Heilbrigðismál

Nýtt Covid greiningartæki Landspítalans getur nýst við skimun á leghálskrabbameini
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir allt á ætlun þegar kemur að færslu skimunar leghálskrabbameins frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar. Hann segir ný COVID greiningartæki Landspítalans geta nýst við skimunina.

Öskureið yfir „siðleysi“ og „aumingjadómi“ Krabbameinsfélagsins
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra segir forsvarsmenn Krabbameinsfélags Íslands sýna af sér siðleysi í framgöngu þeirra vegna mistaka við greiningu á leghálssýnum árið 2018.

Höfðu áhyggjur af andlega veikum starfsmanni sem gerði mistök
Starfsmaður Krabbameinsfélagsins sem sinnti því að greina sýni við leghálsskoðun var andlega veikur og hætti störfum af þeim sökum á þessu ári. Viðkomandi starfsmaður gerði mistök við greiningu á frumubreytingum sem nú er orðið að ólæknandi krabbameini.

Hafa kallað inn fleiri konur vegna sýna sem sami starfsmaður skoðaði
Starfsmaðurinn sem skoðaði sýni konunnar sem greindist með ólæknandi leghálskrabbamein í ár lét af störfum hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins í febrúar á þessu ári.

Svona var 109. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 14 í dag vegna kórónuveirufaraldursins.

Fyrirspurnum rignir inn frá áhyggjufullum konum og aðstandendum
Lögmaður konu sem ætlar í skaðabótamál við Krabbameinsfélagið vegna mistaka við sýnatöku segist hafa fengið fjölda fyrirspurna frá öðrum konum eða aðstandendum þeirra sem vilja athuga rétt sinn vegna mögulegra mistaka.

Þurfti að greinast með krabbamein í vinstra brjósti til að fá greiningu á meininu í því hægra
Kona sem greindist með krabbamein í báðum brjóstum í vor segir að ýmislegt megi betur fara í greiningarferli Krabbameinsféags Íslands og Brjóstamiðstöðvar Landspítala.

Tjá sig ekki um hvort rekja megi öll mistökin til sama starfsmanns
Starfsmaður leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins sem gerði mistök við greiningu á leghálssýni fimmtugrar konu greindi að minnsta kosti nokkur af sýnum þeirra þrjátíu kvenna sem hafa verið kallaðar aftur í skoðun vegna rangrar niðurstöðu um frumubreytingar.

Krefjast skýrari svara eftir andlát Reynheiðar
Móðir og eiginmaður 35 ára konu sem lést úr leghálskrabbameini um miðjan ágúst vilja sjá breytta verkferla hjá Krabbameinsfélaginu.

Harma að gerðardómur hafi ekki leiðrétt launin
Rúmlega milljarður króna sem gerðardómur ákvað að ríkið skuli fá heilbrigðisstofnunum til að bæta kjör hjúkrunarfræðinga dugar ekki til að leiðrétta launin til samræmis við viðmiðunarstéttir að mati stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

„Barnið mitt þekkir ekki annað“
„Þá átti ég þriggja mánaða stelpu,“ segir Sara Snorradóttir um það þegar hún greindist með Hodgkins eitlafrumukrabbamein í ágúst árið 2017. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að fá þessar fréttir svo skömmu eftir að barnið fæddist.

Skýrsla um dánaraðstoð lögð fram á Alþingi
Í skýrslunni er m.a. fjallað um þróun lagaramma í löndum þar sem dánaraðstoð er leyfð, um tíðni, ástæður og skilyrði dánaraðstoðar í þeim löndum og hver reynslan hefur verið.

Mótefni minnkar ekki á fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu
Niðurstöður rannsóknar vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra benda til þess að ekki dragi úr mótefni sem myndast í blóði þegar fólk smitast af Covid-19 á fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu.

Minnst þrjátíu konur fengið ranga niðurstöðu hjá Krabbameinsfélaginu
Að minnsta kosti 30 konur fengu ranga niðurstöðu um frumubreytingar í leghálsskoðun hjá Krabbameinsfélagi Íslands árið 2018. Félagið vinnur nú að því að endurskoða um 6000 leghálssýni.

Meta hvort heilbrigðiskerfið uppfylli ólíkar þarfir kynjanna
Lagt verður mat á hvort heilbrigðisþjónustan taki mið af ólíkum þörfum kynjanna í rannsókn sem heilbrigðisráðuneytið hefur samið við félagsvísindasvið Háskóla Íslands um að gera. Vísbendingar eru um að konur búi að nokkru leyti við lakari heilsu en karlar.

Ríkið reiði fram rúman milljarð til að bæta kjör hjúkrunarfræðinga
Ríkið skal leggja Landspítalanum til alls 900 milljónir króna á ári frá deginum í dag til loka gildistíma kjarasamnings deiluaðila.

Klukkunni verður ekki seinkað
Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár.

Með ólæknandi krabbamein eftir mistök hjá Krabbameinsfélaginu
Kona um fimmtugt sem fékk rangar niðurstöður í leghálsskoðun er nú með ólæknandi krabbamein, sem líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Krabbameinsfélagið harmar mistökin.

Segir ótækt að bera dánarlíkur Covid-sjúklinga saman við bílslys eða hjartasjúkdóma
Jón Magnús Jóhannesson, sérnámslæknir á Landspítalanum, segir að í grein Jóns Ívars Einarssonar, prófessors við læknadeild Harvard-háskóla, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, sé gert lítið úr hættunni sem stafar af Covid-19 og kórónuveirufaraldrinum.

Hræddur um að sjá nöfn geðfatlaðra vina sinna í dánarfregnum
Maður með geðklofa hefur haft gríðarlegar áhyggjur af geðfötluðum vinum sínum í faraldrinum. Vegna ástandsins hefur þjónusta á VIN, dagsetri fyrir fólk með geðraskanir, verið skert - sem hafi orðið til þess að fólk einangrast.

Gera ráð fyrir að þurfa 550 þúsund skammta af bóluefni hér á landi
Gert er ráð fyrir að hér á landi þurfi um 550 þúsund skammta af bóluefni gegn Covid-19. Er þá miðað við að bólusetja um 75 prósent þjóðarinnar til að ná fullnægjandi hjarðónæmi og að hver einstaklingur verði bólusettur tvisvar.

Samstaða innan ríkisstjórnar um lokun landsins
Þorgerður Katrín ítrekaði fyrirspurn sína til Katrínar um hvort samstaða ríkti innan ríkisstjórnar um hertar aðgerðir á landamærum.

Fjöldi salmonellusmita í íslenskum kjúklingabúum setji háa tolla í annað ljós
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir salmonellusmit setja umræðuna um að íslenskar búvörur séu einstakar hvað varðar hreinleika og heilbrigði í annað ljós.

Eykt með lægsta tilboð í uppsteypu nýs þjóðarsjúkrahúss
Verktakafyrirtækið Eykt átti lægsta tilboðið í uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut.

Grunur um E. coli í vatninu á Klaustri
Íbúar Skaftárhrepps eru hvattir til að sjóða neysluvatn.

Hömlulaust á Hlíf eftir neikvæð sýni
Öllum hömlum sem settar voru á íbúa á hjúkrunarheimili Hlíf á Ísafirði síðastliðið laugardagskvöld hefur nú verið aflétt.

Býst við bóluefni á Íslandi í janúar
Yfirlæknir ónæmisdeildar á Landspítalanum segist bjartsýnn á að bóluefni við kórónuveirunni verði aðgengilegt hér á landi um áramótin.

Kerecis tryggt sér þrjá milljarða
Lækningavörufyrirtækið Kercis segist hafa tryggt sér 3 milljarða króna lánsfjármögnun.

Sáu ekki verðið í gleraugnaverslunum
Viðunandi verðmerkingar og upplýsingar á vefsíðu vantaði hjá meirihluta þeirra gleraugnaversluna sem Neytendastofa segist hafa kannað á dögunum.

Leita á Vog eftir að hafa drukkið spritt
Yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi segist merkja aukna áfengisneyslu í kórónuveirufaraldrinum.