
Grænland

Skútumálið: Gat ekki sagt hvað væri á óljósri mynd úr síma sínum
Arnþrúður Þórarinsdóttir, héraðssaksóknari, varpaði í fyrradag mynd á skjá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Erfitt var fyrir viðstadda að átta sig á því hvað væri á myndinni þar sem hún var mjög óskýr.

Svona komst lögreglan á snoðir um skútuna
Rannsóknarlögreglumaður, sem stjórnaði rannsókninni á skútumálinu svokallaða, útskýrði fyrir dómi á þriðjudag hvernig lögregla komst á snoðir um skútuna sem í fundust tæplega 160 kíló af hassi. Mennirnir voru handteknir í júní á þessu ári við Garðskagavita á Reykjanesi.

Skútumálið: Tapaði öllu með því að fara til Íslands
Jonaz Rud Vodder, einn sakborninga í skútumálinu svokallaða, segist sjá eftir því að hafa farið í verkefni til Íslands þar sem hann var beðinn um að kaupa og afhenda vistir til skipverjanna sem voru í skútunni sem var að flytja tæplega 160 kíló af hassi til Grænlands í júní á þessu ári.

Felldi tár aðspurður út í gengi sem hefur elt hann á röndum
„Fingraför Pouls í málinu eru alveg ótrúlega mörg,“ fullyrti rannsóknarlögreglumaður sem var yfir rannsókn á skútumálinu svokallaða í aðalmeðferð þess í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Svara til saka í enn einu skútumálinu við Íslandsstrendur
Þrír danskir ríkisborgarar svara í dag til saka í einu stærsta fíkniefnamáli sem komið hefur upp hér á landi. Tæplega 160 kíló af hassi fundust í borð í skútu nærri Garðskagavita í júní.

Ný flugbraut kallaði á stærstu sprengingu í sögu Grænlands
Gerð nýs aðalflugvallar fyrir Suður-Grænland virðist loksins komin á beinu brautina eftir langvarandi óvissu. Við flugbrautargerðina var hleypt af stærstu sprengingu í sögu Grænlands.

Gengi Amaroq rýkur upp eftir „ótrúlegar“ niðurstöður úr borunum eftir gulli
Hlutabréfaverð auðlindafyrirtækisins Amaroq Minerals hefur hækkað skarpt eftir að tilraunaboranir leiddu í ljós hæsta gullmagn í sögu félagsins, meðal annars uppgötvun á nýrri gullæð, en niðurstöðurnar voru umfram væntingar að sögn forstjórans og eykur vissu um að áætlanir þess muni standast. Nokkrum dögum áður en þær niðurstöður lágu fyrir hafði breskur fjárfestingabanki hækkað verðmat sitt á Amaroq upp í tæplega 50 milljarða króna, liðlega 85 prósent yfir núverandi markaðsgengi.

Níu kærðir vegna ólöglegra hvalveiða á Grænlandi
Lögregla á Grænlandi hefur kært níu manns vegna gruns um að hafa stundað ólöglegar hvalveiðar við Kullorsuaq á vesturströnd landsins. Talið er að mennirnir hafi veitt allt að tuttugu náhvali um miðjan september.

Grænlenskar konur sem voru settar á getnaðarvarnir gegn þeirra vilja krefjast bóta
Hópur grænlenskra kvenna hefur nú farið í mál við danska ríkið vegna herferðar sem ráðist var í á sjöunda áratugi síðustu aldar sem snérist um að setja getnaðarvarnir í grænlenskar konur til að draga úr fæðingartíðni á Grænlandi.

Kielsen kemur nýr inn í grænlensku landsstjórnina
Múte B. Egede, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, kynnti í dag breytingar á landsstjórninni. Einna hæst ber að Kim Kielsen, fyrrverandi formaður landsstjórnarinnar, tekur við embætti sjávarútvegs- og veiðimála og ráðherrum fjölgar um einn.

Varðskipið Þór með farþegaskip í togi til Reykjavíkur
Varðskipið Þór er nú með franska farþegaskipið Polarfront í togi frá Grænlandi til Reykjavíkur.

Amaroq Minerals mætt á aðalmarkað í Kauphöllinni
Auðlindafélagið Amaroq Minerals verður í dag skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland, eftir að hafa áður verið skráð á First North vaxtarmarkaðnum.

Jarðskjálfti olli flóðbylgju á Grænlandi
Grænlensk stjórnvöld hafa aukið viðbúnaðarstig í fjörðum eyjunnar í norðri og austri eftir að jarðskjálfti undan ströndum landsins upp á 3,4 olli flóðbylgju sem skall á ströndum eyjunnar Ellu um helgina.

Metur Amaroq á 36 milljarða og segir félagið vera í „einstakri stöðu“
Auðlindafyrirtækið Amaroq Minerals, sem mun flytjast yfir á Aðalmarkað í Kauphöllinni hér á landi síðar í vikunni, er sagt vera í „einstaklegra sterkri stöðu“ vegna þeirra fjölmörgu fágætismálma sem það hefur aðgang að til námugraftar og vinnslu í Grænlandi. Samkvæmt nýlegri greiningu bresks fjárfestingabanka er Amaroq verðmetið á jafnvirði liðlega 36 milljarða króna en félagið áformar að vera tilbúið til að hefja gullvinnslu á síðari hluta ársins 2024.

Náðu að draga Ocean Explorer af strandstað
Tarajoq, rannsóknarskip grænlensku umhverfisstofnunarinnar, tókst að draga skemmtiferðaskipið Ocean Explorer af strandstað í Alpafirði á austurströnd Grænlands um hádegisbil í dag.

Enn ekki tekist að koma skemmtiferðaskipinu á flot
Skemmtiferðaskipið Ocean Explorer hefur verið strand við austurströnd Grænlands síðan á mánudag. Engan sakaði þegar skipið strandaði.

Þór þarf ekki til Grænlands
Varðskipið Þór er laust til annarra verkefna eftir að hafa verið í biðstöðu vegna skemmtiferðaskips sem strandaði undan austurströnd Grænlands í gær.

Ákveða á næstu klukkustundum hvort Þór stími til Grænlands
Áhöfn varðskipsins Þórs er í viðbragðsstöðu norður af Langanesi vegna strands skemmtiferðaskips við austurströnd Grænlands.

Skemmtiferðaskip strand við austurströnd Grænlands
Skemmtiferðaskipið Ocean Explorer strandaði við Alpafjörð við austurströnd Grænlands í gærmorgun. Vonast var til að hægt yrði að koma skipinu af strandstað á háflóði í gær en það gekk ekki.

Gæsluvarðhald framlengt í skútumáli
Þrír menn, sem grunaður eru um umfangsmikið smygl á hassi til landsins, verða í áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 15. september.

Þrjú ungmenni grunuð um sleðahundadrápin
Þrjú ungmenni, öll undir sakhæfisaldri, eru grunuð um að hafa drepið sleðahundana tíu sem fundust dauðir á eyju við grænlenska bæinn Qasigiannguit aðfararnótt mánudagsins.

Tíu sleðahundar drepnir á Grænlandi
Tíu sleðahundar voru skotnir til bana á Grænlandi aðfaranótt mánudags. Lögregla telur að þjófnaður á mótorbát og rifflum um nóttina tengist málinu.

Inga Dóra hættir í grænlenskum stjórnmálum
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, formaður Siumut-flokksins í Nuuk, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum að sinni eftir þrjú ár í embættinu.

Kaupa 2,9 milljarða króna frystitogara
Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hefur fest kaup á frystitogaranum Tuukkaq frá Grænlandi. Kaupverð er sagt vera 148 milljónir danskra króna, eða tæpir 2,9 milljarðar íslenskra króna.

Koks hélt tveimur Michelin-stjörnum eftir flutninginn til Grænlands
Færeyski veitingastaðurinn Koks, sem starfræktur er tímabundið í Ilimanaq, suður af Ilulissat á Grænlandi, heldur tveimur Michelin-stjörnum sínum.

Aki-Matilda Høegh-Dam sækist eftir formennsku í Siumut
Hin grænlenska Aki-Matilda Høegh-Dam, sem á sæti á danska þinginu fyrir hönd Grænlands, hefur tilkynnt um framboð sitt til formennsku í flokknum Siumut.

Munu fara fram á himinháar bætur frá Grænlendingum
Ástralska námuvinnslufyrirtækið Energy Transition Minerals, sem áður hét Greenland Minerals, ætla sér að stefna dönskum og grænlenskum stjórnvöldum og fara fram á himinháar skaðabætur, fái fyrirtækið ekki heimild til að halda fyrirhugaðri námuvinnslu áfram í Kuannersuit.

Bílarnir sem Kaninn skildi eftir
Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk.

Aflýsti siglingaferð til Grænlands en endurgreiddi ekki staðfestingargjaldið
Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða um milljón króna staðfestingargjald til viðskiptavinar vegna tíu daga siglingaferðar til Grænlands sem fara átti í í ágúst 2022 en fyrirtækið aflýsti með skömmum fyrirvara með vísun í heimsfaraldur kórónuveiru.

Flýta vinnslu á Grænlandi eftir sjö milljarða lánsfjármögnun
Auðlindafélagið Amaroq Minerals, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, hefur gengið frá sjö milljarða króna lánsfjármögnun. Fjármagnið verður nýtt til að hefja gullvinnslu í Nalunaq námunni fyrr en ella. Þá kannar félagið nú skráningu á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi.