á kynfrelsi og heilsu kvenna
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn limlestingum á kynfærum kvenna. Yfir 200 milljónir núlifandi kvenna og stúlkna hafa verið limlestar á kynfærum sínum, langflestar fyrir 15 ára aldur.

Kínverjar beittu neitunarvaldi sínu í öryggisráðinu
Kínverjar hafa beitt neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn tillögu um að fordæma herforingjastjórnina í Mjanmar.

Ævar Þór Benediktsson fyrsti sendiherra UNICEF á Íslandi
„Þetta er mikill heiður og ég mun gera mitt allra besta til að standa undir nafni sem sendiherra UNICEF á Íslandi," sagði Ævar Þór Benediktsson en hann hefur helgað feril sinn börnum.

Ingibjörg Sólrún segist spennt fyrir nýju starfi hjá SÞ í Írak
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi ráðherra og Alþingismaður, hefur verið skipuð sem staðgengill fulltrúa António Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í Írak. Hún segist spennt fyrir starfinu og verkefnunum sem því fylgja.

Nýr varafulltrúi Guterres á skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Írak
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur verið skipuð sérstakur varafulltrúi António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna, í Írak í Aðstoðarsendisveit samtakanna í Írak (UNAMI).

Starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunarstörfum heiðrað á árinu 2021
Sameinuðu þjóðirnar helga árið 2021 meðal annars heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólki, friði og trausti og stefna á að útrýma barnavinnu.

„Ár prófrauna, harmleikja og tára“
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir kolefnisjafnvægi fyrir árið 2050 helsta baráttumál samtakanna á næsta ári.

UNICEF vill tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að bóluefni
Eitt af stóru verkefnum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) að tryggja að öll lönd hafi jafnan aðgang að bóluefnum.

Heimsmarkmiðin og Framsókn eiga samleið
Heimsmarkmið um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í september árið 2015. Heimsmarkmiðin eru algild og aðildarríkin hafa skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu markmiðanna bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra sem er árið 2030.

„Ísland vill sýna gott fordæmi“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti ný markmið Íslands í loftslagsmálum á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í dag. Fundurinn fór fram rafrænt en þar kynnti Katrín meðal annars ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem greint var frá í vikunni, um að stefnt skuli að því að draga hraðar úr losun gróðurhúsalofttegunda en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.

Segir að baráttan við loftslagsvána muni skapa milljónir starfa
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði á sérstökum fundi Sameinuðu þjóðanna í dag að baráttan við loftslagsvána muni skapa milljónir starfa um heim allan.

Hvetur ríki heims til að lýsa yfir neyðarástandi
António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvatti í dag ríki heims til að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum. Þetta kom fram í opnunarávarpi hans á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna sem fram fór rafrænt í dag í tilefni af fimm ára afmæli Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum.

Katrín ávarpar leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna í dag
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun á eftir ávarpa sérstakan leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna þar sem hún mun kynna ný markmið Íslands í loftslagsmálum. Fundurinn hófst klukkan tvö og fer fram rafrænt.

Ráðherra á hátíðarfundi á alþjóðamannréttindadeginum
Utanríkisráðherra sagði mikilvægt að standa vörð um hinar sameinuðu þjóðir í ávarpi sínu á hátíðafundinum og harmaði hve hart væri sótt að mannréttindum, lýðræði og fjölþjóðasamvinnu um þessar mundir.

Mannréttindi í öndvegi í heiminum að loknum faraldri
Mannréttindadagurinn er haldinn árlega 10. desember. Þann dag, árið 1948, samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna Heimsyfirlýsingu um mannréttindi.