

Áhrif rafmagnsleysisins á helmingi landsins í dag gætti eðli málsins samkvæmt víða. Meðal annars í Vaðlaheiðargöngum þar sem ljós blikkuðu svo eftir var tekið. Rafmagn komst aftur á um tvöleytið í dag en RARIK hvetur þau sem orðið hafa fyrir tjóni eða enn eru í vandræðum til þess að hafa samband.
Há fjármagnsgjöld leiddu til þess að Vaðlaheiðargöng voru rekin með miklu tapi í fyrra. Félagið þarf að greiða að lágmarki tvisvar á ári allt laust fé umfram 50 milljónir króna inn á verðbættan höfuðstól láns, samkvæmt viðauka við lánasamning sem gerður var síðasta sumar þegar fjárhagur þess var endurskipulagður og eignarhaldið færðist nær alfarið í hendur ríkisins.
Slökkviliðsmenn hvaðanæva af landinu voru samankomnir á Akureyri í dag til að fylgjast með brunaæfingu inn í Vaðlaheiðargöngunum. Göngin voru fyllt af reyk með nýjum búnaði sem auðveldar til muna brunaæfingar í jarðgöngum. Sams konar hefur æfing hefur ekki áður verið haldin hér á landi.
Vaðlaheiðargöngum verður lokað í dag á milli klukkan tíu og fimmtán vegna æfingar á viðbragði við umferðarslysi og reyk í göngunum. Nýr æfingarbúnaður verður notaður í fyrsta skipti hér á landi við æfinguna.
Fjárhagsleg endurskipulagning Vaðlaheiðarganga fól í sér að ríkissjóður skuldbreytti 5 milljörðum af 20 milljarða króna láni í hlutafé og þynnti aðra hluthafa í göngunum „verulega“ ásamt því að framlengja lokagjalddaga lánsins til ársins 2057. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Vaðlaheiðarganga.
Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum.
Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni.
Ríkisútvarpið sendi í gær út þátt um jarðgöng á Norðurlandi sem kostaður er af Vegagerðinni og Sóknaráætlun Norðurlands eystra, verkefni sem meðal annars er ætlað að efla byggðaþróun. Varaformaður Blaðamannafélagsins segist líta á þáttinn sem kynningarefni en ekki heimildarþátt.
Fjárhagsleg endurskipulagning Vaðlaheiðarganga er langt á veg komin samkvæmt heimildum Innherja en með því að skuldbreyta lánum sem hafa sligað rekstur ganganna frá því að opnað var fyrir umferð eignast ríkissjóður yfirgnæfandi eignarhlut.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, telur að þrjú af þeim fjórum jarðgöngum á Íslandi sem tilheyra hinu Samevrópska veganeti uppfylli ekki lágmarksöryggiskröfur EES fyrir jarðgöng.
Meira en einu og hálfu ári eftir að viðræður hófust um fjárhagslega endurskipulagningu Vaðlaheiðarganga er málið enn í vinnslu. Ríkissjóður hefur frestað innheimtuaðgerðum vegna gjaldfallinna lánssamninga fram yfir áramót.
Til skoðunar er að ríkissjóður breyti hluta af lánum sínum til Vaðlaheiðaganga í hlutafé. Unnið er að endurfjármögnun skulda til að draga úr fjármagnskostnaði, sem setur strik í reikninginn þrátt fyrir að rekstur ganganna gangi vel.
Heildarumferð í Vaðlaheiðargöngum á árinu 2020 var 414 þúsund ferðir, um 100 þúsund færri ferðir en árið 2019. Hljómar samdrátturinn því upp á 19,5 prósent milli ára.
Veggjald fyrir ökumenn fólksbíla sem keyra beint í gegnum Vaðlaheiðargöng án þess að skrá sig lækkar um næstu mánaðamót.
Asíubúum, sérstaklega Kínverjum og Taívönum, hefur fjölgað í haust þegar skoðað er það hlutfall sem keyrir í gegnum Vaðlaheiðargöng.
Eldur kviknaði í bíl austan megin í gangamunna Vaðlaheiðarganga í dag og fyllti mikill reykur göngin. Sprengingar og mikill eldur var í göngunum og gekk slökkviliði vel að ná niðurlögum eldsins.
Eldur kviknaði í bíl austan megin í gangamunna Vaðlaheiðarganga í dag og fyllti mikill reykur göngin
Tekjur af ökumönnum sem fara í gegnum Vaðlaheiðargöng eru um 35 prósent lægri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir.
Frá því að Vaðlaheiðargöng voru opnuð hefur umferðin um Vaðlaheiði aukist um 7,6% m.v. 2018 sem er heldur meira en reiknað var með.
Samkvæmt umferðarteljara Vegagerðarinnar við Vaðlaheiðargöng eru líkur á að umferð um göngin verði um 1.750 bílar á dag á ársgrundvelli.
Hraðamyndavélar lögreglu hafa ekki enn verið settar upp í Vaðlaheiðargöngum en göngin hafa verið opin nú í tæpt hálft ár. Framkvæmdastjóri segir stutt í að búnaður verði settur upp en ökumenn almennt löghlýðna í göngunum.
Háþróaður búnaður Vaðlaheiðarganga sem les af númeraplötum bifreiða á í vandræðum með að lesa af gömlum svörtum númeraplötum. Ekki loku fyrir það skotið að slíkir bílar fari í gegn án þess að vera rukkaðir fyrir ferðina.
Færeyingar eru að hefjast handa við enn ein jarðgöngin, Hvalbiargöngin. Þessi jarðgangagerð bætist við tvær aðrar risaframkvæmdir; gerð tveggja neðansjávarganga.
Vegamerkingar í kringum Vaðlaheiðargöng eru til þess eins að blekkja erlenda ferðmenn og þau sem ekki eru kunnug staðháttum.
Stjórnmálaflokkur sem berst gegn vegtollum í Noregi gæti komist í oddaaðstöðu í borgarstjórn Björgvinjar í sveitarstjórnarkosningum í haust, miðað við nýja fylgiskönnun.
Göngin voru opnuð rétt fyrir síðustu jól og gjaldtaka hófst í byrjun árs.
Vaðlaheiðargöngum, milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals, verður lokað um komandi nætur.
Á þeim rétt rúma mánuði sem liðinn er frá því gjaldtaka hófst í Vaðlaheiðargöng hafa 85 prósent ökumanna valið að aka um göngin en 15 prósent ekið veginn yfir Víkurskarð.
Tvennt slasaðist alvarlega í gær í Ljósavatnsskarði þegar tvær bifreiðar skullu saman og lentu utan vegar. Voru bifreiðarnar sem um ræðir að koma hvor úr sinni áttinni.
Vinnueftirlitið hefur kallað eftir nánari upplýsingum frá lögreglu um andlát manns á sjötugsaldri í Vaðlaheiðargöngum.