Rússland
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 101 ›
Rússar ætla að senda „óþægileg merki“ fyrir fund Pútín og Biden Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands segir að stjórnvöld í Kreml ætli sér að senda Bandaríkjastjórn „óþægileg merki“ í aðdraganda fundar Joes Biden Bandaríkjaforseta og Vladímírs Pútín, forseta Rússlands, í næsta mánuði. Rússar ætla að styrkja herlið sitt á vesturlandamærum sínum. Erlent 31.5.2021 12:41
Rússar reiðir yfir viðbrögðunum gegn Hvíta-Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi hafa fordæmt ákvörðun Evrópusambandsins um að meina flugfélögum sem rekin eru í aðildarríkjum að fljúga inn í lofthelgi Hvíta-Rússlands. María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneyti Rússlands, segir að með því sé ESB að ógna öryggi flugfarþega og að ákvörðunin sé „algerlega óábyrg“. Erlent 28.5.2021 15:18
NATO æfir sig fyrir mögulega innrás Þúsundir hermanna, sjóliða og flugmanna taka nú þátt í umfangsmiklum heræfingum Atlantshafsbandalagins (NATO) sem ætlað er að líkja eftir innrás í eitt aðildarríkið. Æfingarnar fara fram beggja vegna Atlantshafsins allt að Svartahafi. Erlent 28.5.2021 14:07
Rússneskir tölvuþrjótar ráðast á hjálpar- og mannréttindasamtök Rússneskir tölvuþrjótar, sem taldir eru bera ábyrgð á SolarWinds árásinni svokölluðu, hafa nú gert árás á rúmlega 150 stofnanir og samtök í minnst 24 löndum víðsvegar um heiminn, með því að notast við tölvukerfi ríkisstofnunar sem sér um þróunaraðstoð Bandaríkjanna (USAID). Sérfræðingar Microsoft segja um þrjú þúsund tölvupósta úr tölvukerfi USAID hafa verið senda í árásinni. Erlent 28.5.2021 11:14
Bandaríkjamenn segja skilið við samkomulag um eftirlitsflug Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að ganga ekki aftur að svokölluðu „Open Skies“ samkomulagi vegna brota Rússa. Bandaríkjamenn sögðu sig frá samningnum í stjórnartíð Donalds Trump. Erlent 28.5.2021 07:11
Kanna hvort úkraínskir embættismenn hafi reynt að hjálpa Trump Alríkissaksóknarar í New York rannsaka nú hvort að hópur úkraínskra núverandi og fyrrverandi embættismanna hafi reynt að hafa áhrifa á bandarísku forsetakosningarnar í nóvember. Þeir kunni að hafa dreift misvísandi upplýsingum um Joe Biden til að hjálpa Donald Trump að landa sigri. Erlent 27.5.2021 23:44
Rússar hafna flugáætlunum sem sneiða hjá Hvíta-Rússlandi Tveimur evrópskum farþegaþotum var synjað um leyfi til að fljúga til Rússlands í dag eftir að þarlend yfirvöld höfnuðu flugáætlunum þeirra sem sneiddu hjá Hvíta-Rússlandi. Sum flugfélög forðast nú hvítrússneska lofthelgi til að mótmæla því þegar stjórnvöld þar neyddu þotu Ryanair til að lenda í Minsk til að þau gætu handtekið blaðamann og kærustu hans. Erlent 27.5.2021 22:16
Biden og Pútín funda í Genf Joe Biden og Vladimír Pútín, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands, munu funda í Genf í næsta mánuði. Verður það fyrsti fundur þeirra tveggja frá því Biden tók við embætti en spenna milli ríkjanna hefur aukist á undanförnum mánuðum. Erlent 25.5.2021 14:31
Söguleg tímamót á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík Söguleg tímamót urðu á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík í dag þegar gefin var út sameiginleg yfirlýsing og aðgerðaráætlun í fyrsta skipti í tuttugu og fimm ára sögu ráðsins. Rússar tóku við forystu í ráðinu til næstu tveggja ára úr höndum Íslendinga á fundinum og segjast vilja standa vörð um frið og sjálfbærni á Norðurskautinu. Innlent 20.5.2021 19:41
Mikil spenna milli Rússa og Bandaríkjamanna í Hörpu Mikil spenna ríkti milli Bandaríkjamanna og Rússa á fundi Norðurskautsráðsins í Reykjavík. Rússar gagnrýna NATO ríkin harðlega fyrir hernaðaruppbyggingu við landamæri Rússlands og vilja að yfirmenn herafla Norðurskautsráðsins taki á ný upp reglulega fundi. Innlent 20.5.2021 19:20
Óttast að Rússar undirbúi innlimun Austur-Úkraínu Forseti Úkraínu hefur áhyggjur af því að útgáfa rússneskra stjórnvalda á vegabréfum fyrir íbúa austanverðrar Úkraínu sé fyrsta skrefið í að Rússland innlimi svæðið líkt og það gerði með Krímskaga. Hann átelur vestræn ríki fyrir að hafa sýnt Rússum of mikla linkind að undanförnu. Erlent 20.5.2021 16:20
Undirrituðu Reykjavíkuryfirlýsingu í Hörpu Rússland tók við formennsku Norðurskautsráðsins á fundi þess sem hófst í Hörpu klukkan níu í morgun. Aðildarríkin átta gáfu út sameiginlega yfirlýsingu og samþykktu stefnu til tíu ára. Innlent 20.5.2021 12:01
„Enginn að æpa og enginn að spyrja spurninga“ Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands héldu hvor um sig stutta tölu fyrir sögulegan fund ráðherranna í Hörpu í kvöld, þar sem þeir fjölluðu um tengsl stórveldanna. Eftir framsögu þeirra héldu þeir áfram lokuðum fundarhöldum. Innlent 19.5.2021 22:10
Mótmæla stefnu stórveldanna á meðan ráðherrarnir funda Á meðan utanríkisráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna, Sergei Lavrov og Antony Blinken, funda í Hörpu munu mótmæli fara fram fyrir utan bygginguna á vegum Samtaka hernaðarandstæðinga. Ýmis félagasamtök hafa í dag sent frá sér áskorun til stórveldanna um að láta af andstöðu sinni við sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarnorkuvopnum og undirrita hann sem fyrst. Innlent 19.5.2021 19:35
Bandarísk C-5 herþota þveraði fluglegg Lavrovs yfir Hornafirði Herflutningaþota bandaríska flughersins af gerðinni Lockheed C-5 Galaxy flaug inn yfir Ísland og þvert fyrir fluglegg Ilyushin-þotu Sergeis Lavrovs nú síðdegis aðeins um 2-3 mínútum áður en þota utanríkisráðherra Rússlands kom að Íslandsströndum. Innlent 19.5.2021 19:19
Sergei Lavrov mættur í Hörpu: Rússneski ráðherrann slær á létta strengi við fréttamenn Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands hittast á tvíhliða fundi í Hörpu núna innan stundar. Það verður fyrsti fundur háttsettra ráðamanna ríkjanna frá því Joe Biden tók við forsetaembættinu í Bandaríkjunum í janúar. Innlent 19.5.2021 18:48
Mannleg mistök ástæða þess að ísbjörn í Berlín reyndist afkvæmi systkina Forsvarsmenn dýragarðsins í Berlín í Þýskalandi hafa greint frá því að ísbjarnarhúnninn Hertha sé í raun afkvæmi systkina. Segja þeir að ónákvæmni í skjölum sem fylgdu innfluttum ísbjörnum frá Rússlandi til garðsins skýri mistökin. Erlent 19.5.2021 10:19
Þar sem ástin er kæfð Á Íslandi má oft sjá regnbogafána á ótrúlegustu stöðum. Oft eru þeir litlir og virðast kannski óþarfir, en jafnvel krítaður regnbogafáni á töflunni á kaffihúsi vermir mörgu hinsegin fólki um hjartað og gefur til kynna að um öruggara rými sé að ræða. Skoðun 19.5.2021 09:31
Katrín: Mikil valdabarátta í aðdraganda fundarins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist merkja mikla valdabaráttu í aðdraganda fundar Norðurskautsráðsins á morgun. Þjóðirnar séu að marka sér stöðu. Þetta sagði Katrín í viðtali við fréttastofu að loknum fundi hennar með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Innlent 18.5.2021 14:44
Blinken lentur á Keflavíkurflugvelli Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er lentur á Keflavíkurflugvelli. Ráðherrann mun funda með forseta Íslands, forsætisráðherra og utanríkisráðherra á morgun en hann er kominn hingað til lands til að sækja fund Norðurskautsráðsins á miðvikudag. Innlent 17.5.2021 19:44
Mikill viðbúnaður þó talið sé að ógnin sé engin „Við teljum í sjálfu sér og vitum ekki um sérstaka ógn þessu samfara,“ segir Jón Bjartmars, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, spurður hvort erlendum ráðherrum, sem ætla að sitja fund Norðurskautsráðs hér á landi í vikunni, stafi ógn af einstaklingum eða hópum hér á landi. Innlent 17.5.2021 18:01
Regnbogafánanum flaggað fyrir utan Höfða Regnbogafáninn hefur verið dreginn að húni fyrir utan Höfða í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fordómum í garð hinsegin fólks. Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt þar í dag. Innlent 17.5.2021 17:10
Leggja fram frekari gögn til að banna samtök Navalní Saksóknari í Moskvu lagði fram mikið magn gagna til að styðja kröfu sína um að dómari banni starfsemi samtaka Alexeis Navalní gegn spillingu í dag. Ekki er ljóst á hvaða forsendu saksóknarinn byggir kröfuna um að samtökin verði lýst öfgahreyfing þar sem leynd liggur yfir þeim gögnum sem hann lagði upphafleg fram. Erlent 17.5.2021 10:52
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands funda í fyrsta sinn í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, munu hittast á tvíhliða fundi í Reykjavík þann 20. maí næstkomandi. Innlent 12.5.2021 17:34
Banna unglingsstúlku sem mótmælti Kreml að yfirgefa heimabæinn Dómstóll í Rússlandi bannaði nítján ára gamalli stúlku að yfirgefa heimabæ sinn í meira en tvö ár eftir að hún var sakfelld fyrir skemmdarverk. Stúlkan vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum árið 2019. Innlent 12.5.2021 09:42
Sjö börn í hópi látinna í skotárás í rússneskum skóla Átta manns - sjö nemendur og einn kennari - eru látnir eftir skotárás sem gerð var í skóla í borginni Kasan í Tatarstan í Rússlandi í morgun. Þá er 21 sagður hafa særst í árásinni. Erlent 11.5.2021 07:53
Innlit í Kreml Kreml, höfuðstöðvar yfirvalda í Rússlandi, er með dýrustu höfuðstöðvum heims. Forseti Rússlands hefur aðsetur þar og er það í dag Vladimir Pútin. Lífið 7.5.2021 15:31
Ríkisstjórnin skoðar að kaupa Sputnik V fyrir 100 þúsund manns Íslenskum stjórnvöldum stendur til boða að fá skammta af rússneska bóluefninu Sputnik V fyrir 200 þúsund manns. Ríkisstjórnin skoðar nú þann möguleika að kaupa skammta fyrir 100 þúsund einstaklinga. Innlent 7.5.2021 14:48
Kínverjar framleiða bóluefni fyrir Rússland Rússland hefur gert samninga við þrjá kínverska lyfjaframleiðendur um framleiðslu á bóluefninu Sputnik V en framleiðendur í Rússlandi hafa ekki í við eftirspurn eftir efninu. Samningar hafa verið gerðir við kínversk fyrirtæki um framleiðslu á 260 milljón skömmtum af bóluefninu. Erlent 3.5.2021 13:29
Rannsaka atlögu Giuliani að sendiherranum í Kænugarði Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú hlut Rudys Giuliani, persónulegs lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í því að ryðja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr vegi árið 2019. Húsleit var gerð á heimili og skrifstofu Giuliani vegna rannsóknarinnar í vikunni. Erlent 30.4.2021 22:15