Kosningar 2018

Slitnað upp úr viðræðum í Grindavík
Framsóknarflokkurinn í Grindavíkur ákvað að draga sig úr viðræðum um myndun meirihluta með Miðflokki, Röddum unga fólksins og Samfylkingu.

„Næstu dagar munu leiða í ljós hvað gerist“
Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að ekki sé æskilegt að útiloka neinn í pólitík.

Sósíalistar ala á sundrungu
Á bak við ómþýða útvarpsrödd vel gefinnar konu liggja skilaboðin skýr fyrir: Það verður að "tortíma kapítalismanum“ með því að "ráðast að auðvaldinu.“ "Aldrei verða eins og þau“ segir röddin.

„Við vorum ekki í framboði til þess að viðhalda ónýtum vinstri flokkum“
Það eru skiptar skoðanir á meðal Sósíalista um ágæti ákvörðunar flokksins um að sniðganga viðræður um myndun meirihluta.

Pawel hoppar hæð sína vegna yfirlýsingar Sósíalista
Pawel Bartoszek, nýkjörinn borgarfulltrúi Viðreisnar í Reykjavík, er ánægður með ákvörðun Sósíalistaflokksins en hann tilkynnti í gærkvöldi að hann hygðist ekki taka þátt í meirihlutasamstarfi á kjörtímabilinu.

Heimaeyjarframboð og Eyjalistinn hefja formlegar viðræður
Eyjalistinn og H-listinn, Fyrir Heimaey, hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja.

Hlusta verði á kröfur kjósenda um breytingar í borgarstjórn
Viðreisn á fullt erindi í meirihlutasamstarf og þarf að hlusta á kröfur kjósenda um breytingar, segir félagsmaður í flokknum. Oddvitar borgarstjórnarflokkanna halda spilum þétt að sér eftir kosningarnar um helgina.

Viðræður hafnar í Hafnarfirði
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hefur í dag formlegar viðræður við Framsókn og óháða um myndun meirihluta í bænum.

Sósíalistar útiloka meirihlutasamstarf
Nýkjörinn borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins segir flokka sem standa þeim næst í stefnu hafi haft samband óformlega um viðræður.

Skora á VG í Mosfellsbæ að slíta viðræðum við Sjálfstæðisflokkinn
Miðflokkurinn, Samfylkingin, Viðreisn og Vinir Mosfellsbæjar skora á Vinstri græna í Mosfellsbæ að hætta við viðræður um meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn og ganga þess í stað til viðræðna við þá.

Viðræður um myndun meirihluta ganga vel á Akureyri
Flokkarnir hafa gefið sér tiltekinn tímaramma fyrir viðræðurnar og ætla að láta á það reyna hvort flokkarnir nái ekki saman fyrir mánaðamót.

„Ég held að þetta sé það raunhæfasta í stöðunni“
Í gærkvöldi héldu Píratar fund með baklandinu. Það sem bar hæst voru húsnæðismálin. Úrlausn húsnæðisvandans væri skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi.

Flestir strikuðu yfir Gunnar Gíslason
Af öllum framboðum á Akureyri var oftast strikað yfir nafn Gunnars Gíslasonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins, alls 58 kjósendur.

Engar formlegar viðræður hafnar í Vestmannaeyjum
Njáll Ragnarsson, bæjarfulltrúi Eyjalistans í Vestmannaeyjum, segir að það ætti að skýrast í kvöld eða á morgun hvort hann fari í meirihlutaviðræður við annað hvort Sjálfstæðisflokk eða Fyrir Heimaey.

Framsókn á Ísafirði ræðir meirihluta með Sjálfstæðisflokki
Marzellíus Sveinbjörnsson oddviti framsóknarmanna í bænum segir að ákveðið hafi verið í morgun að taka upp viðræður við Sjálfstæðisflokkinn.

Eyþór vonar að línur skýrist fyrir helgi
Engir formlegir fundir hafa verið um myndun meirihluta í Reykjavík með fráfarandi meirihlutaflokkum. Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins vonar að línur verði farnar að skýrast fyrir helgi.

Vilja aukna lýðræðisvæðingu í borginni
Vinstri græn og Sósíalistaflokkurinn vilja gaumgæfa nánar alla möguleika.

Vilja mynda nýjan meirihluta fyrir helgi
Viðræður um meirihlutamyndun fara misjafnlega vel af stað. Oddviti Framsóknar og óháðra í Árborg segir möguleika á að klára myndun þriggja flokka meirihluta fyrir helgi.

Gætu þurft að fórna borgarstjórastólnum
Viðreisn er í bílstjórasætinu við myndun meirihluta í borginni. Ekkert hefur verið um formlega fundi milli flokkanna. Stjórnmálafræðiprófessor telur líklegast að Viðreisn líti til síðasta meirihluta og að ráðning borgarstjóra geti verið lausn í meirihlutamynduninni.

Formlegar viðræður hafnar í Norðurþingi
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og óháðra og Samfylkingar og annars félagshyggjufólks ræða um myndun meirihluta.

Úrslitin óbreytt í Hafnarfirði: „Þetta var grátlega tæpt“
Samfylkingin og VG óskuðu eftir endurtalningunni vegna þess hversu litlu munaði að annar flokkurinn næði manni inn.

Tvær fylkingar funda
Tvær línur hafa myndast í meirihlutaviðræðunum í borginni. Annars vegar fundaði Viðreisn í dag með Pírötum, Samfylkingu og Vinstri Grænum og hins vegar fengu oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins sér kaffi saman. Oddviti Viðreisnar segir samtalið þó einnig vera opið í þá átt.

Telur að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að leiða meirihlutaviðræður
Aðspurð um draumameirihluta sinn í Reykjavík sagði Vigdís: „Það er meirihluti Miðflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Flokks fólksins.“

Segir ólíklegt að hann hefji formlegar meirihlutaviðræður í dag
Eyþór Arnalds kveðst hafa heyrt í og hitt fólk úr öðrum flokkum en vill ekki gefa upp við hverja hann hefur rætt að öðru leyti en því að hann hefur ekkert heyrt í Sósíalistaflokknum.

Sjálfstæðisflokkurinn hagnast um níu bæjarfulltrúa á d'Hondt reiknireglunni
Marinó G. Njálsson hefur reiknað út hvaða áhrif d'Hondt hefur á útkomu sveitarstjórnarkosninganna.

Engar formlegar viðræður hafnar
Málefnin ráða för en útilokar ekki borgarstjórastólinn.

Fjórir flokkar hefja viðræður í Grindavík
Ná eins manns meirihluta.

Sá á kvölina sem á völina
Helstu tíðindin úr kosningum helgarinnar voru þau, að þeir sem vilja efna til úlfúðar á grundvelli kynþátta eða trúarbragða urðu undir í kosningunum.

Sæmó úrslit
Kosningar eru alltaf heilmikil æfing fyrir mann.

Eyjalistinn ætlar að ræða við D-lista og Heimaeyjarframboð
Það munaði hársbreidd að Sjálfstæðismenn í Eyjum fengju fjóra menn kjörna og héldu meirihluta sínum. Klofningsframboðið vill ræða við Eyjalistann, en Eyjalistinn ætlar að ræða við bæði Sjálfstæðisflokkinn og Fyrir Heimaey.