Hjálparstarf

Gleymdu börnin
Mikið öngþveiti er í litlu sveitaþorpi í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þegar ég keyri í gegnum þorpið. Bílstjórinn minn hægir á bílnum og leggur við hlustir. ,,Hann stal barni!“ hrópar maður og bendir á mótorhjól sem þýtur úr þorpinu. Mér er sagt að þetta sé því miður daglegt vandamál á þessu svæði.

Reka tvo og refsa fleirum vegna árása á hjálparstarfsmenn
Tveimur yfirmönnum í ísraelska hernum hefur verið vikið úr starfi í kjölfar rannsóknar á mannskæðum loftárásum á hjálparstarfsmenn World Central Kitchen. Rannsakendur segja alvarleg mistök hafa verið gerð og starfsreglur hersins hafi verið brotnar þegar árásirnar voru gerðar.

Hjálparsamtök fresta aðgerðum vegna árásarinnar
Nokkur hjálparsamtök sem hafa séð íbúum Gasa fyrir neyðaraðstoð hafa frestað aðgerðum sínum á svæðinu eftir að sjö starfsmenn World Central Kitchen létu lífið í árásum Ísraelshers í fyrradag.

Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið
Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur.

Tíu milljónir safnast fyrir grindvísk ungmenni
Sunnudaginn 17. mars fór fram samverustund Grindvíkinga í Hörpu til styrktar börnum, unglingum og æskulýðsstarfi í Grindavík. Á samverustundinni var tilkynnt að tíu milljónir króna hefðu safnast.

Kveðja eftir 117 ára góðgerðarstarf
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri heyrir nú sögunni til. Á aðalfundi í liðinni viku var samþykkt að leggja félagið niður.

Bandaríkin henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa
Bandaríkin hyggjast henda hjálpargögnum úr lofti yfir Gasa svæðið á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargögnum til Gasa undanfarna daga, vikur og mánuði en gagnrýnendur segja aðferðina lélega og ónákvæma.

Formaður Fjölskylduhjálparinnar segir rekstrinum sjálfhætt
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, segir rekstrinum sjálfhætt ef ekki fæst meira utanaðkomandi fjármagn. Hún hafi borið fjárhagslega ábyrgð á rekstri FÍ í tvo áratugi en sé ekki reiðubúin til að taka veð í heimili sínu til að halda áfram.

Hafa safnað þrjátíu milljónum til að koma fólki til Íslands
Samtökin Solaris hafa safnað rúmum þrjátíu milljónum króna í sérstakri söfnun sem hófst byrjun mánaðar. Markmiðið er að nota peninginn til að koma fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá Gasa og til landsins.

Ákall um vopnahlé og grið
Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa hörmungunum á Gaza á þann hátt að við getum skilið þjáninguna og sorgina sem fylgir þessum ómannúðlega hernaði í Landinu helga. Staðan er grafalvarleg og ákall um vopnahlé þarf að ná eyrum þeirra sem geta stöðvað ófriðinn, morðin og gjöreyðileggingu samfélagsins sem áður lifði í Gaza.

Færeyingar söfnuðu tíu milljónum fyrir Grindvíkinga
Nú hefur yfir 33 milljónum króna verið úthlutað til Grindvíkinga úr neyðarsöfnun Rauða krossins. Alls hafa yfir 45 milljónir safnast og úthlutun er enn í fullum gangi. Af þeim 45 milljónum sem söfnuðust komu tíu þeirra frá Færeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Enginn öruggur staður eftir á Gasa
„Aðstæður á Gaza eru eins og stendur hörmulegar. Líf allrar þjóðarinnar var snúið við og sett á hvolf þann 7. október,“ segir Nebal Farsakh, upplýsingafulltrúi palestínska Rauða hálfmánans á Gasa.

Spítalinn í Rafah yfirfullur og skortur á öllu
Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem starfaði á spítala á Gaza segir ástandið vægast sagt slæmt. Mikill skortur væri á lyfjum, áhöldum og mat og fjölmargir hafi misst jafnvel alla fjölskyldu sína.

Leysi Ísland ekki undan siðferðislegri skyldu að lagaleg skylda sé til staðar
Alls 24 íslensk félagasamtök hvetja í yfirlýsingu íslensk stjórnvöld til „að leggja allt kapp á að tryggja tafarlausa brottför“ þeirra Palestínumanna sem hafa fengið veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar.

Elín snýr aftur af Gasaströndinni
Skurðhjúkrunarfræðingurinn Elín Jakobína Oddsdóttir, sem hefur starfað fyrir Alþjóðaráð Rauða krossins á sjúkrahúsi á Gasaströndinni síðustu sex vikur, er komin aftur til Íslands.

Selja kolefniseiningu sem tryggir stúlkum í Sambíu menntun og samsvarar einu tonni af CO2
Það kann að hljóma undarlega að með því að kaupa kolefniseiningar af fyrirtækinu SoGreen, ná fyrirtæki að slá tvær flugur í einu höggi: Að kolefnisjafna starfsemina sína annars vegar og styðja við menntun ungra stúlkna í Sambíu hins vegar.

Rekstur neyslurýmis í Borgartúni samþykktur
Byggingarfulltrúi samþykkti í vikunni umsókn Rauða kross Íslands um að koma upp einingahúsum fyrir neyslurými á lóð við Borgartún 5 í Reykjavík. Umsóknin var samþykkt þann 9. janúar.

Gaf allt sem hún var með á sér og fór berfætt heim
Hrefna Bachmann, forstjóri og frumkvöðull, ræddi við Einar Bárðarson um verkefni sín í Úganda undanfarinn áratug, stórfellda innviðauppbyggingu í bænum Banda og fólkið sem hún hefur aðstoðað þar.

„Leitaði að Íslendingalegu og vel treystandi fólki á flugvellinum“
„Þá fór þetta þannig fram að maður tók myndir á svart hvíta filmu en skrifaði fréttina á ritvél, eða einfaldlega handskrifaði hana á pappír. Fréttina og filmuna setti maður síðan í umslag, fór á Kastrup og leitaði að Íslendingalegu og vel treystandi fólki á flugvellinum og bað það um að flytja umslagið með sér heim,“ segir Þórir Guðmundsson þegar hann rifjar upp hvernig blaðamannastarfið fór fram í upphafi.

Sjá til þess að allir fái jólamat
Hátt í þrjú hundruð manns munu borða hátíðarhádegismat á Kaffistofu Samhjálpar í dag. Forstöðumaður segir þá sem mæta vera afar þakklátir en þeim fer fjölgandi sem þurfa á aðstoðinni að halda.

Varar við hruni hjálparstarfs á Gasaströndinni
Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir ástandið fyrir íbúa Gasastrandarinnar vera sambærilegt því að búa í helvíti. UNRWA ber ábyrgð á því að dreifa neyðaraðstoð til íbúa Gasastrandarinnar.

Blik í augum barna?
Fátt er yndislegra en að sjá eftirvæntingu og blik í augum barna sem bíða eftir hátíðarstundum eins og jólum. Börn á Íslandi búa flest við góðar aðstæður og geta notið hátíðarstunda við öryggi í faðmi ástvina á heimilum sínum.

Hjálparbeiðnum fjölgar mikið og enn meiri dýrtíð spáð í desember
Hjálparbeiðnum hefur fjölgað mikið hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og neyðin í samfélaginu er gríðarleg. Þetta segir félagsráðgjafi hjálparsamtakanna. Verðbólgan sé augljós skaðvaldur en greiningardeildir bankanna spá enn meiri dýrtíð í desember.

Metfjöldi þarf jólaaðstoð og hjálparbeiðnum rignir inn
Metfjöldi hefur leitað jólaaðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar. Fjöldi sækir um á hverjum degi þrátt fyrir að úthlutun sé lokið og formaður segist ekki ná að sinna öllum eins og er. Mun fleiri barnafjölskyldur þurfi aðstoð.

Eva Ruza fjórði sendiherrann
Eva Ruza Miljevic er nýr velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna og tók hún formlega við hlutverkinu í dag. Fyrir í hópi sendiherra SOS voru Eliza Reid, Hera Björk Þórhallsdóttir og Rúrik Gíslason, og bætist Eva í þennan glæsilega hóp.

Segir nánast ómögulegt að koma hjálpargögnun inn á Gasa
Hörð átök voru í borginni Khan Younis á Gasa í nótt. Ísraelsk yfirvöld skipuðu íbúum borgarinnar að yfirgefa ákveðin hverfi í nótt og héldu í kjölfarið áfram landhernaði sínum inni í landið. Hundruð þúsunda höfðu fyrir flúið til borgarinnar til að leita skjóls fyrir loftárásum.

Fer með farm af fótboltabúnaði heim um jólin: „Þetta skiptir þau öllu máli“
Hin ganverska Samira Suleman, fótboltakona og yngri flokka þjálfari hjá ÍA, safnar nú íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Að hennar sögn breytir þetta öllu fyrir ungt fólk í heimabænum hennar.

Þitt nafn bjargar Justynu
Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefst í dag. Amnesty segir herferðina hafa breytt lífi þolenda mannréttindabrota frá því henni var komið á fót árið 2001.

Gjafir og gjörningar fyrir Grindvíkinga á óvissutímum
1200 heimili í Grindavík eru mannlaus og í kringum 3800 Grindvíkingar gista hjá fjölskyldu og vinum, í hjólhýsum, í sumarbústöðum eða fjöldahjálpastöðvum. Fólk og fyrirtæki hafa fjölmörg boðið fram aðstoð sína á þessum óvissutímum.

Full af þakklæti en algjör óvissa varðandi morgundaginn
Systkinin Michal og Isabella voru á meðal þeirra sem urðu á vegi fréttamanns í fjöldahjálpastöðinni í Kórnum í Kópavogi eftir miðnætti. Þau voru hluti af fimmtán starfsmönnum Vísis hf. í Grindavík.